Fréttablaðið - 16.01.2010, Blaðsíða 10
10 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR
1 Hversu hátt hlutfall lækna
í sérnámi erlendis kveðst ekki
ætla að snúa aftur heim?
2 Hvað heitir elsta dagblað
Færeyja sem komið er að hluta
í íslenska eigu?
3. Hvað hafði íslenska rústa-
björgunarsveitin með sér mikið
af vatni til Haítí?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 62
JARÐFRÆÐI „Frá 950 og til um 1350,
fyrir mjög stuttu síðan, var mikið
um gos á Reykjanesskaganum
allt frá Hellisheiði og vestur um,“
segir Ragnar Stefánsson prófess-
or í jarðvárfræðum við Háskólann
á Akureyri. „Reykjanesskaginn er
þess eðlis að skiptast á gostíma-
bil og tímabil lítilla og miðlungs-
stórra jarðskjálfta. Við höfum eig-
inlega verið á slíku lággosatímibili
alveg frá um 1400, en þetta gæti
hins vegar snúist við og við lent inn
á gosgjörnu tímabili,“ bætir hann
við. Miðað við söguna þarf ekki að
vera svo langt í nýtt gostímabil.
Ragnar segir hins vegar erfitt
um að dæma hvort skjálftavirkni
á Reykjanesskaganum síðustu
árin bendi til að hegðun skagans
sé að breytast. Hann bendir á að
almennt séð hafi verið mikið um
jarðskjálfta á svæðinu alla síðustu
öld, til dæmis um og upp úr alda-
mótunum 1900 við Reykjanestá.
„Toppurinn í þessari virkni var
1929 með skjálfta af stærðinni 6,2
milli Bláfjalla og Brennisteins-
fjalla og 1933 varð skjálfti upp á 5,5
vestur af Krýsuvík. Skjálfti upp á
5,4 varð vestur af Bláfjöllum 1968.
Haustið 1973 urðu skjálftar sem
nálguðust fimm að stærð vestur
af Krýsuvík og mikið um smærri
skjálfta víðar á skaganum.“
Ragnar segir miklar landbreyt-
ingar og skjálfta sem urðu í Krýsu-
vík í kjölfar Suðurlandsskjálftanna
árið 2000 geta verið vísbendingu
um mikinn kvikuþrýsting. „Þegar
höggið kemur frá Suðurlands-
skjálftanum þá brýst þessi kvika
nær yfirborðinu og ýtir af stað
skjálftum,“ segir hann en áréttar
um leið að svæðið frá Krýsuvík
og austur að Þrengslum hafi verið
verið tiltölulega rólegt síðustu
áratugi. „Ég held hins vegar að ef
kæmi nýtt gostímabil á Reykja-
nesskaganum að ekki væri ólík-
legt að það myndi byrja með auk-
inni skjálftavirkni einmitt á þessu
svæði.“
Sem fyrr áréttar Ragnar að töl-
fræði sé til lítils gagns þegar að
því kemur að setja fram spár um
einstaka jarðhræringar. „Breyti-
leikinn í ástandi plötumótanna er
svo mikill. Þó við getum séð úr töl-
fræði einhverja þróun og auknar
líkur þegar horft er til langs tíma,
þá er það þannig þegar horft er til
skamms tíma, hvort sem það er til
ára, daga eða klukkutíma, að þá
verðum við að skilja hvaða hreyf-
ingar eru í gangi. Þetta gerum við
best með því að mæla og túlka
samstundis upplýsingar sem berast
okkur stöðugt með örsmáum jarð-
skjálftum neðan úr skorpunni og
svo með nákvæmum samfelldum
mælingum á landbreytingum.“
olikr@frettabladid.is
Í SVARTSENGI Jarðvarmi er víða á
Reykjanesi, en hér má sjá hann beisl-
aðan í orkuveri HS orku í Svartsengi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Undir niðri
þrýstir kvika
Á Reykjanesi skiptast á tímabil jarðskjálfta og gos-
tímabila. Nýtt gostímabil myndi byrja með aukinni
virkni frá Hellisheiði að Brennisteinsfjöllum.
