Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.01.2010, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 16.01.2010, Qupperneq 2
2 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR FANGELSISMÁL Í fangelsum hér á landi sitja í dag ellefu erlendir fangar með þyngri dóma en tveggja ára fangelsi. Unnið er að flutningi tveggja fanganna til afplánunar í föðurlandi sínu og hjá Útlendinga- sofnun er nú unnið að brottvísun sex til viðbótar. Þrír af þessum ell- efu munu ekki afplána í föðurlandi sínu þar sem þeim hefur ekki verið vísað úr landi. Þetta segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra, spurð um flutning erlendra fanga héðan til afplánunar í föðurlandinu. „Ljóst er að flutningur fanga til afplánunar í heimalandi sínu er ekki raunhæft úrræði til að tak- ast á við þann vanda sem fangels- iskerfið á við að etja þar sem ferl- ið er mjög langt og þungt í vöfum,“ segir dómsmálaráðherra. Þarna gildir einu þótt dómsmálaráðherr- ar Íslands og Litháens hafi 2008 gert með sér samkomulag um að veita beiðnum á grundvelli Evrópu- ráðssamningsins forgang þannig að þær yrðu afgreiddar eins fljótt og kostur væri. „Einungis er hægt að flytja fanga sem hlotið hafa þunga dóma, til dæmis tveggja til þriggja ára dóma eða þyngri,“ segir ráðherra. Ástæða þess er meðal annars að sjálft undirbúningsferlið hér á landi tekur langan tíma. Flestir fanganna vilja ekki afplána í sínu heimalandi og því þarf að liggja fyrir brottvísunarúrskurður áður en ákveðið er að senda beiðni til föðurlands fangans, að sögn Rögnu. Mál erlendra afbrotamanna eru tekin fyrir hjá Útlendingastofnun þegar fullnaðardómur hefur gengið í máli þeirra. Ákvörðun Útlend- ingastofnunar er síðan hægt að kæra til dómsmálaráðuneytisins. „Þegar endanleg ákvörðun ligg- ur fyrir um brottvísun er hægt að senda dóma og önnur nauðsynleg gögn í þýðingu,“ útskýrir Ragna. „Þá þarf að afla afstöðu fangans en samkvæmt núgildandi samn- ingi þarf að gera sérstaklega grein fyrir afstöðu þeirra til flutnings í beiðninni til heimalandsins. Þegar hægt er að senda út beiðni er fang- inn búinn að afplána nokkra mán- uði, jafnvel ár í gæsluvarðhaldi auk nokkurra mánaða sem brottvísun- arferlið og annað undirbúningsferli tekur. Þá setur gildandi samningur það að skilyrði að að minnsta kosti sex mánuðir séu eftir af afplánun viðkomandi fanga.“ Aðspurð segir Ragna að rætt hafi verið að freista þess að gera svipað samkomulag og gert var við Litháen við önnur ríki sem erlendir brotamenn koma frá. jss@frettabladid.is FANGELSI Ellefu erlendir fangar með meira en tveggja ára fangelsisdóm afplána nú í fangelsum landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Unnið að sendingu átta fanga úr landi Dómsmálaráðuneytið vinnur að því að senda átta fanga héðan til afplánunar í föðurlandi sínu. Beðið er eftir ákvörðun um brottvísun sex þeirra. Tveir fara sjálfviljugir. Ellefu erlendir fangar eru með þyngri dóm en tveggja ára fangelsi. FJÖLDI FANGA Afplánun 118 Íslendingar 103 Útlendingar 15 Gæsluvarðhald 26 Íslendingar 13 Útlendingar 13 Einangrun 8 Íslendingar 3 Útlendingar 5 Heimild: Fangelsismálastofnun Birna, eru þetta þessir læknar án landamæra? „Nei, þessir eru ekki bara án landa- mæra, heldur líka lausir við hlekki hugans!