Fréttablaðið - 16.01.2010, Page 40
16. janúar 2010 LAUGARDAGUR2
„Ég stökk í rauninni út í djúpu
laugina,“ segir Hanna Pétursdótt-
ir fatahönnuður sem útskrifaðist
úr Hogeschool voor de Kunsten í
Utrecht í Hollandi árið 1998. „Ég
starfaði lengi í Hollandi en fylgd-
ist vel með því sem var að ger-
ast á Íslandi og vissi að þar væri
gróskan að aukast og hönnuðir að
opna búðir með eigin vörum. Fjar-
lægðin hafði þau góðu áhrif að ég
sá ullina í nýju ljósi og uppgötvaði
hversu sérstök og spennandi við-
fangsefni hún er og með óteljandi
markaðsmöguleika. Við heimkomu
2004 ákvað ég því að þreifa fyrir
mér og tók þá ákvörðun að opna
búð, sem einfaldlega heitir Hanna,
eins og hönnunin,“ segir hún og
brosir. „Þetta eru kvenmannsföt
þar sem ég nota efni eins og ull,
bómull, silki og satín. Aðaláhersla
er lögð á þæfingu ullar í mismun-
andi undirlag. Flestar flíkurn-
ar má nota á margan hátt. Sömu
flíkina má oft nota bæði til þess
að klæða sig upp á, eins og fyrir
árshátíð, eða nota hversdags eins
við gallabuxur.
Hanna segir breytingarnar sem
orðið hafa í fatahönnun á síðustu
árum gífurlegar. „Um það leyti
sem ég fór út var ekki óalgengt að
fólk spyrði okkur hvað við værum
að föndra en nú er viðhorfið allt
annað. Í Hollandi er sterk hefð
fyrir hönnun og hönnuðir hafðir
með í flestum verkefnum. Innan
tíðar mun verða merkilegur tísku-
viðburður, Reykjavík Fashion
Festival, en hann verður haldinn
í Reykjavík 19. og 20. mars. Ég
mun taka þátt í honum og hlakka
mikið til. Markmiðið er að reyna
að kynna íslenska hönnun mark-
visst erlendis svo sómi sé að.“
Erlendir ferðamenn eru mjög
hrifnir af íslenskri hönnun. „Þetta
er ekki hinn dæmigerði ferðamað-
ur, heldur þeir sem eru í menning-
arreisu og eiga peninga. Ferða-
menn eyða meiru núna en áður,
hver viðskiptavinur kaupir meira
og þjóðirnar eru fjölbreyttari,“
segir Hanna og hver veit nema
fatahönnun verði ein af helstu
útflutningsvörum Íslands í fram-
tíðinni. Gróskan er að minnsta
kosti mikil. - uhj
Ferðamenn eyða meiru
í íslenska hönnun
Hanna Pétursdóttir fatahönnuður opnaði verslunina Hönnu þar sem hún selur föt undir nafninu Hanna.
Hún segir erlenda ferðamenn á menningarreisu um landið sólgna í íslenska hönnun.
Hanna í verslun sinni Hönnu á Laugavegi 20b. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hanna notar efni eins og ull, bómull, silki og satín í fatahönnun sinni. MYND/HÖRÐUR ELLERT
Síðasta sýningarhelgi sýningarinnar Einu sinni er
verður í Norræna húsinu um helgina.
Hugmyndin að sýningunni varð til á fundi hjá Hand-
verki og hönnun í maí 2008, en hún gengur út á að
hvetja til nýsköpunar og vöruþróunar með því að
stefna saman tveimur ólíkum listamönnum. Tólf ein-
staklingar voru valdir af Handverki og hönnun og
hver þeirra valdi sér samstarfsaðila og var geng-
ið út frá því að sá yrði af öðru sviði og af annarri
kynslóð.
Þema sýningarinnar, „gamalt og
nýtt“, var valið í samvinnu við hóp-
inn. Á sýningunni eru nytjahlutir
sem unnir eru af þessum tólf pörum.
Norræna húsið er síðasti viðkomustað-
ur sýningarinnar. Hún var fyrst sett upp í
Safnasafninu á Svalbarðseyri í apríl á þessu
ári en hefur síðan verið sett upp á Ísafirði,
Egilsstöðum, Sauðárkróki og í Listasafni
Árnesinga, Hveragerði.
Einu sinni er líður undir lok
Aparím
með Apalín eftir Guðnýju
Hafsteinsdóttur og Karen
Ósk Sigurðardóttur.
Verk eftir George Hollanders og
Guðrúnu Á. Steingrímsdóttur.