Fréttablaðið - 16.01.2010, Blaðsíða 88
56 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR
KÖRFUBOLTI Ægir Þór Steinarsson
varð í fyrrakvöld fyrsti íslenski
leikmaðurinn í tæp sjö ár til þess
að ná því að skora 30 stig og gefa
10 stoðsendingar í einum og sama
leiknum. Ægir Þór var þá með 33
stig og 13 stoðsendingar í 111-109
útisigri Fjölnis á Grinda-
vík.
Ægir Þór er aðeins átján
ára gamall og á sínu fyrsta
ári í úrvalsdeildinni. Síð-
asti íslenski leikmaður-
inn til þess að ná því að
skora 30 stig eða gefa 10
stoðsendingar í sama
leiknum var Damon Johnson
sem gerði það í sigri Keflavíkur
á ÍR 27. mars 2003. Damon var
með 39 stig og 11 stoðsendingar í
leiknum.
Þeir Ægir og Damon eru aðeins í
hópi fjögurra annarra leikmanna í
úrvalsdeild karla frá og með 1999-
2000 tímabilinu sem hafa náð því
að leiða sóknarleik sinna liða bæði
í skori og sköpun. Meðal
þeirra er Tómas Holt-
on en sonur hans,
Tóm a s Heið a r
Tómasson, skoraði
einmitt sigurkörfu Fjölnis
í leiknum í Grindavík eftir
stoðsendingu frá Ægi Þór. - óój
Ægir Þór skoraði 33 stig og gaf 13 stoðsendingar:
Sá fyrsti í tæp sjö ár
FRÁBÆR Ægir Þór Stein-
arsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ST
O
FA
5
3
IE-deild karla:
Keflavík-Stjarnan 118-83
Stig Keflavíkur: Draelon Burns 30, Gunnar
Einarsson 23, Hörður Axel Vilhjálmsson 22,
Sverrir Sverrisson 9, Jón Nordal Hafsteinsson 9,
Sigurður Þorsteinsson 8, Gunnar Stefánsson 8,
Elentínus Margeirsson 7, Þröstur Jóhannsson 2.
Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 21, Jovan Zdra-
vevski 17, Fannar Helgason 14, Birgir Pétursson
11, Kjartan Atli Kjartansson 7, Magnús Helgason
6, Ólafur Ingvason 5, Birkir Guðlaugsson 2.
ÍR-KR 76-103
Stig ÍR: Nemanja Sovic 22, Michael Jefferson 20,
Gunnlaugur Elsuson 11, Steinar Arason 8, Hregg-
viður Magnússon 8, Kristinn Jónasson 3, Ásgeir
Hlöðversson 2, Benedikt Skúlason 2.
Stig KR: Semaj Inge 29, Tommy Johnson 26, Jón
Orri Kristjánsson 13, Brynjar Þór Björnsson 12,
Fannar Ólafsson 8, Skarphéðinn Ingason 7, Stein-
ar Kaldal 2, Egill Vignisson 2, Kristófer Acox 2.
Snæfell-Breiðablik 109-74
Stig Snæfells: Sigurður Þorvaldsson 22, Hlynur
Bæringsson 21 (18 frák.), Sean Burton 14, Jón
Ólafur Jónsson 13, Emil Jóhannsson 13, Sveinn
Davíðsson 10, Kristján Andrésson 5, Páll Helga-
son 3, Gunnlaugur Smárason 2.
Stig Breiðabliks: Jonathan Schmidt 19, Jeremy
Caldwell 13, Daníel Guðmundsson 13, Ágúst
Angantýsson 12, Rúnar Pálmarsson 8, Hjalti
Friðriksson 6, Gylfi Geirsson 3.
