Fréttablaðið - 16.01.2010, Blaðsíða 4
4 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR
SAFNA FYRIR
FÓRNARLÖMB Á HAÍTÍ
Að minnsta kosti þrenn samtök hér á landi
taka við framlögum þeirra sem vilja styðja
neyðarhjálp og uppbyggingarstarf á Haítí.
Ýmist er hægt að hringja í söfnunarsíma eða
leggja inn á reikninga. Nánari upplýsingar
um safnanir er til dæmis að finna á heima-
síðum Rauða kross Íslands (rki.is), Unicef
(unicef.is) og SOS barnaþorpa (sos.is).
Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi
sparisjóðsstjóri Byrs, vill koma því
á framfæri að hann hafi ekki gist í
fangaklefa yfir nótt vegna rannsóknar
sérstaks saksóknara á málefnum Byrs
og Exeter, eins og Fréttablaðið hafði
eftir fréttastofu Stöð 2 á fimmtudag.
Hann hafi kosið að bíða í fangaklefa
eftir lögmanni sínum í nokkrar
klukkustundir.
LEIÐRÉTTINGAR
Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri á verð-
bréfasviði Fjármálaeftirlitsins, var rang-
lega nefnd Helga í frétt blaðsins í gær.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Í viðtali við Bylgju Dís Gunnarsdóttur
söngkonu á blaðsíðu 20 í blaðinu
í gær var farið rangt með tímasetn-
ingu óperettutónleika Óp-hópsins
í Íslensku óperunni. Hið rétta er að
þeir eru á dagskrá þriðjudagskvöldið
19. janúar. Hlutaðeigandi og lesendur
eru beðnir velvirðingar.
SVEITARSTJÓRNIR Eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga hefur
framlengt frest sem sveitarfélag
Álftaness fékk til að koma skikk á
fjármál sín um eina viku. Í desem-
ber fengu Álft-
nesingar frest
til 20. janúar til
þessa en þurfa
nú ekki að skila
áætlun sinni
fyrr en 27. jan-
úar. „Við vinn-
um í þessu af
krafti. Það er
bæði efnahags-
hlutinn og
rekstrarhlutinn
undir,“ segir Kristinn Guðlaugs-
son, forseti bæjarstjórnar. Lagt
var fyrir Álftnesinga að skoða
sameiningu við önnur sveitarfélög
en Kristinn segir það bíða næsta
áfanga þegar tekist hefur að koma
betra skipulagi á fjármálin. - gar
Fjárhagsvandinn á Álftanesi:
Frestur lengdur
um eina viku
KRISTINN
GUÐLAUGSSON
HAÍTÍ Fjörutíu og sex börn í barna-
þorpi SOS í Santo rétt utan við
Port-au-Prince á Haíti eiga stuðn-
ingsforeldra á Íslandi. Þau sluppu
öll heil á húfi frá jarðskjálftanum
á þriðjudagskvöld, að sögn Ragnars
Schram, hjá SOS á Íslandi.
Linda Laufey Bragadóttir og fjöl-
skylda hennar hafa stutt eitt þess-
ara barna, hina níu ára Judeline,
í um tvö ár og fengu jólakort frá
henni daginn eftir skjálftann.
Á kortið hafði Judeline teikn-
að peningapoka með dollaramerki
og óskum um gleðileg jól. „Það
er ótrúleg tilviljun að Judeline
skyldi skreyta kortið á þennan
hátt,“ segir Linda Laufey. „Í ljósi
þessara hörmulegu atburða fær
þessi litli peningapoki aukið vægi
og minnir okkur öll á hversu gott
við getum látið af okkur leiða með
fjárframlögum og dregið úr neyð
þessa fólks.“
Ragnar Schram segir að þótt
SOS starfi ekki við neyðaraðstoð
veiti samtökin nú nauðstöddum þá
hjálp sem þau geta. Þegar frá líði
bíði gríðarleg enduruppbygging.
Munaðarlausum börnum í SOS-
þorpunum muni áreiðanlega fjölga
á næstunni. SOS eru alþjóðleg sam-
tök sem starfa í 132 ríkjum og reka
tvö barnaþorp á Haítí. Íslendingar
hafa stutt börn í þorpinu í Santo.
- pg
Fjörutíu og sex börn á Haítí eiga íslenskar stuðningsfjölskyldur:
Getum dregið úr neyðinni á Haítí
HAÍTÍ „Menn eru mjög ánægð-
ir í svona leiðangri ef þeir ná
að bjarga einum. Þannig að við
erum mjög ánægðir með þann
árangur sem við höfum náð nú
þegar,“ sagði Lárus Björnsson,
fjarskiptamaður hjá íslensku
Alþjóðasveitinni í gær.
Í gærmorgun höfðu alþjóðleg-
ar rústabjörgunarsveitir fund-
ið samtals um tuttugu manns á
lífi í húsarústum í höfuðborg-
inni Port-au-Prince á Haítí.
Þeirra á meðal voru konurn-
ar þrjár sem íslenska sveitin
bjargaði úr rústum Caribbean-
matvælamarkaðarins.
Fréttablaðið ræddi við Lárus
Björnsson klukkan átján í gær
að íslenskum tíma eða klukk-
an eitt um hádegi á Haítí. Um
morguninn var íslenska sveitin
pöruð saman við björgunarsveit
frá Flórída og sveitirnar fengu
úthlutað einu af 22 skilgreindum
leitarrsvæðum í Port-au-Prince.
„Þeir eru að keyra um og skoða
hvar þörf er á aðstoð og aðstoða
þar sem þörf er á,“ sagði Lárus.
