Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 78
72
BÚNAÐARRIT
eftir frekari reynslu, áður en ákveðinn verður endanlegur
dómur á dætrum Ljóma S291.
2. Dætur Elds S290 báru að 1. kálfi á svipuðum árstíma.
Þær urðu ekki nema 7, sem luku 1. mjaltaskeiði, ]»ar eð
1 kýrin drapst af slysförum. Meðalafurðir þeirra urðu
2312 kg mjólk með 3,96% fitu eða 9.155 fe. Þessi hópur
er mjög misjafn. Sumar kýrnar eru mjög álitlegar mjólk-
urkýr, en aðrar eru afurðatregar. Á afkvæmasýningunni
s. i. sumar hlutu dætur Elds S290 frekar slæman útlits-
dóm, og var hann því felldur haustið 1965.
3. Dætur Brands S292 báru einnig á svipuðum árstíma
eða frá 26/1—19/4 árið 1964. Afurðir þeirra urðu á 1.
mjaltaskeiði (301 degi) 2403 kg mjólk, fita 4,16% og fitu-
einingar 9.990. Þær liafa bætt eðlilega við sig að 2. kálfi
og verða að teljast fremur álitlegar mjólkurkýr. Á af-
kvæmasýningunni síðastliðið sumar hlutu þær lieldur góð-
an útlitsdóm að öðru leyti en því, að þær liafa fremur
slæma júgurbyggingu og grófa spena. Ennfremur reyndust
þær misjafnar í vélmöltun, og af þessum ástæðum var
Brandur S292 felldur haustið 1965.
4. Dætur Kyndils S294 báru að 1. kálfi á tímabilinu
desember 1964 til apríl 1965. Ein þeirra bar þó ekki fyrr
en í júní og var auk þess með það óeðli að láta sjúga sig og
vera sogin af annarri kú. Hún var því ekki tekin með í
endanlegt uppgjör. önnur kvíga undan Kyndli liafnaðist
ekki, og komu því aðeins 6 dætur hans til uppgjörs eftir
1. kálf, sem að sjálfsögðu gerir niðurstöðuna mjög valta.
Meðalafurðir Kyndilsdætra á 1. mjaltaskeiði urðu 2893
kg mjólk, fita 4,12% og fitueiningar 11.922. Á afkvæma-
sýningunni s. 1. sumar fengu dætur Kyndils góða dóma
fyrir byggingu, en nokkur vafi er enn um mjöltun þeirra
og afurðahæfni, þó að liún virðist nú ætla að verða mjög
mikil. Ivyndill fékk því biðdóm.
5. Dætur Kolskjaldar S300 háru að 1. kálfi á svipuðum
árstíma. Þær luku allar 8 að tölu 1. mjaltaskeiði og mjólk-
uðu að meðaltali 2824 kg, meðalfita var 4,23% og fituein-