Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 174
168
BUNAÐARRIT
urkúm til að fá úr því skorið, liversu mikið eggjahvítu-
magn sé hagkvæmt að liafa í kjarnfóðri svo og um það,
liver áhrif verulegt magn grasmjöls í fóðurblöndu kunni
að liafa á þrif og afuröamagn gripanna.
Ennfremur að kanna, hvaða þýðingu þvagefni kynni
að hafa í fóðri hámjólka kúa.“
Mál nr. 16
Tillaga til þingsályktunar um rannsúknir á nýjum bú-
greinum. Frá Gunnari Bjarnasyni.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt
var með 23 samhlj. atkv.:
Þar sem komið liefur í ljós hin síðari ár, að framleiðsla
landbúnaðarina er ekki nægilega fjölbreytt, beinir Bún-
aðarþing því til búnaðarnefndarinnar, sem enn er að
störfum, að rannsaka möguleika á nýjum, hagnýtum hú-
greinum.
Æskilegt er, að nefndin skili áliti fyrir næsta Bún-
aðarþing.
GreinargerS:
Jarðræktarnefndin liefir athugað tillögu lil þingsálykt-
unar frá Gunnari Bjarnasyni, ráðunaut, um rannsókn á
nýjum búgreinum.
Nefndin telur nauðsynlegt, að gera íslenzka landbún-
aðarframleiðslu fjölbreyttari en hún er nú.
Æskilegt væri, að fært reyndist að taka upp fram-
leiðslugreinar, sem gæfu framleiðendum liagstæðara
verð á erlendum markaði en afurðir nautgripa og sauð-
fjár gefa nú.
Bendir ráðunauturinn á, að til greina geti komið eldi
á mink, ræktun Chinchilla, kanínurækt o. fl. Einnig
mætti benda á aukna fiskirækt. Þá er aukin holdanauta-
rækt mál, sem þarf athugana og rannsókna við, en það