Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.01.2010, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 16.01.2010, Qupperneq 42
„Fjölskyldujóga er frábær samveru- stund fyrir fjölskylduna í víðasta samhengi þess orðs. Þarna komum við saman á öllum aldri, allt frá þriggja ára og upp úr,“ segir Ásta Arnardóttir, sem fer í dag af stað með námskeið í fjölskyldujóga hjá Lótus jógasetri í Borgartúni. „Við erum saman í klukkutíma og vinnum með grunnstefin í hatha- jóga. Förum yfir jógastöður og öndunaræfingar,“ útskýrir Ásta en á námskeiðinu verður markmiðið að rannsaka skynfærin fimm, augu, eyru, munn, nef og húð og hvernig við skynjum lífið með þeim. „Síðan slökum við á, syngjum og jafnvel dönsum.“ Ásta hefur kennt fjölskyldujóga af og til í nokkur ár. Hún stofnaði jógasetrið með Auði Bjarnadótt- ur árið 2002 en hefur einnig kennt leiklist og spuna í Kramhúsinu og víðar og séð um listsmiðjur. „Sú reynsla fléttast síðan inn í kennsl- una,“ segir Ásta. En hvert er markmið fjölskyldu- jóga? „Það er að mæta til leiks handan við hefðbundin fjölskyldu- hlutverk og njóta þess að vera til í augnablikinu,“ svarar Ásta og bætir við að börnin séu frábærir kennar- ar í því. En hvernig finnst börnum að fara í jóga? „Það er misjafnt alveg eins og með fullorðna, segir Ásta og hlær, „sumum finnst það æðislegt og öðrum ekki.“ Námskeið Ástu í fjölskyldujóga hefst í dag og verður næstu fjóra laugardaga. Allur ágóði rennur til styrktarfélagsins Sóley og félagar. Markmið þess er að styðja við starf- semi systur Victo sem hefur opnað faðm sinn fyrir heimilislausum börnum í Tógó. „Mér finnst þetta frábært starf og langaði að varpa ljósi á hugmynd okkar um fjöl- skyldu og koma að þeirri hugsun að við erum í raun öll ein fjölskylda og jörðin okkar heimili.“ Nánari upplýsingar um námskeið- ið er að finna á vefsíðunni www.this. is/asta solveig@frettabladid.is Börnin eru frábærir kennarar Ásta Arnardóttir jógakennari stendur fyrir námskeiði í fjölskyldujóga í dag og næstu fjóra laugardaga. Allur ágóði rennur til Sóleyjar og félaga en Ásta vill minna á að heimurinn er ein stór fjölskylda. „Þarna komum við saman á öllum aldri, allt frá þriggja ára og upp úr,“ segir Ásta sem stendur fyrir námskeiði í fjölskyldujóga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BÓNDADAGURINN nálgast. Af því tilefni mun Félag harmonikuleikara í Reykjavík spila fyrir dansi í betri stofu Víkur- innar - Sjóminjasafnsins Grandagarði 8 milli klukkan 15 og 17. Meðal annars er um að ræða mót- mælaspjöld, ílát, dreifibréf, gashylki og fleira sem kom frá almenningi eða var safnað á vettvangi. Í tilkynn- ingu kemur fram að safnið vilji leita álits hjá almenningi á því sem safnast hefur og kalli nú eftir aðstoð við að velja hvað á að varðveita. Það er ekki alltaf auðvelt að nota gripi til að varpa ljósi á sög- una en hlutverk safna er engu síður að varðveita heimildir um tíðar- anda og atburði. Í Þjóðminjasafn- inu má til dæmis finna höggstokk þar sem nafngreint fólk var gert höfðinu styttra, kórkápu Jóns Arasonar, kaffi- kvörn Eggerts og Bjarna og húsgögn Jóns Sigurðssonar. Allt hlutir sem bera ákveðnu fólki og atburðum vitni. Samhliða sýningunni sendir safnið út spurningaskrá um kreppuna sem verður aðgengileg á heimasíðu safns- ins, natmus.is, og á sýningunni og eru áhugasamir hvattir til að svara henni. Sýningin stendur yfir til 8. mars næst- komandi. Mótmælasýning í Þjóðminjasafninu Á TORGI ÞJÓÐMINJASAFNSINS VERÐUR Í DAG OPNUÐ SÝNING Á GRIPUM SEM KOMU VIÐ SÖGU Í MÓTMÆLUM Í KJÖL- FAR EFNAHAGSHRUNSINS 2008. Munirnir eru allt frá mótmælaspjöldum og gashylkjum til dreifibréfa.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.