Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 141
BÚNAÐARÞING
135
þessarar aldar og var í stjórn Rauðalækjarrjómabúsins
frá 1916 og formaður þess frá 1918—’29, er það var lagt
niður.
Eitt sérstakt verk lét hann vinna fyrir eigið fé, sveit
sinni til gagns og sæmdar, en það er, að liann lét kvik-
mynda allt fólk og alla bæi í Ásabreppi. Mun ]>að reyn-
ast góð, söguleg lieimild um Ásahrepp, fyrir seinni tíma
menn.
Guðjón í Ási var sannur fulltrúi allra þeirra manna í
íslenzkri bændastétt, sem alltaf eru reiðubúnir að fórna
bæði fé og tíma fyrir félagsmálastörf til liagsældar og
menningar stétt sinni.
Guðjón var göfugur maður, bógvær og hjartabreinn,
grandvar lil orðs og æðis. Hann var traustur bóndi, meðal
bænda vann hann sitt ágæta ævistarf, og þekkti út í æsar
kjör þeirra og þarfir. Fyrir allt þetta bar honum virðing
þeirra og þökk. Búnaðarfélag Islands kaus hann heiðurs-
félaga sinn á áttræðisafmæli hans. Með því vildi það votta
honum virðingu sína og þakklæti fyrir gagnmerkt ævi-
starf. Hann var einnig heiðursfélagi Sláturfélags Suður-
lands og Ungmennafélags Ásahrepps.
Á seinni árum ævi sinnar sinnti Guðjón í Ási nokkuð
ritstörfum. Má ]>ar nefna þessi rit: Um örnefni, Göngur og
aukaleitir á Holtamannaafrétti, birtist í Göngur og réttir,
I. IV. og V. bindi, og Um ey&ibýli í Holtamannahreppi.
Guðjón var sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar. Ilann
var kvæntur Ingiríöi Eiríksdóttur, bónda á Minni-Völlum
á Landi. Ilann andaðist 2. júní 1965.
Þórólfur Guðjónsson, bóndi í Innri-Fagradal, fædd-
ist 21. ágúst 1892 að Hafnarhólmi á Selströnd í Stranda-
sýslu. Foreldrar lians voru Guðjón Sigurðsson frá Skelja-
vík og kona hans, Ingibjörg Þórólfsdóttir frá Hrófá. Þau
bjuggu lcngst á Þiðriksvölhim í Sunnudal. Þórólfur ólst
upp hjá foreldrum sínum, og gekk til allra venjulegra