KRÝSUVÍK AÐ VETRI Í Krýsuvík er víða heitt undir, rétt eins og á mörgum öðrum stöðum
á Reykjanesi. Suðurlandskjálftarnir hafa haft áhrif á hitasvæði fjarri upptökum skjálftanna.
Þannig lokuðu Almannavarnir ríkisins aðgengi að Gunnuhver, austan Reykjanesvita, fyrir
um tveimur árum vegna breytinga á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Endurfjármagna með láni
Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi
sínum 7. janúar að taka lán hjá Lána-
sjóði sveitarfélaga að fjárhæð 361
milljón króna, til 14 ára. „Til tryggingar
láninu standa tekjur sveitarfélagsins“
segir í bókun en lánið er tekið til
endurfjármögnunar lána sem Árborg
hefur tekið hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
NEYTENDUR Fyrirtækið Kredia,
sem veitir svokölluð sms-smá-
lán, rekur ábyrga lánastarfsemi
þar sem fólk getur ekki safn-
að upp skuldum, segir Leifur A.
Haraldsson, framkvæmdastjóri
Kredia.
Fyrirtækið veitir lán til fimmt-
án daga þeim sem skrá sig á
heimasíðu fyrirtækisins, og senda
svo sms til að fá lánið. Fyrsta lán
er aldrei hærra en 10 þúsund
krónur, með 2.500 króna kostn-
aði, og hæsta mögulega lánið 40
þúsund krónur, með 9.250 króna
kostnaði. Ekki er hægt að fá nýtt
lán fyrr en fyrra lán hefur verið
greitt upp.
Fyrirkomu-
lag sms-lán-
a n n a hefu r
ver ið gagn-
rýnt harðlega,
og hafa Neyt-
endasamtökin
óskað eftir því
að viðskipta-
ráðherra kanni
hvort hægt sé
að koma í veg
fyrir slíka lánastarfsemi hér á
landi.
Leifur segir alla umræðu um
að hægt sé að steypa sér í skuldir
með sms-lánum vekja furðu. Ekki
sé hægt að skulda fyrirtækinu
meira en 49.511 krónur með
kostnaði. Við það bætist þó inn-
heimtukostnaður sé skuldin ekki
greidd á réttum tíma.
Ekki fæst upp gefið hversu
margir hafa tekið lán frá fyrir-
tækinu, né hversu mörg tilvik
hafi farið í löginnheimtu. Leifur
segir lánin vinsæl og mjög lágt
hlutfall hafi farið í innheimtu.
Kredia kynnti starfsemi sína á
fundi með fulltrúum Neytenda-
stofu og Fjármálaeftirlitsins í
nóvember í fyrra. Á þeim fundi
kom fram að starfsemin sé sam-
kvæmt lögum og uppfyllii allar
kröfur sem lagðar eru á starfsemi
af þessu tagi, segir Leifur. - bj
Forsvarsmaður fyrirtækis sem veitir sms-lán segir fyrirtækið uppfylla allar kröfur:
Ekki hægt að safna upp skuldum
LEIFUR A.
HARALDSSON
SVEITARSTJÓRNIR Skólanefnd Sel-
tjarnarness hefur skipað nefnd
til að vinna að hugmyndum að
útfærslum á framkvæmd sam-
einingar leikskólanna Mána-
brekku og Sólbrekku.
„Nefndina skipa fulltrúar
stjórnenda beggja leikskólanna,
starfsfólk skólaskrifstofu, full-
trúar skólanefndar og fulltrúar
foreldra beggja leikskólanna,“
segir í tilkynningu bæjarfélags-
ins. Nefndinni er ætlað að skila
af sér tillögum og athugasemd-
um fyrir lok þessa mánaðar.
Sameinaður leikskóli á svo að
taka til starfa næsta haust.
