Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 179
BÚNAÐARÞINC
173
Búnaðarþing ítrekar enn á ný fyrri ályktanir sínar um
nauðsyn þess, að lokið verði rafvæðingu alls landsins.
Búnaðarþing skorar á raforkuráð að ljúka áætlunar-
gerð um framkvæmdir, sem miði að því, að þessu marki
verði náð árið 1970.
Jafnframt skorar þingið á raforkumálaráðlierra að
beita sér fyrir hækkuðum fjárveitingum til þessa verks,
svo framangreindu marki verði náð.
Þá undirstrikar þingið réttmæti þess, að raforkuverð
verði hið sama um laiul allt og skorar á Alþingi að setja
lög um það efni.
GreinargerS:
Talið er, að 97% landsmannna hafi nú not af raforku.
Þau 3%, sem ekki hafa not af raforku, búa í sveitum.
Það eru um 6000 mannns, sem eiga heimili á um 1000
bæjum.
Talið er lijá raforkumálaskrifstofunni, að byggð sveila-
býli séu um 5150 talsins. Vera má, að þau séu nokkru
fleiri. Af þeim hafa 3160 fengið rafmagn frá almennings-
orkuveitum. Talið er, að um 340 býli liafi einkavatns-
aflstöðvar og 760 býli dísilstöðvar til heimilisnota eða
alls séu einkastöðvar á um 1100 býhim. Rafvædd hýli
eru því alls 4260. Allmikið af einkarafstöðvum eru smáar
og ófullkomnar og framleiða aðeins rafmagn til ljósa,
en fullnægja á engan hátt þörfum lieimilanna til aflvéla-
notkunar. Mikill meiri hluti þeirra lilýtur því að hverfa
úr notkun, strax og kostur er á öðru fullkomnara raf-
magni.
Gera verður því ráð fyrir, að eftir sé að bæta úr fram-
tíðar raforkuþörf allt að 2000 býla.
Nauðsynlegt er, að lokið verði gerð allsherjar rafvæð-
ingaráætlunar, þar sem skorið verði úr um það, livaða
hýli og hve mörg muni eiga kost á rafmagni frá almenn-
ingsorkuveitum. Þá hlýtur að verða að taka tillit til að-
stöðu og staðsetningar hýla og meta liana. Búnaðarþing