Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 114
108
BÚNAÐARRIT
endur. Sem liður í því lilutverki var útgáfa okkar að
kvikmyndinni BÚ ER LANDSTÓLPI, sem kom út í
enskri útgáfu á árinu og var send til 11 landa, með milli-
göngu utanríkisráðuneytisins, og hin danska útgáfa mynd-
arinnar þar að auki til þriggja landa. Eru sendiráðin
þeir aðilar, sem greiða fyrir kynningu á Islandi með láni
myndarinnar til skóla og stofnana til sýninga.
1 þessu sambandi skal þess getið, að í framlialdi af út-
gáfu umræddrar kvikmyndar samdi danska menntamála-
ráðuneytið við Teknisk Film Central um að kvikmynda
á Islandi aðra atvinnuvegi þjóðarinnar, svo og nokkuð
i'ir jarðfræði íslands, til framleiðslu kennslukvikmynda.
Á vegum þess komu kvikmyndatökumenn liingað tvisvar
á síðasta sumri, og var ég þeim til aðstoðar, fyrirgreiðslu
og fylgdar, eftir því sem tök og tími leyfði.
Þá liefur verið um það rætt að gera kvikmynd af lax-
og silungsveiði á Islandi og því, er þar að lýtur. Var tæki-
færið notað til þess að liefja upptöku þessa efnis á filmu
í sumar.
3. Kvikmyndasafiiið telur nú um 100 myndir. Voru á
árinu keyptar 6 nýjar myndir, og þar að auki var aðstoð
veitt til útvegunar kvikmynda til notkunar hjá Skógrækt
ríkisins, og 5 myndir fyrir Kvenfélagasamband Islands.
Útlán kvikmynda fer stöðngt fram eins og um er beðið;
nýjustu myndirnar eru alltaf mest eftirsótlar, og er stund-
um biðlisti við afgreiðslu þeirra. Vissir liéraðsráðunaut-
ar nota kvikmyndir í verulegum mæli, aðrir aldrei eða
mjög sjaldan. Meðal allra menntaþjóða eru skuggamynd-
ir og kvikmyndir annars þau lijálpargögn, sein mesta liylli
liafa í allri upplýsingaþjónustu, og svo lilýtur einnig að
verða hér, þegar viðeigandi hjálpartæki verða í eigu
þeirra aðila, sem að upplýsingunum standa. Þyrfti hvert
búnaðarsamband að eiga sýningarvélar bæði fyrir kvik-
myndir og skuggamyndir, til afnota fyrir starfsmenn
sína.