Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 218
212
BÚNAÐARRIT
nota. Bændur eiga þó að sjálfsögðu að liafa það liugfast
að framleiða sjálfir sem allra mest af fóðurþörf búfjár-
ins, en nota sem minnst af aðkeyptu fóðri. Slíkt verður
aldrei gert nema með því að nota mikinn tilbúinn áburð.
Áburðurinn er orðinn ískyggilega hár útgjaldaliður í bú-
skapnum, og þarf því að gæta hagsýni í notkun hans og
hagnýta þá þekkingu um áburðarnotkun, sem fyrir liendi
cr. Eiga bændur, með milligöngu jarðræktarráðunauta
Búnaðarfélags Islands og liéraðsráðunauta, að notfæra
sér þá möguleika, sem fyrir liendi eru lijá Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins í Reykjavík og lijá Rannsóknar-
stofu Ræktunarfélags Norðurlands á Akureyri, til þess
að láta rannsaka áburðarþörf túna sinna og garðlanda.
Heildarnotkun tilbúins áburðar undanfarin 4 ár hefur
verið:
1965 1964 1965 1962
Smál. Smál. Smál. Smál.
Köfnunarefni hreint N . . 10.175 10.018 9.552 8.998
Fosfatáburður Po O5 ... . 5.702 5.100 4.709 4.322
Kalíáburður K» O 3.313 3.186 2.933 2.500
Á árinu 1965 var notaður 1,5% meiri köfnunarefnis-
áburður, 11,8% meiri fosfatáburður og 4,0% meiri kalí-
áburður en árið 1964.
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi framleiddi á árinu
1965 24.300 smálestir af Kjarna. Af innfluttum áburði
seldi Áburðarsalan 11.530 smálestir af nitrofosfati, hinu
svonefnda (20-20), en það er áburður, sem inniheldur 20%
köfnunarefni og 20% fosfórsýru, ennfremur seldi Áburð-
arsalan 3.439 smálestir af nitrofosfati (25-15), þ. e. áburði,
sem innilieldur 25% köfnunarefni og 15% fosfórsýru. Þá
seldi Áburðarsalan 951 smálest af kalksaltpétri, 5444 smá-
lestir af þrífosfati, 5614 lestir af kolsúru kalí, 153 lestir
af brennisteinssúru kalí, 3067 lestir af garðaáburði og 550
lestir af ýmsum öðrum tegundum áburðar. Því miður
liækkaði verð á tilbúnum áburði til bænda tilfinnanlega