Búnaðarrit - 01.01.1966, Side 94
88
BÚNAÐAI! RIT
aðalræðismaðnr, annaðist alla fyrirgreiðslu í Skotlandi.
För þessi var nijög lærdómsrík, niargt bar fyrir augu, og
í alla staði var förin lnn ánægjulegasta.
Ferðalög
Ferðadagar urðu 119 á árinu, eða fullur þriðjungur af
vinnudögum ársins utan stofnunar og heimilis. Af þeim
tíma fóru um sjö vikur í sýningar, mánuður í rúnings-
námskeið, liálfur mánuður í fundahöld og 9 dagar í
bændaför. Það, sem á vantar, eru ferðir í sambandi við
val á fé til stofnræktarbúa, dagsferðalög með erlendum
gestum, beimsóknir í nærsveitir og að Hesti í Borgar-
firði. En þar bef ég aðstoðað Halldór Pálsson eins og
undanfarið við kjötmælingar og ýmis vísindastörf um
vikutíma af árinu.
Skrifstofan
Þar hefir starfið verið með svipuðum liætti og næstliðin
ár, bréfaskriftir, persónulegar viðræður og símtöl. Stað-
festar samþykktir sauðfjárræktarfélaga, reiknuð út ríkis-
framlög til sauðfjárræktarbúa, sauðfjárræktarfélaga, af-
kvæmarannsóknastöðva, sæðingarstöðva og geitfjárrækt-
ar. Einnig liafa verið yfirfarin ýmis erindi frá landbúnað-
arráðuneytinu, sem send bafa verið Búnaðarfélagi Islands
til umsagnar.
Ég skrifaði, auk starfsskýrslu, þrjár greinar í 78. árg.
Búnaðarritsins, um sauðfjárræktarfélögin 1962—1963,
lirútasýningar 1964 og afkvæmasýningar 1964, og grein
um fóðurþörf sauðfjár í Handbók bænda 1966. Auk þess
bef ég skrifað fréttatilkynningar fyrir blöð og útvarp og
smágrein í Frey. Hef undirbúið til prentunar og ljós-
prentunar skýrsluform sauðfjárræktarinnar. Einnig hef
ég leiðbeint um heppilega fóðurblöndu fyrir sauðfé.
Að beiðni Framleiðsluráðs landbúnaðarins vann ég,
ásamt Hjalta Gestssyni, að atliugun á verðhlutfalli sauð-