Fréttablaðið - 16.01.2010, Qupperneq 12
12 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Hamfarir á Haítí
Ljóst þykir að fjöldi látinna eftir
jarðskjálftann á Haítí nemur tugum
þúsunda, þótt enn sé of snemmt að
nefna nákvæma tölu. Alþjóða Rauði
krossinn telur að fjöldinn nálgist
fimmtíu þúsund. Ólíklegt þykir nú
að hundruð þúsunda hafi farist,
eins og ráðamenn á Haítí óttuðust
í fyrstu.
Aðstæður til björgunar eru afar
erfiðar og út um alla höfuðborgina
Port-au-Prince eru lík hinna látnu,
sums staðar eitt og eitt á stangli en
annars staðar í hrúgum.
„Allir eru með klút eða eitthvað
fyrir vitum sér, því lyktin er óbæri-
leg. Það eru bókstaflega lík úti um
allt,“ segir Karel Zelenka, starfs-
maður kaþólskrar hjálparstofnun-
ar í borginni.
Líkin eru það mörg að enginn tími
vinnst til að bera kennsl á þau, að
því er fram kemur á fréttavef BBC.
Þess í stað eru mörg þeirra sett í
fjöldagrafir og það bíður síðari tíma
að finna út úr því hverjir létu lífið í
skjálftanum.
Þrjár milljónir manna, eða um
þriðjungur allra íbúa Haítí, eru tald-
ar þurfa á neyðaraðstoð að halda.
Töluverðar skemmdir urðu á flug-
vellinum í Port-au-Prince, með þeim
afleiðingum að flugvöllurinn getur
engan veginn annað þeirri þörf sem
er fyrir aðflutning hjálpargagna og
aðstoðar. Vegasamgöngur yfir til
Dóminíska lýðveldisins, sem er á
sömu eyju og Haíti, eru afar erfið-
ar og gagnast vart til að flýta fyrir
því að hjálpargögn berist.
Sjúkrahúsin í Port-au-Prince eru
einnig flest illa farin og þau sem
eftir standa ráða engan veginn við
þörfina. Reynt er að hlúa að hinum
særðu í tjaldskýlum og bráðabirgða-
húsnæði hvers kyns, eða jafnvel
bara úti á götu.
Bandaríkjamenn hafa sent þús-
undir hermanna til Haítí, bæði
til að taka þátt í björgun og til að
gæta öryggis. Talin er hætta á að
til átaka komi vegna örvænting-
ar heimamanna þegar hjálp berst
seint. Ástandið hefur þó verið betra
en óttast var að það gæti orðið og
fréttir af því að hjálpargögnum
hafi verið stolið frá Sameinuðu
þjóðunum reyndust orðum aukn-
ar, þótt eitthvað hafi verið um slíka
þjófnaði.
Bandaríkjamenn hafa einnig sent
flugmóðurskipið USS Carl Vinson
til Haítí, með 19 þyrlur sem þegar í
stað voru teknar í notkun við björg-
unarstörfin. Tvö kanadísk og eitt
jamaískt herskip eru einnig fyrir
utan höfuðborgina til stuðnings
björgunarfólki.
Bandaríska sjúkrahússkipið
USNS Comfort verður einnig sent
til Haítí á næstu dögum. Þar eru
tólf skurðstofur og legupláss fyrir
þúsund sjúklinga, þar af áttatíu á
gjörgæslu. gudsteinn@frettabladid.is
Björgunarstarf í kappi við tímann
Björgunarsveitir glíma við afar erfiðar aðstæður á Haítí og litlar líkur á að nokkur finnist nú á lífi í rústunum. Reynt er að koma mat,
vatni, lyfjum og öðrum nauðsynjum eftir megni á staðinn. Tala látinna skiptir tugum þúsunda, nálgast líklega um fimmtíu þúsund.
LÆKNISHJÁLP UNDIR BERUM HIMNI Brasilíski herinn kom upp hjúkrunaraðstöðu í
herbúðum sínum í borginni. NORDICPHOTOS/AFP
LÍK Á GÖTUNUM Stæk lykt og sýkingarhætta stafar af líkum sem liggja á víð og dreif í
borginni. NORDICPHOTOS/AFP
BEÐIÐ EFTIR AÐSTOÐ Heimilislaust fólk reynir að bjarga sér eftir bestu getu á götum
og torgum borgarinnar. NORDICPHOTOS/AFP
EYÐILEGGINGIN BLASIR VIÐ Svona er umhorfs víða í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí, sem að mestu lagðist í rúst við jarðskjálft-
ann á þriðjudag. NORDICPHOTOS/AFP