Að sögn Lárusar er unnið í
samvinnu við heimamenn eins
og hægt sé. „Þeir eru náttúru-
lega daprir en hafa tekið okkur
mjög vel,“ sagði Lárus sem kvað
fara vel mjög vel um Íslending-
anna þótt hitinn væri 35 stig og
mikill raki í lofti. „Við erum með
búðir í útjaðri flugvallarins og
þar eru allar alþjóðasveitirnar
komnar á sama punktinn. Sam-
einuðu þjóðirnar eru komnar.
Við lánuðum þeim eitt tjald til að
stjórna sínum aðgerðum. Hjálp-
argögn eru að streyma að. Við
heyrum reglulega í stórum vélum
að lenda.“
Ólafur Loftsson, einn stjórn-
enda íslensku sveitarinnar, sagði
skipulag björgunarstarfsins fara
ört batnandi. Sérstök sveit sam-
hæfi aðgerðir og samstarf björg-
unarsveita frá ýmsum lönd-
um undir merkjum Sameinuðu
þjóðanna. Stjórnendur íslensku
sveitarinnar voru kallaðir að
því starfi enda margreyndir úr
alþjóðlegu samstarfi. Unnið væri
að því að koma upp færanlegum
sjúkrastöðvum og öðru til að
bæta aðhlynningu fórnarlamba
og koma í veg fyrir frekara
neyðarástand.
„Ég hef grun um að þegar maður
verður kominn heim og fer að
draga andann og fer að fá fjarlægð
frá þessu þá upplifi maður þetta
sterkar,“ sagði Ólafur „en núna ein-
beitir maður sér að verkefninu. Það
þarf að fara í gegnum þetta. En það
gefur okkur aukinn kraft að finna
að fólkið heima er með okkur í
þessu.“ peturg@frettabladid.is
gar@frettabladid.is
Gefur kraft að finna
stuðning frá Íslandi
Alþjóðlegar björgunarsveitir fundu 20 manns á lífi í rústunum í Port-au-Prince
á Haítí í fyrradag. Íslenska sveitin fann þrjá þeirra. Stórar flugvélar streymdu
að í gær með hjálpargögn, að sögn fjarskiptamanns hjá íslensku sveitinni.
HEIL Á HÚFI Íslenska rústabjörgunarsveitin náði þremur konum á lífi úr rústum
verslunarhúss í Port-au-Prince í fyrradag, tveimur sólarhringum eftir jarðskjálftann.
Fréttamenn CNN fylgdust með björguninni og ræddu við liðsmenn sveitarinnar í
beinni útsendingu að björgun lokinni. MYND/LANDSBJÖRG
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
6°
-3°
-1°
2°
-1°
5°
-1°
-1°
23°
9°
15°
10°
25°
-5°
4°
14°
0°
Á MORGUN
Strekkingur S- og V-
lands, annars hægari.
15
MÁNUDAGUR
Strekkingur sunnan-
lands, annars hægari.
20
5
34
3
4
35
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
9
8
10
6
10
9
7
9
11
11
SKIL
Það ganga skil yfi r
landið í dag með
tilheyrandi vindi
og úrkomu. Skilin
koma inn á landið
suðaustanvert og
þar fer fyrst að
rigna en síðdeg-
is má búast við
rigningu víða um
land en líklega þó
ekki fyrr en í kvöld
á Vestfjörðum.
Ingibjörg
Karlsdóttir
Veður-
fréttamaður
HAÍTÍ Þórir Guðmundsson, deildar-
stjóri Alþjóðadeildar Rauða
kross Íslands, RKÍ, segir að þrátt
fyrir að mörgum þyki hjálpar-
starf á Haítí fara seint af stað
þá gangi það hraðar fyrir sig en
eftir hamfaraflóðin í Búrma árið
2008 og í Indónesíu 2004. Hlín
Baldvinsdóttir, einn af reyndustu
sendifulltrúum RKÍ, er á leið til
Haítí. Þórir segir tuttugu manns
til viðbótar einnig viðbúna að
fara, bæði heilbrigðisstarfsfólk
og hvers kyns sérfræðinga.
Í gær var aðeins eitt sjúkra-
hús á hamfarasvæðinu sem gat
tekið við slösuðu fólki. Önnur
voru yfirfull að svo miklu leyti
sem þau voru starfhæf. Alþjóð-
legt björgunarlið vann að því
að koma upp sjúkratjöldum og
færanlegum sjúkrastöðvum til að
hlynna að fólki. - pg
Hjálparstarfið á Haítí:
Gengur hraðar
en í Indónesíu
JÓLAKORTIÐ „Peningapokann hefur hún
áreiðanlega hugsað sem táknrænan fyrir þann
fjárhagsstuðning sem við veitum henni,“ segir
stuðningsmóðir Judeline, níu ára stúlku á Haítí.
LÖGREGLUMÁL Tveir menn á þrí-
tugsaldri reyndu að kasta frá
sér 50 grömmum af amfetam-
íni þegar lögreglan á Akureyri
stöðvaði bíl þeirra í fyrradag.
Í kjölfarið fór lögregla í húsleit
þar sem um 50 grömm af kanna-
bisefnum fundust.
Ákveðið var leita á heimili
annars mannsins í Reykjavík í
samstarfi við lögregluna á höf-
uðborgarsvæðinu, sérsveit rík-
islögreglustjóra og leitarhunda
frá tollinum. Þar fundust um
200 grömm af hassi, lítilræði
af marijúana og amfetamíni og
þýfi, meðal annars fimm far-
tölvur, tölvuflakkari, tölvuturn,
42“ flatskjár og motocross-
mótorhjól. - jss
Köstuðu amfetamíninu:
Tveir með fíkni-
efni og þýfi
GENGIÐ 15.01.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
234,107
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,76 125,36
203,03 204,01
179,47 180,47
24,111 24,253
22,014 22,144
17,695 17,799
1,3742 1,3822
195,98 197,14
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is