Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 203
BÚNAÐARÞING
197
Loks skal getið stærsta og þýðingarmesta aðilans í
lirossaræktinni í landinn, þess aðila, sem mesta ábyrgð
liefur borið í þessu máli og lengst og af mestri alúð liefir
að brossarækt unnið, Búnaðarfélags Islands.
Þó að allt bendi til, að núverandi ráðunautur í brossa-
rækt liafi starfað meira en segja mætti, að honum bæri,
svo sem sést á ferðakostnaði hans, verður ekki í þessari
búgrein fremur en öðrum vel unnið, fyrr en ráðunaut-
urinn gefur sig að starfinu að fullu og komin er á fót
og starfrækt afkvæmarannsóknar- og tamningastöð á-
samt ríkisskóla, þar sem kennd yrði meðliöndlun liesta
í öllum greinum. Góðan, sterkan vilja þarf til að koma
slíkum athöfnum fram í þágu hrossaræktarinnar, en þeg-
ar svo væri orðið og árangur þess starfs kæmi í ljós, yrði
hesturinn okkar sá kjörgripur og öðlingur í íslenzku þjóð-
lífi, sem fáir sjá ljóslega nú, þrátt fyrir þá miklu aðdáun,
sem hann liefir þegar lilotið.
Ályktun þessi var samþykkt með 23 samhlj. atkv.
Mál nr. 44
Breyting á eignarhlutföllum í Bœndahöllinni.
Lagðar voru fram eftirfarandi 5 tillögur og ályktanir:
Þskj. nr. 88
Breyting á eignarlilutföllum í Bændahöllinni. Frá minni
hluta stjórnar Búnaöarfélags íslands.
Á fundi stjórnar Búnaðarfélags Islands 11. þ. m. voru
til umræðu og ályktunar breytingar á eignarhlutföllum
í Bændahöllinni samkvæmt ósk Stéttarsambands bænda.
Á fundinum lýsti meirihluti stjórnarinnar, þeir Pétur
Ottesen og Gunnar Þórðarson, því yfir, að þeir féllust á
kröfu Stéttarsambandsins urn að eignarhlutföllum verði
breytt þannig, að eignarhlutur Búnaðarfélags Islands