Fréttablaðið - 16.01.2010, Blaðsíða 62
10 fjölskyldan
vetur
besta árstíðin ...
Á sleða skemmti
ÉG MÉR VEL
Fylgst með Pabbi eða mamma eru fyrirtaks förunautar í
fyrstu sleðaferðunum.
Samkvæmt óformlegri könnun
Fréttablaðsins kosta sleðar á
bilinu tvö til fjórtán þúsund
krónur. Ódýrustu sleðarnir eru
venjulegir plastsleðar. Stýrissleð-
ar eru mun dýrari og kosta meira
en tíu þúsund krónur. Ágætt úrval
af sleðum er í Húsasmiðjunni og
Byko svo dæmi séu tekin.
Handa yngstu börnunum er hægt
að fá sleða með sæti og öryggisól
en þau eldri hafa líklega mest
gaman af stýrissleðum.
Hvað kosta
sleðar?
Heilahristingur – heimanámsaðstoð á bókasafninu Í
vikunni var opnuð heimasíða Heilahristingsins að viðstöddum
fjölda gesta. Heilahristingur er heimanámsaðstoð við nemendur í
5.-10. bekk í grunnskólum Breiðholts og á innflytjendabraut í
Fjölbraut í Breiðholti.
Tilgangur verkefnisins
er að styðja og styrkja
nemendur í námi og
kynna þeim þá
þjónustu sem
bókasafnið býður upp
á. Heimanámsað-
stoðin er krydduð
með ýmsum
skemmtilegum
uppákomum, eins og
dansi, bíósýningum
og tónlist. Megináhersla er lögð á að bjóða nemendum upp á
hvetjandi umhverfi sem styður við skapandi barna- og unglinga-
starf. Sjálfboðaliðar leiðbeina nemendum og eru þeir meðal
annars framhaldsskólanemar, kennaranemar svo og kennarar á
eftirlaunum. Heilahristingur er samstarfsverkefni Borgarbóka-
safns og Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands og er verkefnið
styrkt af þróunarsjóði innflytjendamála og menntaráði Reykjavík-
ur. Við opnun síðunnar sögðu Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnis-
stjóri fjölmenningar á Borgarbókasafni, og Þór Gíslason, verk-
efnastjóri Reykjavíkurdeildar Rauða krossins, frá verkefninu og
Alis, nemandi í Fjölbraut í Breiðholti, sagði frá reynslu sinni af
heimanámsaðstoðinni. Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi og
fulltrúi menntaráðs, opnaði heimasíðuna sjálfa með aðstoð
nemenda. www.heilahristingur.is
HÚFUTETUR, HÁLSKLÚT ÞÓ Þegar farið er út að leika á veturna er nauðsynlegt að
klæða sig vel, fátt er andstyggilegra en að vera of kalt. Ullarföt eru mjög góð undir hlífðar-
fatnað, húfur og treflar nauðsynleg alla vetrardaga. Góðir kuldaskór eru svo afar
góðir á litla og svo stóra fætur.
NÁM
Stýrissleði Góður
fyrir stærri börn.
Á Miklatúni Víða eru
skemmtilegar brekkur í
Reykjavík, til dæmis í norð-
austurhorni Miklatúns.
Allir vita að sleðaferð er hin mesta og besta skemmtun. Sleðar ættu að vera til á hverju
heimili enda lítil fyrirhöfn að fara út í næstu brekku og renna sér eina ferð eða tvær og
börn á öllum aldri hafa gaman af þeirri skemmtun. Mikið hefur snjóað fyrir norðan það
sem af er vetrar en heldur minna sunnan heiða, en mikið er eftir af vetri þannig að óhætt
er að halda í vonina um meiri snjó.
Kemur út þriðjudaginn
19. janúar 2010
Sérblað
um Þorrann
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband:
Benedikt
• benediktj@365.is
• sími 512 5411
Bjarni Þór
• bjarni thor@365.is
• sími 512 5471
Hlynur Þór
• hlynurs@365.is
• sími 5125439
Sigríður Dagný
• sigridurdagny@365.is
• sími 5125462
FR
ÉT
AT
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Gaman
Sleðaferð
hittir í mark
hjá flestum
börnum.