Búnaðarrit - 01.01.1966, Síða 26
20
BÚNAÐARRIT
Kona hans, Dórótliea Guðmnndsdóttir, beið þar með
veizluborð. Við gistum í Mánakaffi. Næsta morgun var
ekið út í Hólslirepp. Þar heimsóttum við fyrst lijónin í
Miðdal, Birgi Bjarnason og Karítas Jónsdóttur. Þar er
búið af frábærri snyrtimennsku, bæði utan húss og innan,
og allt ber þess vitni, að lijónin búa ekki aðeins til að
liafa atvinnu af búskapnum, heldur ekki síður til þess
að njóta sveitasælunnar í afskekktri og liarðbýlli sveit.
Við héldum því næst til Bolungarvíkur. Þar ber allt vott
um velgengni. Ætlunin var að lieilsa upp á Einar Guð-
finnsson, en liann var ekki lieima. Þá lieimsóttum við
Guðmund Magnússon, bónda á IIóli og konu lians, ICrist-
ínu Örnólfsdóttur. Hóll er vel setin kostajörð. Bújarðir í
Hólslireppi sýna, að þar búa þróttmiklir bændur. Eftir
ánægjulega stund lijá þeim Hólsbjónum var ekið til Isa-
fjarðar og þaðan inn að Eyri í Seyðisfirði, en þangað á
að lieita, að fært sé jeppabifreiðum. Að Eyri búa stórbúi
bjónin Ágúst Hálfdánarson og Rannveig Rögnvaldsdóttir
og sonur þeirra, Halldór. Mjög má þakka atorku og kjarki
þeirra Eyrarhjóna og barna þeirra, að byggðin liefur ekki
alveg slitnað í sundur við sunnanvert Isafjarðardjúp. Eft-
ir nokkra viðdvöl og lilýlegar móttökur á Eyri var aftur
lialdið til Isafjarðar og kvöldverður snæddur þar. Að því
búnu fór Jón Guðjónsson með Þorstein Sigurðsson og frú
og Pétur Ottesen til Súgandafjarðar, þar sem þau heim-
sóttu Friðbert Pétursson í Botni og Guðmund Hermanns-
son, vélstjóra á Suðureyri og konu lians, Sigríði Kristjáns-
dóltur frá Felli í Biskupstungum. Ég vildi ekki leggja á
mig meira ferðalag um kvöldið, svo við lijónin héldum
kyrru fyrir á Isafirði.
Árla næsta morgun tókum við okkur far með Djúpbátn-
um inn að ögri og enn fylgdi Jón Guðjónsson, ráðunautur
okkur. Frá Ögri ókum við án þess að bafa viðdvöl á bæj-
um til Skálavíkur. Þar heimsóttum við öldunginn og stór-
bóndann Ólaf Ólafsson. Var gaman við liann að ræða og
kjarkur lians óbilaður, þótt aldur færist nú yfir liann.