Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 38
32
BUNAÐARRIT
hluta Strandasýslu, liluta af Norður-Þingeyjarsýslu og
meiri lilutann af svæði Búnaðarsambands Austurlands,
þ. e. Fljótsdalshérað, Vopnafjörð og Skeggjastaðalirepp.
Þessi svæði voru meðal annars valin af því, að fyrir lágu
greinargóðar skýrslur um ástæður og framkvæmdavilja
bænda þar. Eyðublöð undir slíkar skýrslur liefur Búnað-
arfélag Islands sent til allra bænda á landinu með milli-
göngu héraðsráðunauta búnaðarsambandanna. Nauðsyn-
legt er að fá þessar skýrslur frá bændum, bæði vegna
þessa máls og einnig fyrir Búnaðarnefndina.
Ííthlutunarnefndin liefur í samvinnu við viðkomandi
héraðsráðunauta stuðlað að því, að ræktunarsambönd
byggðarlaga þeirra, sem tekin voru fyrir á árinu 1965,
tækju að sér að vinna lijá þeim bændum í ár, sem eiga
rétt á aukaframlagi af þessu fé. Aukaframlagið er greitt
að nokkru leyti í hlutfalli við ræktunarkostnaðinn lijá
hverjum bónda. Ekki er enn ákveöið, livaða svæði verða
sérstaklega tekin fyrir á árinu 1966.
Önnur störf búnaðarmálastjóra
Undirritaður befur átt sæti í Tilraunaráði búfjárræktar
óslitið síðan lög nr. 64 frá 7. maí 1940 um rannsóknir og
tilraunir í þágu landbúnaðarins voru sett, og verið for-
maður ráðsins á annan tug ára. Með lögum nr. 64 1965
um rannsóknir í þágu atvinnuveganna voru gerðar ýmsar
breytingar á skipan tilrannamála, meðal annars var Til-
raunaráð búfjárræktar lagt niður. Samkvæmt binum
nýju lögum skipar menntamálaráðberra Rannsóknaráð
ríkisins, og á sæti í því 21 maður, einn þeirra tilnefndur
af stjórn Búnaðarfélags Islands. Stjórn félagsins tilnefndi
mig undirritaðan til að taka sæti í Rannsóknaráði og
Ólaf E. Stefánsson, nautgriparæktarráðunaut, sem vara-
mann.
Þá er með nefndum lögum allri rannsókna- og tilrauna-
starfsemi í þágu landbúnaðarins, sem ríkið kostar, skipað