Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 31
SKÝRSLA BÚNABARMÁLASTJÓRA
25
Suðurland og var nieðal annars komið við í Gunnarsholti,
Sámsstöðum og Laugardælum. Einnig var Jieim hjónum
sýnd tilraunastarfsemin á Korpúlfsstöðum. Dr. Anderson
er af íslenzku bergi brotinn vestan liafs, talar ágæta ís-
lenzku, liefur komið hingað til lands áður og er kunnug-
ur landbúnaði liér. Lét hann í ljós hrifningu yfir Jjví,
live framfarir í landbúnaði hafa orðið miklar hér síðustu
8 árin, þó sérstaklega á vegum Sandgræðslu Islands.
Dr. G. R. Hervey, brezkur sérfræðingur í næringarlíf-
eðlisfræði við Marisclial College í Aberdeen, óskaði eftir
að koma við liér á landi ásamt konu sinni og dóttnr á
leið til Bandaríkjanna og dvelja liér 11.—12. júní til að
hitta undirritaðan og aðra húvísindamenn. Því miður
var ég erlendis, er þau komu hingað, en starfsmenn félags-
ins, Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Tilrauna-
stöðvarinnar á Keldum áttu viðræður við þau hjónin og
veittu þeim umbeðnar upplýsingar.
Mr. Mansel Hopkin frá Wales og Mr. E. Warner frá
Bandaríkjunum komu hingað í sambandi við rúnings-
námskeið, eins og skýrt er frá hér að framan.
Herra Jorij Dachkov, landbúnaðarblaðafulltrúi Sovjet-
ríkjanna í Skandinavíu kom í lieimsókn til íslands í
ágúst. Hafði hann áliuga á að kynnast l)úfjárrækt íslend-
inga. Ferðaðist hann nokkuð um á Suðvesturlandi.
Ungfrú Renate Riihl frá Bonn, meðritstjóri þýzka bú-
fjárræktartímaritsins Der Tierziicliter, dvaldi hér á landi
frá 8. til 20. júlí. Kom liún liingað til að kynnast íslenzk-
um landbúnaði og sveitalífi. Ferðaðist lnin víða um land,
ýmist á eigin vegum eða með starfsmönnum Búnaðarfé-
lagsins.
Ennfremur lieimsóttu Búnaöarfélagið nokkrir brezkir
bændur, á ýmsum tímum ársins, einkum til aö kynna sér
sanðfjárbúskap hér á laruli, súgþurrkun og fjárhús. Var
reynt að veita þeim umheðnar upplýsingar og þeim sýnd
fjárbú, eins og fjárræktarbúið á Hesti og nokkur hú
einstakra bænda, svo sem húið í Oddgeirshólum í Flóa,