Búnaðarrit - 01.01.1966, Síða 64
58
BÚNAÐARRIT
vöru á markaðinn, voru lieldur í seinna lagi. Ræktun á
gúrkum og tómötum, sem eru þýðingarmestu mataraf-
urðir gróðurliúsa, var svipuð að flatarmáli og árið áður,
þó var heldur um flatarmálssamdrátt að ræða í tómötum
fyrri hluta ársins, en aftur nokkra aukningu í gúrkum.
Eins og stundum vill verða, voru nokkrir erfiðleikar á
sölu á gúrkum og tómötum um skeið, en það er vand-
kvæðum bundið að Jiaga ræktuninni þannig, að uppsker-
an dreifist sem jafnast yfir þá mánuði, seni ávextir þessir
eru ræktanlegir liér. Sölufélag garðyrkjumanna lét því
djúpfrysta nokkurt magn af gúrkum og setja tómata í
vinnslu á sósu, en fyrir livort tveggja fá framleiðendur
lítið í hendur, eins og ætíð vill verða fyrir vöru, sem fer
í vinnslu.
Hjá hlómaframleiðendum gekk ræktunin frekar vel,
og sala afskorinna blóma var með líflegra móti. Aftur á
móti var pottaplöntusala erfið. Fyrstu mánuði ársins
seljast pottaplöntur yfirleitt alla tíð frekar vel, en þeg-
ar komið er fram á mitt árið, dettur salan alveg niður.
Þetta veldur miklum erfiðleikum fyrir frainJeiðendur
pottaplantna, þar sem þeir geta ekki nýtt liús sín nægi-
lega vel, og verða að sitja uppi óeðlilega lengi með sumt
af því, er þeir rækta. I lieild eiga garðyrkjubændur við
ýmsa erfiðJeika að etja, og fjárliagsleg útkoma þeirra
er ekki eins glæsileg og margur kann að lialda. Bygg-
ingaframkvæmdir á sviði gróðurliúsa voru með minnsta
móti á árinu, eða samtals rösklega 1200 m2, þar í er inni-
falið eitt gróðurliúsanýbýli reist að Árbæ í Ölfusi.
n. Leiðbeiningastarfsemin
Starf mitt og starfstilliögun var með svipuðum hætti og
undanfarin ár. Ég ferðaðist í rösklega 120 daga, og fór
víða um og heimsótti bæði garðyrkjubændur og áliuga-
fólk um garðyrkju, sem óskað hafði eftir aðstoð minni
og ráðleggingum. 1 starfi mínu feJlur þungi ferðalaga af