Fréttablaðið - 16.01.2010, Blaðsíða 61
fjölskyldan 9
Til eru ótal listar yfir bestu
barnabækurnar. Hér er einn
settur saman fyrir grein í
enska dagblaðinu The Daily
Telegraph. Þó að höfundur
listans sé augljóslega
enskur og nefni ekki
snilldarbækur á borð við
bækur Astrid Lindgren og
Tove Janson þá er óhætt að
mæla með bókunum sem
reyndar eru ekki allar til í
íslenskri þýðingu.
Ljónið, nornin og
skápurinn eftir C.S.
Lewis. Fyrsta sagan í
bókaflokknum um ævintýra-
heima Narníu þar sem
systkinin Pétur, Súsanna, E
og Lucy uppgötva Narníu
og hvítu nornina.
Hringadróttinssaga
eftir Tolkien. Sagan um
Fróða og för hans til Mordor
til að eyðileggja hringinn
eina er stórbrotið ævintýri
sem margir þekkja.
Gyllti áttavitinn eftir
Philip Pullman og hinar
tvær bækurnar í þríleik
höfundar sem fór sigurför
um heiminn fyrir nokkrum
árum.
Babar eftir Jean de
Brunhoff. Bækurnar um fílinn
Babar teljast til bestu
barnabóka að mati Telegraph.
Bangsímon eftir AA.
Milne. Bókin kom út í nýrri
verðlaunaþýðingu Guð-
mundar Andra Thorssonar í
fyrra og segir frá bangsan-
um og félögum hans í
Hundraðmílnaskógi.
Harry Potter eftir J.K.
Rowling. Sjö bóka flokkinn
um galdradrenginn Harry
Potter þarf vart að kynna.
Þytur í laufi eftir
Kenneth Grahame. Erkiensk
bók þar sem söguhetjurnar,
moldvarpa, greifingi,
froskur og vatnarotta, verða
vinir þrátt fyrir ólíkan
bakrunn og skapgerð.
The Railway Child-
ren eftir E. Nesbit. Sígild
bresk barnasaga sem ekki
hefur verið þýdd á íslensku.
Swallows and
Amazons eftir Arthur
Ransome. Bók sem ekki
hefur verið þýdd á íslensku
en fjallar um fjögur börn og
ævintýri þeirra.
BÓKIN
Í dag verður opnuð skemmtileg
listasýning í Gerðubergi, Þetta
vilja börnin sjá. Á henni má sjá
myndskreytingar úr nýútkomnum
íslenskum barnabókum. Mynd-
skreytarnir keppa jafnframt um
íslensku myndskreytiverðlaunin
sem kennd eru við Dimmalimm.
Dómnefnd velur eina bók og
verða úrslitin kunngerð í Gerðu-
bergi við opnun sýningarinnar.
Starfsfólk Gerðubergs og
Borgarbókasafnsins bjóða 8 ára
skólabörnum upp á spennandi
dagskrá á sýningartímabilinu þar
sem þau fá að skoða sýningarnar
og taka þátt í spennandi leikjum á
bókasafninu. Á sama tíma verður
sýningin Strengir opnuð, þar sem
Messíana Tómasdóttir sýnir
leikbrúður, grímur og búninga.
Þátttakendur í sýningunni í ár
eru meðal annars Björk
Bjarkadóttir, Halldór
Baldursson, Helga
Egilson, Sigríður Lillý
Baldursdóttir, Sigrún
Eldjárn, Sólveig Stefáns-
son og Þórgunnur
Oddsdóttir.
Sýningin er opin virka
daga frá 11-17 og um
helgar frá 13-16.
Þetta vilja börnin sjá
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Sel javeg 2.
Frí heimsendingarþjónusta til eldri borgara og öryrkja.
Reykjavíkur Apótek býður
NOW vítamín og bætiefni með
20% afslætti út september.
Reykjavíkur Apótek er
sjálfstætt starfandi apótek sem
leggur áherslu á persónulega
þjónustu og hagstætt
verð. Apótekið er í gamla
Héðinshúsinu við Seljaveg 2.
Sel javegur 2 | S ími : 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap. is | reyap@reyap. is