Fréttablaðið - 16.01.2010, Blaðsíða 50
16. janúar 2010 LAUGARDAGUR8
Um er að ræða frumkvæðisstarf og ábyrgð á stefnumótun í fjármálum sveitarfélagsins. Forstöðumaður fjármála hefur yfi rumsjón
með fjárhags- og starfsáætlunargerð, rekstrareftirliti og gerð tillagna til að auka hagkvæmni og skilvirkni í rekstri. Forstöðumaður
fjármála ber ábyrgð á greiningu fjármálaupplýsinga, fjárreiðum þ.e. greiðslu- og lánastýringu, eftirliti með framkvæmd innkaupareglna,
álagningu og innheimtu gjalda, bókhaldi og ársreikningi. Ásamt bæjarstjóra og forstöðumönnum mannauðs- og upplýsingatæknimála
og stjórnsýslu myndar hann fjármála- mannauðs- og stjórnsýsluteymi, sem ber m.a. ábyrgð á undirbúningi mála fyrir bæjarráð. Næsti
yfi rmaður forstöðumanns fjármála er bæjarstjóri.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Frumkvæði að og þátttaka í stefnumörkun um fjárhagsmálefni sveitarfélagsins
• Samhæfi ng og samræming í rekstri og þjónustu m.a. með undirbúningi og innleiðingu verklagsreglna
• Leiðtogi í fjármálastjórnun stofnana og stjórnsýslu bæjarins
• Yfi rumsjón með fjárhagsáætlunum, starfsáætlun og 3ja ára áætlun sveitarfélagsins
• Yfi rumsjón með bókhaldi og gerð ársreiknings sveitarfélagsins og stofnana þess
• Samskipti við stjórnendur, starfsmenn og íbúa Fjarðabyggðar vegna fjárhagsmálefna sveitarfélagsins
• Dagleg stjórn verkefna sviðsins og samræming starfskrafta á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á meistarastigi, t.d. í viðskiptafræði eða MBA með áherslu á fjármál og reynsla af fjármálastjórn
• Hæfni til að nýta faglega þekkingu í fjármálastjórnun, reikningsskilum og áætlanagerð
• Góð tungumálakunnátta (íslenska og enska) og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti
• Hæfni til að stýra rekstri, skipuleggja og innleiða breytingar og móta stefnu í samráði við starfsfólk og stjórnendur
• Forystu-, skipulags- og samskiptahæfni
• Þekking á starfsemi sveitarfélaga og opinberri stjórnsýslu ásamt þekkingu á lögum og reglum um fjármál sveitarfélga er æskileg.
Forstöðumaður fjármála er hluti af stjórnendateymi Fjarðabyggðar sem m.a. ber ábyrgð á innleiðingu breytinga sem standa yfi r og
framundan eru. Starfsmenn á fjármálasviði eru sjö. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst. Um launakjör fer eftir ákvörðun
bæjarráðs um stjórnendakjör Fjarðabyggðar. Upplýsingar um starfi ð veitir Gunnar Jónsson, forstöðumaður mannauðsmála, í síma 470
9000, netfang gunnar.jonsson@fjardabyggd.is. Í samræmi við jafnréttisáætlun Fjarðabyggðar eru konur jafnt sem karlar hvattar til að
sækja um starfi ð. Umsóknir skulu hafa borist bæjarskrifstofum Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eigi síðar en föstudaginn
22. janúar 2010.
Nánari upplýsingar er að fi nna á heimasíðu Fjarðabyggðar; www.fjardabyggd.is
Fjarðabyggð auglýsir laust starf
FORSTÖÐUMANNS FJÁRMÁLA
Verksvið:
• Hópvinna í sölu- og markaðsdeild
• Markaðssókn á nýja og núverandi markaði
• Áætlanagerð í sölu og markaðssetningu
• Þátttaka í uppbyggingu sölukerfi s og umboðsmanna
Menntunarkröfur og reynsla:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af (alþjóðlegu) sölu- og markaðsstarfi
• Reynsla af markaðssetningu í gegnum internet æskileg
• Góð tungumálakunnátta skilyrði, einkum enska
Verksvið:
• Almenn skrifstofustörf og annað tilfallandi
Menntunarkröfur og reynsla:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Góð tölvu- og tungumálakunnátta
Verksvið:
• Fjölbreytt þróunar- og viðhaldsvinna við forritun á
notendaviðmótum og hugbúnaði
• Tækjaprófanir og eftirfylgni
Menntunarkröfur og reynsla:
• Tölvunarfræðingur eða hugbúnaðarverkfræðingur, eða
sambærileg háskólamenntun
• Þekking á forritunarmálunum Pascal, C/C++, Delphi og VBA
• Reynsla á örgjörvaforritun, PIC/DSP æskileg
Markaðs- og sölumaður
Aðstoðarmaður í
sölu- og markaðsdeild
Hugbúnaðarsérfræðingur
www.star-oddi.com
Star-Oddi (Stjörnu-Oddi) hf. er þróunarfyrirtæki sem framleiðir mæl-
itæki og skynjara til rannsókna og iðnaðarnotkunar. Star-Oddi selur
afurðir sínar á alþjóðarmarkaði og hefur hlotið viðurkenningar fyrir störf
sín. Star-Oddi býður framtíðarstörf fyrir rétta einstaklinga. Við leitum að
skörpum og skapandi einstaklingum sem eiga auðvelt með að vinna sem hluti af hópi, eru sveigjanlegir og áræðnir.
Viðkomandi umsækjendur þurfa að vera með góða samskiptahæfi leika og tungumálakunnáttu. Eftirfarandi störf eru í boði:
Umsókn sendist með tölvupóst til sigmar@star-oddi.com eða bréfl ega til Star-Oddi, Vatnagarðar 14. 104 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til og með 25. Janúar. Nánari upplýsingar veitir Sigmar Guðbjörnsson í síma 5336060.
>
>
>
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki