Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 256
250
BÚNAÐARRIT
Þegar loft er kyrrt, verður náttfall meira, ef önnur
veðurfræðileg skilyrði fyrir daggarmyndun eru fyrir
hendi. Ymsir sérfræðingar hafa með mælingum á ber-
svæði við vindskjólsmannvirki og með hagnýtum tilraun-
um bent á mismun náttfallsins og fundið, að aukningin
á daggarmyndun í skjóli nær ahnennt 10 til 12. h og
nemur allt að 100%.
Af framangreindum athugunum má draga eftirfarandi
ályktanir: Verkanir vindskjólsins á veðurfar verða bein-
línis til við það, að vindstraumurinn minnkar, og við
minnkun hraðans verður röð af breytingum á áhrifasvæði
skjólbeltanna sem óbein afleiðing. Þær leiða venjulega
til úrkomuauka, til liægari lireyfingar jarðvatnsins, til
minnkandi uppgufunarliraða, aukins náttfalls og varma-
söfnunar í jarðvegi. Breytingarnar geta einnig komið í
Ijós með aukningu liita og raka í liinu jarðlæga lofti.
Margra vikna mælingar H. Kaisers hlémegin við 2,5 m
liáa kokostrefjaskjólgirðingu sýndu eftirfarandi raunhæf-
ar niðurstöður: Minnkun vindliraðans í %. til ]/* li yfir
jörðu um 30%, aukningu jarðrakans í 0 til 40 cm dýpi
allt að 11%, jarðhitans í 10 til 50 cm dýpi um 0,3° til 0,5°
og jarðvegslágmarks loftliitans að næturlagi um 0,1 til
0,3° C. Hér er um meðallagstölur að ræða, er ná út yfir
breidd, sem nemur 15-faldri liæð liindrunarinnar. Þessar
tölulegu niðurstöður sýna augljóslega liin hagstæðu áhrif
vindskjóls á veðurfar jarðvegsins.
7. Áhrif skjólbeltaveðurfars
Hagnýt áhrif skjólbeltaveðurfars eru margþætt. Almennt
er sannað, að gróðrai-máttur jarðar öðlast betri veður-
farsleg skilyrði í líffræðilegu tilliti, er leiða til betri vaxt-
ar, og uppskeran verður meiri eu á óskýldum ökrum.
Þetta sýna fjölmargar uppskerumælingar, sem liggja fyrir
frá ýmsum löndum. Línuritið á 20. mynd sýnir meðalarð