STAÐAN:
Njarðvík 13 11 2 1160-966 22
KR 13 11 2 1233-1063 22
Keflavík 13 10 3 1174-994 20
Stjarnan 13 10 3 1134-1058 20
Snæfell 13 9 4 1217-1060 18
Grindavík 13 8 5 1219-1049 16
ÍR 13 5 8 1077-1161 10
Hamar 13 5 8 1077-1124 10
Tindastóll 13 4 9 1079-1174 8
Fjölnir 13 3 10 1016-1054 6
Breiðablik 13 2 11 979-1166 4
FSu 13 0 13 871-1264 0
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Keflavík vann í gær
stóran og öruggan sigur á Stjörn-
unni á heimavelli sínum, 118-83, í
toppbaráttuslag í Iceland Express-
deild karla. Stjarnan féll úr öðru
sæti í það fjórða með tapinu en
Keflavík færðist upp um eitt, í það
þriðja. Liðin eru nú jöfn að stigum,
tveimur á eftir toppliðum Njarð-
víkur og KR.
Jafnræði var með liðunum í
fyrsta leikhluta en Keflvíking-
ar náðu undirtökunum í leiknum
með 14-0 spretti í öðrum leikhluta.
Stjörnumenn áttu í erfiðleikum
með öflugan varnarleik Keflvík-
inga, sér í lagi þegar Justin Shouse
var hvíldur.
Nýi Bandaríkjamaðurinn í liði
Keflavíkur, Draelon Burns, átti
mjög góðan leik í gær og skoraði 20
stig af sínum 30 í fyrri hálfleik.
Það var þó í þriðja leikhluta sem
Keflvíkingar gerðu endanlega út
um leikinn. Stjarnan skoraði tvö
stig í upphafi þriðja leikhluta en
svo ekki í næstum átta mínútur.
Á þeim tíma skoraði Keflavík 22
stig í röð og virtist hreinlega allt
falla með Keflvíkingum á þessum
kafla.
Gunnar Einarsson fór mikinn og
skoraði alls 20 af 23 stigum sínum
í síðari hálfleik. Hörður Axel Vil-
hjálmsson átti einnig mjög góðan
leik en fyrst og fremst var það öfl-
ugur varnarleikur sem skóp sigur
Keflvíkinga í gær.
„Ég held að þeir hafi brotnað
þegar við beittum okkar varnar-
afbrigðum í þriðja leikhluta og
þetta var aldrei spurning eftir
það. Við spiluðum mjög sterka og
góða vörn ásamt því að vera skyn-
samir í okkar sóknarleik. Það sem
við lögðum upp með fyrir leikinn
gekk ágætlega upp,“ sagði Guðjón
Skúlason, þjálfari Keflavíkur, eftir
leikinn.
Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörn-
unnar, var vitanlega ekki sáttur
við tapið. „Ég vil helst bara henda
þessum leik út um gluggann og
snúa mér að næsta verkefni. Þetta
gekk hræðilega illa hjá okkur. Við
létum allt fara í taugarnar á okkur
eins og aðkomulið eiga til að gera í
Keflavík. Þá náðu þeir upp ákveð-
inni stemningu og börðu okkur í
spað.“
Honum fannst þó ekki hallað á
hans lið í dómgæslunni. „Nei, alls
ekki. En ef við hefðum mætt þeim
í sama stíl þá hefði þetta getað
orðið ljótur leikur.“ Hann segir
niðurstöðuna þó ekkert áfall fyrir
sína menn.
„Við vorum komnir með fimm
sigurleiki í röð sem var það mesta
í deildinni. Nú þurfum við að koma
okkur aftur á sigurbraut. Þessi
leikur kemur okkur á jörðina og
ekkert annað að gera en að reyna
að læra af ósigrum sem þessum.“
eirikur@frettabladid.is
Stjörnunni var slátrað í
Sláturhúsinu í Keflavík
Keflavík gerði toppbaráttuna í Iceland Express-deild karla enn meira spennandi
með stórsigri á Stjörnunni, 118-83, í Sláturhúsinu í gær. Keflavík stöðvaði um
leið fimm leikja sigurgöngu bikarmeistaranna úr Garðabænum.
BARÁTTA Gunnar Einarsson Keflvíkingur reynir hér skot að körfu Stjörnunnar í leik
liðanna fyrr í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN