Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 69
SKYRSLUR STARFSMANNA
63
en Egill Bjarnason, héraðsráðunautur, flutti erindi um
fóðrun og beit. Sýndi ég 3 aðrar kvikmyndir á þessum
fundi. Að beiðni Ungmennasambands A.- Húnavatns-
sýslu flutti ég svo ávarp á húsbændavöku Húnavökunnar,
sem haldin var í félagsheimilinu á Blönduósi 30. marz.
Sýndi ég þar einnig kvikmynd. Voru yfir 200 manns sam-
an komnir til þessa kvöldfagnaðar. Hinn 3. júlí fór fram
keppni 13 þátttakenda í nautgripadómum í starfsíþrótta-
keppni Ungmennafélags Islands á móti þess að Laugar-
vatni. Vorum við Sigurmundur Guðbjörnsson, liéraðs-
ráðunautur, dómarar, en kýrnar, sem dæmdar voru, liöfð-
um við valið daginn áður. Á ferð minni til Akurevrar
skömmu áður liafði ég leiðbeint ungmennafélögum í
Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu í nautgripadómum.
Hinn 8. desember sátum við Jóhannes Eiríksson aðal-
fund Nautgriparæktarsambands Árnessýslu að Selfossi
ásamt béraðsráðunautum á Suðurlandi og um kvöldið
fluttum við ásamt Hjalta Gestssyni, béraðsráðunaut, fram-
söguerindi á umræðufundi að Hvoli fyrir bændur í Rang-
árvallasýslu. Fund þennan, sem Ræktunarsamband
Fljótslilíðar, Hvollirepps og Rangárvalla (F. H. R.)
bafði boðað, sátu milli 70 og 80 manns. Á fundum þess-
um gerði ég vandamál búvöruframleiðslunnar að um-
ræðuefni, einkum mjólkurframleiðslunnar.
Fer&alag erlendis. Menntamáladeild utanríkisráðuneyt-
is Bandaríkjanna og sú deild, sem fer með aðstoð við þró-
unarríki (AID), efndu á árinu til alþjóðlegrar ráðstefnu
um ráðunautastarfsemi (The First International Confer-
ence of Agricullural Lcaders) í samvinnu við landbúnað-
arráðuneyti Bandaríkjanna og fylkisliáskólann í Brook-
ings. Menntamáladeildin bauð að kosta för eins þátttak-
anda frá Islandi, og tilnefndi stjórn Bf. ísl. mig til farar-
innar. Sjálf ráðstefnan stóð í liálfan mánuð og var lialdin
við háskólann í Brookings í S.-Dakola, sem annaðist
allan undirbúning þar. Auk þess ferðuðust þátttak-
endur um ýrnis lielztu landbúnaðarfylki Bandaríkjanna