Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 72
66
BÚNAÐARRIT
maður fjögurra manna nefndar, er landbúnaðarráðuneyt-
ið skipaði liinn 15. júní 1964 til að endurskoða lög um
búfjártryggingar og önnur, er varða þingsályktun, sem
samþykkt liafði verið á Alþingi sama ár um tryggingar
gegn uppskerubresti og afurðatjóni í landbúnaði. Nefnd
þessi lauk störfum 27. nóvember 1965. Samdi hún tvö
frumvörp:
(1) Frumvarp til laga um búfjártryggingar og
(2) Frumvarp til laga um Bjargráðasjóð Islands.
Frumvörpum þessum fylgdu ýtarlegar greinargerðir.
Nefndin réð sér til aðstoðar Guðjón Hansen, trygginga-
fræðing, og kynnti sér jafnframt samsvarandi mál í nokkr-
um löndum. Hélt nefndin alls 39 fundi. Ráðuneytið liefur
sent Búnaðarþingi frumvörp þessi til umsagnar.
Á árinu átti ég sæti í stjórn Bændahallarinnar, tilnefnd-
ur af Búnaðarfélagi Islands.
II. Nautgriparæktin 1965
Fjöldi naulgripa. Ekki liggur enn fyrir nákvæm skýrsla
hjá Hagstofu Islands um fjölda nautgripa í byrjun árs
1965. Samkvæmt bráðabirgðaáætlun var fjöldi nautgripa
þá 59000. Skiptist hann þannig, að kýr eru áætlaðar allt
að 42000, en kálfar og geldneyti 17000, en hlutfall milli
kálfa og geldneyta liefur aðeins verið reiknað lit sam-
kvæmt úrtaki. Svo virðist, að einhverjar af þeim kvígum,
sem áður voru taldar kelfdar og færðar með kúnum, séu
nú taldar með geldneytum.
Mjólkurframlei&slan. Innvegin mjólk í mjólkurbúum
nain árið 1965 alls 106.515.226,5 kg og hafði aukizt um
5,99% frá fyrra ári. Framleiðslan hefur dregizt saman í
Kjalamesþingi og S.-Borgarfirði og lítils báttar á sam-
lagssvæði mjólkurbúsins í Borgarnesi, en þó mest lilut-
fallslega á Norðfirði. HlutfaBslega mesta aukningin var
hjá mjólkurbúunum í Grundarfirði, Vopnafirði, Djúpa-
vogi og Búðardal, enda eru þetta nýlega stofnuð samlög.
Veruleg liækkun hefur orðið lijá öllum samlögunum á