Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 79
SKÝRSLUR STARFSMAT'íNA
75
ingar 11.932. Á sýningunni s. 1. suniar hlutu þær ágæta
dóma fyrir byggingu, og þær liafa allar reynzt góðar í
mjöltun. Kolskjöldur S300 lilaut á þessari sýningu I. verð-
laun fyrir afkvæmi, og er liann nú eitt efnilegasta naut á
kynbótastöðinni í Laugardælum. Hann er fæddur 19.
janúar 1961 og er því aðeins 5 vetra. Hann er því líklegur
til að liafa mikil ábrif á nautgriparæktina á næstu árum.
6. Nýlokið er afkvæmarannsókn á 1. mjaltaskeiði Búa
S295. Dætur bans 8 báru allar á eðlilegum tíma, en 1
þeirra fékk lieiftarlega júgurbólgu tveim mánuðum eftir
burð og fékk svo mikla júgurskemmd, að bún geltist fljót-
lega upp og var dæmd ónýtur gripur og var slátrað. Hinar
7 mjólkuðu að meðaltali (á 301 degi) 2813 kg, meðalfita
var 4,41% og fitueiningar 12.406. Á afkvæmasýningunni
síðastliðið sumar náðust ekki saman nægilega margir grip-
ir til þess að bægt væri að kveða upp afkvæmadóm á Búa
S295. En hann virðist ætla að verða mjög álitlegt kynbóta-
naut.“
Um yngri hópana farast Hjalta Gestssyni orð á þessa
leið:
„1 árslok 1965 voru fyrstu kvígurnar nýbornar undan
nautunum Boða S303, Gylli S304 og Neista S306. 1 þessari
afkvæmarannsókn eiga að bera 8 kvígur undan liverju
nauti, og verða þær væntanlega allar ])ornar fyrir marz-
lok 11. k. Næsti árgangur afkvæmarannsóknakvígna, 24 að
tölu, eru undan nautunum Geisla S307, Heimi S308 og
Húf S309. Þær eru fæddar í maí 1964 og liafa flestar feng-
ið tíma í desember og júní s. 1. Yngsti árgangur afkvæma-
rannsóknastöðvarinnar eru 24 kvígur, fæddar í apríl og
maí 1965, undan nautunum Sólon frá Sóllieimakoti,
Nökkva frá Skipum og Flekk frá Efra-Langholti.“
Búslofn og frarnkvœmdir á Lundi. Á búfjárræktarstöð-
inni voru í árslok 48 kýr, sem borið höfðu, en af þeim
voru 32 í afkvæmarannsókn. Á 2. ári var 41 kvíga og á 1.
ári 42 kvígukálfar, ætlaðir til afkvæmarannsókna. Á sæð-
ingarstöðinni voru þá 19 naut ársgömul og eldri og 5