- óká
Hagrætt á Seltjarnarnesi:
Tveir leikskólar
verða að einum
Dofri vill 2. til 3. sæti
Dofri Hermannsson hefur ákveðið að
taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar
fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.
Hann óskar eftir stuðningi í annað
til þriðja sætið í prófkjörinu, sem fer
fram 26. til 30. janúar. Dofri er vara-
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.
Sækist eftir fyrsta sæti
Guðmundur Rúnar Árnason bæjarfull-
trúi gefur kost á sér í fyrsta sæti á lista
Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Gunnar
hefur verið bæjarfulltrúi frá árinu 2002.
KOSNINGAR Í VOR
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært karlmann um tvítugt fyrir
að ógna unglingi ruddalega með
hnífi. Athæfið flokkast undir hót-
anir, vopnaburð á almannafæri og
brot gegn barnaverndarlögum.
Maðurinn dró upp hníf, að því er
segir í ákæru, og nálgaðist piltinn
sem var þrettán ára með ógnandi
og ruddalegum hætti. Hann hafði
hnífinn sýnilegan og beindi honum
í átt að hálsi piltsins.
Þá er þessi sami maður ákærður
fyrir sérstaklega hættulega
líkamsárás og brot gegn barna-
verndarlögum, Hann tók annan
pilt, einnig þrettán ára, föstu háls-
taki og lyfti honum upp frá jörð-
inni. Með þessu þrengdi árásar-
maðurinn svo að öndunarvegi
piltsins að meðvitund hans skert-
ist og honum sortnaði fyrir augum.
Árásarmaðurinn sleppti þá takinu
þannig að pilturinn féll með höf-
uðið í jörðina. Pilturinn hlaut við
þetta skrámur, mar, bólgur og
skurð í andliti. Einnig hlaut hann
mar og skrámur á líkama.
Sá ákærði játaði að hafa dregið
upp hníf, en neitaði að hafa borið
hann að hálsi piltsins. Kvað hann
tilganginn hafa verið þann að
stöðva eftirför drengja, en ekki að
ógna þeim. Þá játaði hann líkams-
árásina, sem hann sagði hafa verið
í varnarskyni. - jss
HNÍFUR Maður um tvítugt ógnaði þrett-
án ára unglingi með hnífi.
Ákært fyrir vopn, árás og brot á barnaverndarlögum:
Hótaði pilti með hnífi
Dagskrá næstu fjármálakvölda
21. janúar Holtagarðar, Holtavegi 10 kl. 20
28. janúar Akureyri, Strandgötu 1 kl. 20
4. febrúar Selfossi, Austurvegi 20 kl. 20
11. febrúar Bæjarhrauni, Hafnarfirði kl. 20
Skráning og nánari upplýsingar eru á vef Landsbankans, landsbankinn.is, og í síma 410 4000.
Allir velkomnir.
Landsbankinn kynnir röð fjármálanámskeiða fyrir
almenning undir yfirskriftinni Fimmtudagskvöld
eru fjármálakvöld. Markmið námskeiðanna er að
auðvelda fólki að öðlast betri yfirsýn yfir fjármál
heimilisins.
Frá miðjum febrúar og fram í miðjan mars verður boðið upp á fjármálafræðslu um skipulag og
stýringu fjármála heimilisins þar sem fjallað verður um hvernig hægt er að endurskipuleggja
fjármálin, ávöxtun og sparnað, vaxtakjör, útgjöld heimilisins og kosti heimilisbókhalds.
Á næstu fjármálakvöldum verður farið yfir helstu breytingar sem urðu á réttindum lífeyrisþega
á greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2009. Sólveig Hjaltadóttir framkvæmdastjóri
og Margrét Jónsdóttir deildarstjóri á Réttindasviði TR munu kynna breytingarnar og svara
fyrirspurnum ásamt sérfræðingum bankans.
Réttindi
lífeyrisþega
VEISTU SVARIÐ?