Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 104
98
BÚNAÐAItRIT
fóður hefur reynzt of mistækt, svo að varp hefur fallið
niður í lengri eða skemmri tíina. Það er ástæðulaust og
rangt að flytja inn alifugla- og svínafóðurblöndur, ]>ví að
við framleiðum í landinu sjálfu 30—40% af því fóðri,
sem þarf til að gera þessar blöndur úr. Mér fannst sjálf-
sagt að hefja leit að ástæðunum fyrir umkvörtunum
framleiðenda yfir innlendum fóðurblöndum, en menn
voru lielzt þeirrar skoðunar, að kæruleysi og óvandvirkni
í blöndunarstöðvunum væri orsökin fyrir þessu. Mistök
geta átt sér stað við blöndun, en ég komst að raun um, að
þessi fyrirtæki liafa mikinn og góðan vilja til að blanda
góðar og réttar blöndur og tryggja nákvæma og rétta
samsetningu, enda er ljóst mál, að vörugæði eru grund-
vallarskilyrði fyrir þessum viðskiptum; einnig er hér
um að ræða barða samkeppni.
Enn má geta þess, að eitt brýnasta umbótamál fyrir
alifugla- og svínarækt er vel framkvæmdur og árlegur
innflutningur á útungunareggjum af kynbættum stofnum
til að framleiða liér varphænur í bezta flokki og innflutn-
ingur á svínasæði úr kynbættum erlendum stofnum.
Strax og opnast möguleikar fyrir þessum innflutningi,
mun ég liefjast banda um það mál.
2. Hrossaútflutningur
Nokkru færri liross voru flutt út á árinu en næsta ár á
undan, eða innan við 300. Þessi verzlun er erfið, bæði
vegna barðnandi samkeppni frá Bretlandseyjum og
hækkandi verðlags hér innanlands, sem bætist við fyrri
örðugleika, sem stafa af óhagstæðum lögum um i'itflutn-
ing brossa og mjög örðugum aðstæðum til flutninga og
tímatakmörkunum. Bretar leggja mikla áberzlu á að
keppa við okkur á smáhestamarkaði meginlandsins. Út-
flytjendur þeirra búa við bagstæð lagaákvæði, enga
tímatakmörkun og auðvelda og ódýra flutninga. Aðalat-
riðið og það, sem veldur gæfumuninum, er, að Bretar og