Fréttablaðið - 16.01.2010, Blaðsíða 48
16. janúar 2010 LAUGARDAGUR6
Hjúkrunarheimilið Skógarbær
Eldhús
Ef þig langar til að vinna með skemmtilegu fólki skaltu
lesa þessa auglýsingu. Okkur vantar starfsmann í fullt
starf í eldhús/matsal Skógarbæjar, um er að ræða
dagvinnu.
Við leitum eftir einstaklingi sem kann að baka, elda, tala
íslensku, er heilsuhraustur, skemmtilegur og hefur góða
framkomu og samskiptahæfi leika.
Upplýsingar um Hjúkrunarheimilið Skógarbæ eru á
heimsíðu okkar skogar.is.
Ef nánari upplýsinga er óskað þá sendið tölvupóst til
olga@skogar.is Umsóknir sendist með tölvupósti til
olga@skogar.is
Olga Gunnarsdóttir
Næringarrekstrafræðingur
Forstöðumaður eldhúss
Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00.
Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is.
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum
verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa
um 400 manns, víðsvegar um landið
sem og erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem
var stofnað árið 1970 og hefur annast
ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór-
iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð
auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
Framkvæmdagleði í fyrirrúmi
MÁLMIÐNAÐARMENN
ÍSTAK óskar eftir að ráða málmiðnaðarmenn til starfa. Í boði eru
fjölbreytt verkefni við nýsmíði, viðhald og uppsetningu stálvirkja.
Skilyrði er að viðkomandi hafi reynslu af störfum í málmsmíði.
Einnig er óskað eftir málmiðnarmönnum með þekkingu og reynslu af
suðu röralagna.
Viðkomandi þarf að búa yfir frumkvæði, sýna metnað í starfi og vera
tilbúinn að gangast undir hæfnispróf í málmsuðu.
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
ÍSTAK óskar eftir að ráða viðskiptafræðing til starfa. Um er að
ræða umsjón með bókhaldi erlendra verkefna, vinnu við
uppgjör og gerð ársreikninga, skýrslugerð og eftirlit, aðstoð
við bókhald auk annarra verkefna í samráði við fjármálastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í viðskiptafræði
• Frekari framhaldsmenntun er æskileg
• Reynsla af bókhalds- og uppgjörsvinnu
• Þekking á Navision æskileg
• Góð enskukunnátta
• Góð kunnátta í minnst einu norðurlandamáli
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Hjá Umhverfisstofnun eru tvö störf sérfræðinga laus til umsóknar.
Sérfræðingur á deild hollustuverndar. Helstu verkefni sérfræðingsins varða löggjöf um plöntuvarnarefni, þ.á.m.
leyfisveitingar vegna notkunar og markaðssetningar þeirra, starfsréttindi garðaúðara og meindýraeyða, sérfræðivinna
vegna innleiðingar nýrrar Evrópulöggjafar og fræðsla sem tengist málaflokknum.
Sérfræðingur á sviði fræðslu og upplýsinga. Helstu verkefni sérfræðingsins verður vinna sem lýtur að vistvænum
innkaupum hjá ríkisstofnunum auk vinnu að rekstri umhverfismerkisins Svaninum. Í verkefnunum felast m.a. fræðsla
og kynningarhald til opinberra aðila, fyrirtækja og neytenda, aðstoð við daglegan rekstur og kynningarátak Svansins,
samstarf við hagsmunaaðila og vinna við innleiðingu vistvænna innkaupa hjá Umhverfisstofnun.
Sjá nánari upplýsingar um störfin, hæfniskröfur og umsóknarfresti um þau á umhverfisstofnun.is og starfatorg.is
Störf sérfræðinga hjá Umhverfisstofnun
Njótum umhverfisins og stöndum vörð um það saman
ÞJÓNUSTULIÐI
RÆSTING
í Menntaskólanum í Kópavogi
Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða þjónustu-
liða til ræstinga og umsjónar með umgengni í skólanum
á dagvinnutíma. Möguleiki á hlutastörfum.
Laun eru skv. sérstökum samningi Efl ingar og fjármála-
ráðuneytis. Nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu skólans í síma 594 4000 hjá skrifstofustjóra eða
ræstinga stjóra.
Skólameistari
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Ráðningarþjónusta
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar
www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um starfið þar.
Framkvæmdastjóri
Leitað er að einstaklingi sem hefur:
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi
· Frumkvæði og metnað til að ná árangri
· Mjög góða samskiptahæfni
· Gott vald á töluðu og rituðu máli og hæfni
til framsetningar í skýrslum og kynningum
· Reynslu af stjórnun
Leitað er að drífandi og kraftmiklum einstaklingi til að fara fyrir daglegri starfsemi
og rekstri sem fram fer á Urriðavelli í Garðabæ. Í starfinu felst starfsmannastjórnun,
fjármálastjórnun, þjónusta og samskipti við félagsmenn, samstarfs- og styrktaraðila.
Urriðavöllur í Heiðmörk er af mörgum
talinn einn fallegasti golfvöllur landsins.
Golfklúbburinn Oddur hefur þar aðstöðu
sína en í klúbbnum eru tæplega 1400
félagsmenn. Starfmenn eru frá 5 – 25
eftir árstíðum.
Nánari upplýsingar um aðstöðuna og
félagsstarfið má finna á www.oddur.is.