Fréttablaðið - 16.01.2010, Blaðsíða 36
4 fjölskyldan
MIKIÐ VAL Í mörgum hverfum á höfuðborgarsvæðinu eru nokkrir leikskólar og því
má segja að foreldrar hafi úr talsverðu að velja þegar kemur að því að velja leikskóla
fyrir barnið. Flestir leikskólar eru með heimasíðu sem hægt er að skoða og svo er um
að gera að hafa samband og heimsækja þá leikskóla sem koma til greina.
FRAMHALD AF FORSÍÐU
dæmis er farið einu sinni á ári í
sumarbústaðaferð og þá er allt-
af þeim sem hættu árið á undan
boðið með,“ segir María. Tengsl
barna við barnaheimilið eru því
sterk áfram eftir að dvölinni þar
lýkur og sumir tala um árin á Ósi
langt fram eftir fullorðinsárum.
Svo skemmtilega vill til að einn
starfsmannanna núna Anna Krist-
ín Cartesgna var einmitt á Ósi sem
barn og segir hún dásamlegt að
vinna þar. „Það er bara svo mik-
ill kærleikur í húsinu,“ segir hún.
Anna Kristín er alinn upp á Ítalíu
til fimm ára aldurs. „Mamma mín
skoðaði ótal leikskóla í Reykjavík
þegar hún flutti heim og valdi Ós
vegna þess að hún vildi taka þátt
í starfi leikskólans og ég skil það
vel, í hvað á maður að verja tíma
sínum nema í börnin,“ segir Anna
Kristín.
María segir marga foreldra hafa
búið í útlöndum og kynnst leik-
skólum sem gera ráð fyrir meira
foreldrastarfi en gengur og gerist
í venjulegum leikskólum.
„Foreldrarnir hér eru frábær
hópur og verða svo góðir vinir
okkar,“ segir María. „Þetta er allt
frá þeim,“ segir Anna og bendir
á hlaðið borð af kræsingum sem
boðið er upp á á kaffistofunni í
aðdraganda jólanna.
Kaffistofan er ekki stór, ekki
frekar en húsið sem hýsir leik-
skólann, það er þriggja hæða
timburhús sem foreldrar gerðu
upp á níunda áratugnum, áður
var skólinn á tveimur öðrum stöð-
um „Börnum þykir líka gaman að
vera í þessu margra hæða húsi.“
Sannarlega eru krókar og kima
margir í húsinu og börnin eru að
leika sér þegar blaðamaður röltir
um. Skólinn starfar eftir Hjalla-
stefnunni þannig að kynin eru í
sitthvoru lagi en sameinast í úti-
verunni.
Lóðin er heldur ekki stór en það
eru margir spennandi staðir að
skoða í grenndinni þannig að það
kemur ekki að sök. „Við erum dug-
leg að fara í leiðangra með börn-
in,“ segir María og bendir í átt að
Skólavörðuholtinu.
Með það kveður blaðamaður
hlýlegt hús og heldur út í kuldann
með bros á vör.
Í góðum hópi María og Anna Kristín í góðum hópi yngstu krakkanna á Ósi.
Árið 1973 stofnaði hópur foreldra það sem þeir kölluðu Tilraunaheimilið Ós, sem tilraun til að reka
barnaheimili með öðrum hætti en þá tíðkaðist. Heimilið var til ársins 1977 að Ósi við Dugguvog
en flutti þá að Bergstaðastræti 26B. Árið 1986 var flutt í núverandi húsnæði sem er í eigu Reykja-
víkurborgar að Bergþórugötu 20. Nafn heimilisins er áfram Barna-
heimilið Ós, því þó að Ós sé dregið af nafni hússins við Dugguvog
má einnig hugsa sér myndlíkinguna í læknum sem rennur í hafið og
sameinast í því, líkt og barnið sameinast fjölskylduhópnum.
Ós er foreldrarekinn leikskóli. Með hugtakinu foreldrarekinn er ekki
einungis átt við rekstrarformið með stjórn, starfsráði, stórfundum,
starfsdögum og fleiru, heldur einnig að foreldrar og aðrir aðstandend-
ur barnanna á hverjum tíma hafi tækifæri til að fylgjast með og móta
starfsemina þannig að eðlilegt samhengi skapist á milli uppeldis á Ósi
og heimilis barnsins. Ábyrgðin er sameiginleg og með þessu móti
gefast foreldrum möguleikar á stefnumörkun. Starfið á Ósi endurspegl-
ar því vilja og áhuga foreldra og starfsfólks á hverjum tíma.
Við inngöngu á Barnaheimilið Ós verða barnið og foreldrar þess
hluti af Ósfjölskyldunni. Eins og hjá öðrum fjölskyldum er gagnkvæm
tillitssemi, virðing og traust allra fjölskyldumeðlima grundvöllurinn
fyrir því að góður árangur náist í uppeldinu. Á Ósi er mikið lagt upp úr
hollu og góðu fæði sem matreitt er af mikilli alúð frá grunni í eldhúsi
skólans. Ávaxtabílinn kemur vikulega með stútfulla körfu af ávöxtum
og leitast er við að allt grænmeti sem boðið er upp á sé lífrænt ræktað.
Heimild: www.leikskolinn.is/os
Tilraunaheimilið Ós
Í stuði Eydís Helga Þórisdóttir
stekkur hátt.
Ertu ,,alltaf” á leiðinni í jóga?
Vantar þig orku, einbeitingu, gleði og ró
KARLATÍMAR
KUNDALINI JÓGA
Orkugefandi - markvisst - umbreytandi
Byrjum á Bóndadaginn 22. janúar
Konur ath. gjafabréf!
Nánari upplýsingar á
www.lotusjogasetur.is/a_dofi nni
og í síma 846 1970
Lótus Jógasetur - Borgartúni 20
í leikskóla
er gaman...