Búnaðarrit - 01.01.1966, Síða 22
16
BUNAÐARRIT
alla Barðastrandarsýslu. Við liöfðuin skamma viðdvöl í
Skálanesi í Gufudalssveit, en liéldum svo eins og leið
liggur vestur í Vatnsfjörð. Þar komu til móts við okkur
þeir Guðmundur Ingi Kristjánsson, bóndi og skáld á
Kirkjubóli í Bjarnardal, formaður Búnaðarsambands
Vestfjarða, og Jón Guðjónsson, ráðunautur Búnaðarsam-
bandsins. Buðu þeir félagar okkur velkomin til Vest-
fjarða og bauð Guðmundur okkur Jón Guðjónsson með
jeppabifreið sem leiðsögumann og beillastoð á liinum
vandförnu leiðum Vestfjarða, sem sumar eru ekki auð-
farnar ókunnugum í fólksbílum. Að því búnu liéldum
við að Hvammi á Barðaströnd. Þar fengum við binar
beztu móttökur hjá þeim hjónum, Hákoníu Gísladóttur
og Karli Sveinssyni. Fagurt er og búsældarlegt í Hvammi,
eins og víðar þar í sveit og miklir framtíðarmöguleikar
samfara uppþurrkun landsins, sem nú er kappsamlega
unnið að. Er við fórum frá Hvammi, kvaddi Guðmundur
Ingi okkur og sneri lieim á leið, en við héldum að liöf-
uðbólinu Haga og sóttum heim liinn aldna héraðshöfð-
ingja Hákon Kristófersson og konu lians, Björgu Jóns-
dóttur. Bjarni, sonur þeirra hjóna, og Kristín Haralds-
dóttir, kona lians, eru nú aðalbúendur í Haga. Það var
fagnaöarfundur, er þeir hittust liinir gömlu þingbræður,
Hákon og Pétur Ottesen. Hákon er binn ernasti þrátt
fyrir 88 ár að baki.
Eftir ánægjulega clvöl og ágætar viðtökur í Ilaga var
lialdið út Barðaströnd og yfir Kleifabeiði til Patreksfjarð-
ar og gist þar. Næsta dag var ferðazt um Rauðasandshrepp.
Fyrst var haldið yfir á Rauðasand, en farið liratt yfir
vegna tímaskorts. Rauðisandurinn er búsældarleg og veð-
ursæl sveit, en því miður eru þar nokkrar góðar bújarðir
í eyði, meðal annarra böfuðbólið Saurbær. Á Rauðasandi
„drýpur smjör af liverju strái“, og er þar ótrúlega mikil
grózka í jörð samanborið við ýmsar aðrar sveitir í Barða-
strandarsýslum, þar sem víða er því miður allt of grýtt