“ Könnun Læknafélags Íslands gefur vísbendingar um að þriðjungur lækna í sérnámi erlendis ætli ekki endilega að koma heim að loknu námi. Áður sneru þeir flestir heim. Birna Jónsdóttir er formaður Læknafélagsins. SKÓLAMÁL Ekki er lengur pláss fyrir öll leikskólabörn í skóla- bílnum á Ströndum og hefur verið ákveðið að börn frá tveimur bæjum skiptist á um að fá far með bílnum. Samkvæmt samkomu- lagi sem sveitarfélagið Stranda- byggð náði við alla foreldra fá börnin frá bæjunum Miðhúsum far með skólabílnum daglega en barn frá Heydalsá og barn frá Tröllatungu skiptast á um að nota skólabílinn. Þannig fái barnið frá Heydalsá að nota skólabílinn aðra vikuna og barnið frá Tröllatungu vikuna á móti. Einn sveitarstjórn- armaður lét bóka að hann væri ósáttur við fyrirkomulagið því það mismunaði börnum. - gar Leikskólabörn á Ströndum: Skólabíll tekur ekki öll börnin LISTIR Vinkonurnar Anna Ingólfs- dóttir og Elísabet Brynhildar- dóttir áttu saman þær tillögur sem lentu í þremur efstu sætum í forsíðusamkeppni Símaskrárinn- ar. Þema keppninnar var „Ísland í jákvæðu ljósi.“ Um 1.530 tillögur í keppnina en skilafrestur rann út 1. desember síðastliðinn. Fimm manna dóm- nefnd valdi þær þrjár tillögur sem henni þóttu bestar auk þess sem almenningi gafst kostur á að veita álit sitt á þeim í netkosn- ingu. Dómnefndin hafði enga vitneskju um nöfn höfunda fyrr en að vali loknu. Vinkonurnar skipta með sér verðlaunafénu öllu, samtals einni milljón króna sem afhent var í gær, auk heiðursins sem í því felst að fá verkið prentað framan á 150 þúsund símaskrár. - jab Keppni um forsíðu Símaskrár: Vinkonur tóku öll verðlaunin VINKONURNAR Anna og Elísabet fá eina milljón króna fyrir að eiga þrjár bestu tillögurnar um forsíðu nýjustu Símaskrárinnar. EFNAHAGSMÁL Skuldatryggingar- álag hækkaði á fimmtudag eftir að hafa staðið í stað um skamma hríð í rúmlega 500 punktum og hækkaði upp í rúmlega 540 punkta. Í Morgunkorni Íslands- banka er hækkunin tengd yfirlýs- ingum Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjald- eyrissjóðsins, (AGS) og Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Sví- þjóðar, en af orðum þess fyrr- nefnda mátti skilja að aðgerðar- áætlun sjóðsins og stjórnvalda kunni að tefjast á meðan óvissa er um afdrif Icesave. Reinfeldt sagði í samtali við Reuters að Svíar myndu ekki lána Íslendingum fyrr en AGS hefði endurskoðað áætlun sína. Strauss-Kahn sagði á blaða- mannafundi á fimmtudag að hann skildi að Íslendingum þætti ósann- gjarnt að þurfa að taka á sig byrð- ar vegna gerða Landsbankans. „Á hinn bóginn hafa lönd alþjóðleg- ar skuldbindingar og þeir verða að skilja að Ísland, sem sjálfstætt ríki, getur ekki verið undanskil- ið því sem fjármálageiri þess orsakaði.“ Ekki var búið að ákveða dagsetn- ingu fyrir endurskoðun áætlunar- innar, en reiknað var með að hún færi fram í janúar. Gylfi Magnús- son viðskiptaráðherra sagði í sam- tali við Fréttablaðið á miðvikudag að alls óvíst væri að svo gæti orðið. Stjórnvöld ynnu að því hörðum höndum að svo gæti orðið. - kóp Óljóst hvenær endurskoðun efnahagsáætlunar AGS fer fram: Skuldatryggingarálag hækkar STRAUSS-KAHN Framkvæmdastjóri AGS segir að Ísland geti ekki verið undanskil- ið því sem fjármálageiri þess orsakaði. NORDICPHOTOS/AFP EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Evrópu