Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 221
LANDBÚNAÐURINN 215
1965 1964
Tómatar .................... 313 smál. 322 smál.
Gúrkur ..................... 416 þús. stk. 445 þús. stk.
Hvítkál .................... 260 smál. 168 sniál.
Blómkál ..................... 77 þús. stk. 65 þús. stk.
Gulrætur ................... 130 smál. 102 smál.
Nokkurt magn af öðrum tegundum grænmetis var rækt-
að til sölu. Má þar nefna grænkál, rauðkál, salat, stein-
selju, lireðkur, seljurót, blaðlauk, spergilkál, melónur,
næpur, pipar, toppkál og rósakál.
Báfjáreign og framlei&sla búfjárafurSa. Tala búfjár
í ársbyrjun 1965 var sem hér segir, samkvæmt niðurstöð-
um forðagæzluskýrslna: Nautgripir 59.751, þar af 41.464
kýr og 6.210 kvígur, 1 y2 árs og eldri, sauðfé var 761.927,
þar af 631.452 ær, og liross 30.727. Á árinu fjölgaði naut-
gripum um 4,4%, sauðfé um 3,5% og brossum um 4%.
Mjólkurframleiðslan á árinu 1965, þ. e. innvegin mjólk
til mjólkursamlaganna, var 106.515.266 kg eða um 6%
meiri en árið 1964. Aftur á móti nam aukning mjólkur-
sölu á sama tíma tæpum 2%. Jókst því mjólkurfram-
leiðslan nokkru meira en æskilegt má teljast. Samkvæmt
upplýsingum frá Framleiðsluráði landbúnaðarins var
slátrað í sláturbúsum liaustið 1965 alls 772.505 kindum,
718.228 lömbum og 54.277 fullorðnum kindum. Er það
85.741 kind fleira en 1964. Heildarmagn kindakjöts, sem
barst til sláturbúsanna 1965, var um 11.361.922 kg eða um
I. 209.562 kg meira en 1964. Nemur þessi aukning um
II, 5%.
Dilkar voru víðast livar vænir. Á landinu í beild reynd-
ust þeir liafa 14,27 kg meðalfall eða 0,14 kg léttara en
haustið 1964. Á flestuin sláturstöðum var fallþungi lamba
mjög svipaður og liaustið 1964. Mestu munaði á Blöndu-
ósi. Þar reyndust dilkar bafa 0,61 kg léttara meðalfall
1965 en 1964.
Framkvœmdir og fjárfesting. Enn liggja ekki fyrir end-
anlegar skýrslur um framkvæmdir bænda á árinu 1965.