Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 162
156
BÚNAÐARRIT
samkvæmt reglum, sem sýslunefnd eða bæjarstjórn hef-
ur samþykkt þar um, enda samþykki ráðherra slíka ráð-
stöfun, að fengnu áliti bjargráðastjórnar. Skýrslu um út-
hlutun þessa skal viðkomandi sýslunefnd eða bæjarstjórn
senda stjórn Bjargráðasjóðs þegar að úthlutun lokinni.
Ef haustbirgðir reynast svo litlar í einliverju béraði, að
hætta er á bjargarskorti fyrir menn og skepnur, ef illa
vetrar, þá má sýslunefnd eða bæjarstjórn með samþykki
bjargráðastjórnar nota séreign sína í sjóðnum til að kaupa
eða tryggja varaforða, en það fé, sem þannig er notað,
skal greiða aftur að fullu, en vaxtalaust, í Bjargráðasjóð-
inn á ársfresti, nema því verði ráðstafað samkvæmt 1.
málsgr. þessarar greinar.
H. gr.
Bjargráðastjórn er heimilt:
a. að veita sveitarfélögum og sýslufélögum lán eða styrk
eða livort tveggja úr sameignarsjóði, ef um er að ræða
hallæri í sveitarfélaginu eða sýslunni vegna óvenju-
legra harðinda, langvarandi aflaleysis eða vegna tjóns
af náttúruvöldum á mannvirkjum eða búfé, enda hafi
ekki verið vátryggt fyrir tjóninu.
b. að veita einstaklingum, sem fyrir tjóni bafa orðiö af
náttúruvöldum, lán eða styrk eða livort tveggja, úr
sameignarsjóði, enda liafi ekki verið vátryggt fyrir
tjóninu. Lán skal tryggt með ábyrgð sveitarfélags
eða annarri öruggri tryggingu.
Ef bandbært fé sameignardeildar verður mcira cn ætla
iná nauðsynlegt til greiðslu lána eða styrkja, samkvæmt
a- og b-lið þessarar greinar, er stjórn sjóðsins lieimilt
að veita sveitarfélögum eða fyrirtækjuin þeirra og sýslu-
félögum lán gegn ábyrgð ríkissjcðs eða annarri öruggri
tryggingu.
12. gr.
Bjargráðastjórn er heimilt að veita bændum lán eða