ákvað í vikunni að stýrivöxtum yrði haldið í einu prósentustigi. Stýrivextir voru færðir niður í eitt prósent í maí í fyrra og hafa þeir aldrei verið lægri. Bandaríska stórblaðið New York Times segir vaxtaákvörð- unina sýna að aðildarríki mynt- bandalagsins glími enn við að koma efnahagskerfinu upp úr kreppunni. Ekki megi útiloka að bankinn grípi til aðhaldsaðgerða á seinni hluta árs til að halda verðbólgudraugnum frá og hækki stýrivexti. - jab Óbreyttir vextir á evrusvæði: Hækkun hugs- anleg á árinu JEAN-CLAUDE TRICHET Bankastjóri Seðlabanka Evrópu. Sjóvá til sölu Sjóvá-Almennar tryggingar verða settar í söluferli á mánudag af fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka. Öllum áhugasömum fjárfestum, sem geta sýnt fram á eignastöðu umfram fimm hundruð milljónir, gefst kostur á að bjóða í allt að hundrað prósent hlutafjárins. Fyrirvari er þó settur um samkeppnisreglur og samþykki Fjármálaeftirlitsins. VIÐSKIPTI LÖGREGLUMÁL Tveir karlmenn um fertugt voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 21. janúar, grun- aðir um að hafa staðið að innflutn- ingi á þremur til fjórum kílóum af fíkniefnum. Um er að ræða hvítt efni, en ekki fékkst staðfest í gær hvort um amfetamín eða kókaín væri að ræða. Efnin voru flutt með vöruflutn- ingaskipi frá Samskipum en annar maðurinn starfar hjá fyrirtækinu. Skipið kom hingað frá Árósum í Danmörku á miðvikudaginn en skip Samskipa koma við í mörgum höfnum áður og ekki er upplýst hvar efnin eru talin hafa verið sett um borð. - jss Starfsmaður Samskipa í haldi: Grunaður um fíkniefnasmygl STJÓRNMÁL Forystumenn ríkisstjórnarinnar vonast eftir viðbrögðum Breta og Hollendinga við þreif- ingum um nýjar samningaviðræður um Icesave á næstu dögum, jafnvel á morgun. „Jóhanna hefur talað um fyrri hluta næstu viku, það er orðalagið sem hún hefur notað,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Heimildir innan stjórnarráðsins vildu þó ekki stað- festa þetta. Á fundi oddvita stjórnmálaaflanna í Stjórnarráð- inu í gær var reynt að ná samkomulagi um áfram- hald Icesave-umræðna. Meðal annars var rætt um skipan þverpólitískrar samráðsnefndar, kæmi til nýrra viðræðna við Breta og Hollendinga. Sú nefnd hefði meðal annars sam- ráð um hvernig yrði skipað í hugsanlega viðræðu- nefnd. Einnig bar á góma hver markmið Íslands ættu að vera í slíkum viðræðum. „Það er mikilvægt að við séum sammála um þær áherslur áður en þetta færi að stað, því annars er þetta andvana fætt,“ segir Bjarni. Birgitta Jónsdóttir úr Hreyfingunni segir einnig mikilvægt að flokkarnir nái saman um sameigin- lega sýn á málin. „Bretar og Hollendingar hljóta að gera sér grein fyrir því að þjóðirnar þurfa að ræða málin,“ segir hún. Heimildir blaðsins telja það jákvætt merki að full- trúar erlendu ríkjanna hafi enn ekki hafnað hugsan- legum viðræðum. - kóþ, kóp Rætt um þverpólitíska samráðsnefnd vegna Icesave-deilunnar: Vonast eftir viðbrögðum á morgun Á RÖKSTÓLUM Sumir heimildarmenn blaðsins telja ólíklegt að Bretar og Hollendingar verði við beiðnum um að fara enn á ný í viðræður við Íslendinga fyrr en fullkomin sátt næst milli stjórnmálaflokkanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SPURNING DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.