Fréttablaðið - 16.01.2010, Blaðsíða 7
Við færum höfuðstól verðtryggðra
húsnæðislána niður um 10%
islandsbanki@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 440 4000
Þú getur lækkað
höfuðstólinn
á verðtryggðu
húsnæðisláni
Með skilmálabreytingu hjá Íslandsbanka býðst
viðskiptavinum að lækka höfuðstól verðtryggðra
húsnæðislána og breyta þeim í óverðtryggð lán
í íslenskum krónum.
Hvernig lækkar höfuðstóllinn og hversu mikið?
Staða láns á umsóknardegi er uppreiknuð miðað við
vísitölu í nóvember 2009 og síðan lækkuð um 10%.
Hvað verður um lánið mitt?
Lánið breytist í óverð tryggt húsnæðislán með
25 eða 40 ára lánstíma.
Hverjir verða vextirnir?
Hægt verður að velja á milli breytilegra og fastra
vaxta. Breytilegir vextir í dag skv. vaxtatöfl u eru
8,5%. Boðið verður upp á stiglækkandi afslátt frá
þeim. Miðað við óbreytt vaxtastig þá yrðu vextir
fyrsta árið 6,5% sem er vaxtaafsláttur upp á
2 prósentustig. Einnig er boðið upp á fasta vexti
til þriggja ára sem í dag eru 7,6% að teknu tilliti
til afsláttar.
Get ég lækkað greiðslubyrðina á láninu mínu?
Já, hægt er að sækja um greiðslujöfnun á óverð-
tryggða láninu í þrjú ár, sem í fl estum tilfellum
lækkar greiðslubyrði lánsins umtalsvert. Að þremur
árum liðnum hefur viðskiptavinur val um hvort
haldið sé áfram í greiðslujöfnun eða ekki. Dæmi
um lækkun á greiðslubyrði má sjá á mynd B.
Hversu mikið lengist lánið í greiðslujöfnun?
Það er óvíst en greiðslujöfnun ofan á höfuðstóls-
lækkun hefur ekki þak á lengingu lánstíma.
Hverjir geta sótt um?
Allir viðskiptavinir Íslandsbanka með verðtryggð
húsnæðislán sem voru tekin fyrir 15. október 2008.
Lánið þarf að vera í skilum.
Hentar þessi lausn öllum?
Nei, hver og einn þarf að vega og meta kosti og
galla þess að breyta láni sínu með þessum hætti.
Þessi lausn hentar sumum betur en öðrum en einna
helst þeim sem hyggjast selja eign sína eða greiða
upp húsnæðislán sitt á næstu misserum.
Mun þetta kosta viðskiptavini eitthvað?
Skilmálabreyting kostar kr. 5.500 auk þinglýsingar-
gjalds en lántöku- og stimpilkostnaður er enginn.
Íslandsbanki hvetur alla til að kynna sér þá kosti
sem í boði eru og taka ákvörðun að vandlega
athuguðu máli.
Umsóknarfrestur er til 1. mars næstkomandi.
Reiknivél, dæmi og ítarlegri upplýsingar
er að fi nna á www.islandsbanki.is
Höfuðstóll – verðtryggð lán*
Höfuðstóll nú
Höfuðstóll
eft ir lækkun
20.000.000
18.000.000
Næsta greiðsla*
Greiðslubyrði nú
Greiðslubyrði
eft ir lækkun
og með
greiðslujöfnun
Greiðslubyrði
eft ir lækkun
95.000
106.000
82.000
* m.v. 20.000.000 kr. lán til 40 ára