Búnaðarrit - 01.01.1966, Síða 188
182
BUNAÐARKIT
Vegna óska margra bænda í Hrunaniannahreppi og
víðar á Suðurlandi leyfi ég undirritaður inér hér með að
skora á Búnaðarfélag Islands og Búnaðarþing að reyna
eftir mætti að koma í veg fyrir, að aukaskattur verði
lagður á fóðurvörur.
Erindi þessu fylgdi greinargerð.
Máli þessu var vísað frá með eftirfarandi dagskrártil-
lögu Gunnars Guðbjartssonar, sem samþykkt var með 14
atkvæðum gegn 10:
Á undanfömum árum hefur verðbólguþróun skert stórlega mögu-
leika íslenzks landhúnaðar til að keppa um sölu á erlcndum mörk-
uðum.
Sainhliða þessari óheillaþróun hefur framleiðsla mjólkur í land-
inu auki/.t mun ineira en neniur aukningu á neyzlu hennar innan-
lauds. Af þcssum sökum þarf að flytja á crlendan niarkað í vaxandi
mæli vinnsluvörur úr mjólk fyrir mjög óhugstætt verð. Ljóst er
nú, að á yfirstundandi verðlagsári duga útflutningsuppbætur þær,
sem ríkið greiðir skv. 12. gr. framleiðsluráðslaganna ekki til þess
að tryggja bændum fullt grundvallarverð. Vantar 70—100 milljónir
króna á, að svo geti orðið. Þessi skerðing á afurðaverði mun koma
ákaflega misjafnt á hændur, sé ekkcrt að gert. Væri framleiðslan,
sem er umfram innanlandsuotkun, að meirihluta til sauðfjárafurðir,
væri þó enn Iiægt að tryggja bændum fullt grundvallarverð fyrir
allu vöruna. Hér þarf því að gera skipulagsbreytingu í fram-
leiðsluháttum, og nauðsynlegt er að finna leið eða leiðir, sem gera
hændum kleift að framkvæma hana.
Mál það, sem um ræðir á þskj. 34, hefur komið til álita sem
einn þáttur af mörgum í þessu vandasama, en þýðingarmikla máli,
og þar sem enn cr óséð, liverja leið verður liægast að fara, og þessi
skipulagsinál lieyra að lögum til verkefna Frainleiðsluráðs land-
húnaðarins og vitað er, að það cr að atliuga og meta leiðir þær, sem
lil greina koma, og í trausti þess, að Framlciðsluráð geri allt, sem
liægt er, til að fá hagræðingarfé frá ríkissjóði, til að koina á þeirri
skipulagshreytingu, sem nauðsynleg er, vísar Búnuðarþing þessu
máli frá og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.
Mál nr. 31
Frumvarp til laga um afréttarmálefni, fjallskil og fl.
Sent af landbúnaSarráSuneytinu.