Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 124
118
BÚNAÐARRIT
til Austurlands, en fullan helming af nefndu lieymagni
var þá búið að flytja á áfangastaði, eða samtals um 1600
lestir. Skortur á hentugum skipakosti hefur tafið athafnir
á þessu sviði.
Vonir standa til, að umrætt heymagn, þ.e. um 1,5 millj-
ón fóðureiningar, verði allt komið til viðtakenda fyrstu
mánuði ársins 1966, eða fyrir vorið, og þá jafnóðum og
það verður notað.
Er liér uni að ræða þá langsamlega umfangsmestu hey-
flutninga, sem getur hér á landi, en þeir eru nauðsynlegir
til þ ess að afstýra þeirri vá, sem annars hefði beðið við
dyr búenda austanlands.
6. Önnur störf
Auk þess, sem að framan er frá greint, lief ég annazt sitt
af hverju, sem að berst frá degi til dags eða er fyrirfram
skipulagt.
Til þess telst eftirfarandi:
1. Með vaxandi ferðum útlendinga hingað til lands
koma við og við þeir, sem vilja kynnast landbúnaðarmál-
um okkar og atliöfnum. Er þá eðlilegt, að þeir leiti til
Búnaðarfélags Islands um fyrirgreiðslu, og hef ég þess
vegna aðstoðað aðila frá ýmsum löndum. Umfangsmest
var þó för með grænlenzka landsráðsmenn, sem hér
dvöldu um hálfs mánaðar skeið til að kynnast atvinnu-
liáttum okkar. Fór ég með þá um Borgarfjörð, Húnaþing,
Skagafjörð og Eyjafjörð til Akureyrar, en þar tóku aðrir
við, og sunnanlands höfðu þeir aðra leiðsögumenn. Varði
ég viku vegna þeirra, en hálfum mánuði samtals lil fylgd-
ar við útlendinga.
2. Fyrir tilmæli ýmissa bænda var hlutazt til um
bændaför til Damnerkur og Noregs á tímabilinu 26. júní
til 5. júlí. Var mér falin skipulagning þeirrar farar svo