Fréttablaðið - 16.01.2010, Blaðsíða 37
Bráðger börn Mikill áhugi er
augljóslega á því hvernig grunnskól-
inn getur betur komið til móts við
bráðgera nemendur. Á heimasíðu
Reykjavíkurborgar www.rvk.is kemur
fram að á málþingi menntasviðs
síðastliðinn fimmtudag var hvert
sæti skipað, en fyrirlesarar kynntu
meðal annars stigskipt verkefni og
leiðir til að skapa hvetjandi náms-
umhverfi fyrir nemendur með
óvenju skapandi hugsun. Þá var
farið yfir niðurstöður PISA-könnunar um stöðu bráðgerra
nemenda. Í máli Almars Halldórssonar, sérfræðings hjá Náms-
matsstofnun, kom fram að samkvæmt PISA-könnunum er
hlutfall bráðgerra nemenda að jafnaði um níu prósent í OECD-
löndum og skera þeir sig úr á ýmsan veg. Á Íslandi er hlutfallið
svipað, en í stærðfræði er hlutfall afburðanemenda hærra.
Ánægjan og áhuginn virðist stýra miklu um árangur nemenda í
skóla og staðfesta rannsóknir hér á landi beint samhengi þar á
milli.
„Helsta niðurstaða málþingsins hafi verið að í stað þess að
reyna að mæta þörfum bráðgerra nemenda með sértækum
úrræðum eða verkefnum, eins og áður var gert, leitast skólinn
nú við að koma til móts við þarfir sérhvers nemanda ... Bráðger-
ir nemendur eru meðal annars skilgreindir sem þeir sem sýna
snemma mikla hæfileika, eiga auðveldara með að hugsa
óhlutbundið og leysa flókin og óvænt verkefni, eru óvenju
skapandi og hugmyndaríkir, rökfastir, vinna skipulega og ná
háum einkunnum,” segir í frétt Reykjavíkurborgar.
HVAÐA SKÓLI? Lögheimili nemenda ræður
því í hvaða hverfisskóla þeir eiga námsvist. En
allir foreldrar eiga kost á að sækja um skóla fyrir
börn sín hvar sem er í borginni.
NÁM
(Alþýðublaðið janúar 1930)
Opið hús sunnudaginn 17. janúar kl. 14 - 16
Frá opnun Hótels Borgar árið 1930 höfum við tekið
á móti tugþúsundum litríkra karaktera; kóngafólki,
fegurðardrottningum, flugköppum, frelsishetjum,
kvikmyndastjörnum og allra handa fólki frá öllum
heimshornum. Eftir alla þessa æfingu teljum við
okkur reiðubúin að taka höfðinglega á móti þér.
Skoðunarferð um hótelið, sem hefur nýlega verið
endurgert af fágun og glæsileika, sem sameinar
það besta af anda fjórða áratugarins og þægindum
nútímans. Hápunkturinn er heimsókn í turn-
svítuna en af efri hæð hennar er stórkostlegt út-
sýni til allra átta. Einnig býður veitingastaðurinn
Silfur á Hótel Borg upp á kaffi og pönnukökur líkt
og venja er þegar góðir gestir koma í heimsókn.
Fagnaðu afmælinu með okkur og sjáðu innviði eins
helsta kennileitis miðborgarinnar, Hótels Borgar.
Pósthússtræti 11 101 Reykjavík Sími: 551 1440