Fréttablaðið - 16.01.2010, Side 54

Fréttablaðið - 16.01.2010, Side 54
LAUGARDAGUR 16. janúar 2010 12 Glænýtt svið var töfrað fram í Laugardalslauginni í gærkveldi þar sem glæsileg opnunarhátíð alþjóðlegu Reykjavíkurleikanna fór fram sem endaði með sundlaug- arpartíi. Í dag og á morgun verður keppt í sundi bæði fatlaðra og ófatl- aðra, frjálsum íþróttum, badmin- toni, dansi, fimleikum, skylming- um, keilu, listhlaupi á skautum og júdói. Almenningi er að sjálfsögðu frjálst að fylgjast með og aðgangur er ókeypis í mörgum tilfellum. „Þetta er afreksíþróttamót og hér er fullt af öflugum keppend- um, bæði íslenskum og erlendum,“ segir Kjartan Ásmundsson. Hann er verkefnastjóri leikanna fyrir hönd Íþróttabandalags Reykja- víkur sem sér meðal annars um umgjörð þeirra, opnunarhátíð og lokahóf en hver íþróttagrein er á ábyrgð einstakra félaga og sam- banda innan ÍSÍ. Reykjavíkurleikarnir eru haldnir nú í þriðja sinn með þessu fjölbreytta sniði en áður höfðu verið haldin alþjóðleg mót í sundi og frjálsum íþróttum í jan- úar í nær tvo áratugi. Fyrirlestr- ar um afreksíþróttamennsku eru nýjung í ár. Þeir eru undir yfir- skriftinni „listin að sigra“. Í dag flytja Viðar Halldórsson íþrótta- félagsfræðingur, Róbert Magn- ússon sjúkraþjálfari og Ólafur Sæmundsson næringarfræðing- ur erindi á íslensku og á morgun verða Viðar og Róbert með sína fyrirlestra á ensku, auk þess sem sundþjálfarinn Finn Zachariass- en bætist við. Kjartan segir keppendurna á leikunum vera á ýmsum aldri eftir greinum. „Keppendur í list- hlaupi á skautum eru ungir, líka í fimleikum og dansi en þeir sem keppa í keilu eru eldri þannig að aldursbilið er kannski frá fjór- tán ára upp í fertugt. Markmiðið með mótinu er að auka samkeppn- ishæfni íslensks afreksfólks í íþróttum og draga úr ferðakostn- aði þess með því að fá til landsins sterka erlenda keppendur. Hér í Laugardalnum höfum við allt til alls, frábær mannvirki með stuttu millibili og gististaði allt í kring.“ Lokahátíðin verður á Broadway annað kvöld. Auk veitinga verða þar veittar viðurkenningar fyrir besta árangur í einstökum grein- um og Páll Óskar mun halda uppi fjöri. En af hverju valdi ÍBR ein- kunnarorðin friður á jörð? Kjart- an svarar því svo: „Það er alger- lega klassískt og á vel við svona leika. Það er hasar og læti meðan á keppni stendur en svo sættast allir í lokin.“ gun@frettabladid.is Læti meðan á leikum stendur en að lokum sátt Um tvö þúsund afreksmenn í íþróttum eru mættir til leiks í hinum ýmsu greinum því Reykjavík Inter- national Games 2010 fer fram í Laugardalnum í dag og á morgun. Þemað er friður á jörð. „Þetta er afreksíþróttamót og fullt af öflugum keppendum, bæði íslenskum og erlendum,“ segir Kjartan Freyr og nefnir sem dæmi Alexander Dale Oen sem var annar í bringusundi á Ólympíuleikunum í Peking 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Margret Demleitner kennari Lífsskólans ehf. verður með námskeið helgina 23.-24. janúar kl. 9 til 17 báða dagana og þriðjudaginn 26. jan frá kl 18 til 22. Greiðslan er 30.000 sem má skipta. Kennslugögn eru innifalin. Margret Demleitner er iðjuþjálfi , náttúrulæknir/heilpraktier, grasa- læknir og ilmolíufræðingur og stundar einnig nálastungumeðferðir. Á námskeiðinu verður farið yfi r infl úensur A, B og Svínafl ensu, orsakir þeirra, útbreiðslu og náttúrulegar meðferðir við þeim. Einnig verður farið í orsakir blóðtappa og heilablæðinga. Fyrirbyggjandi aðferðir og meðferð eftir áfall Skráning og upplýsingar í síma 557 7070 og á vefpósti lifsskolinn@simnet.is einnig á heimasíðu skólans www.lifsskolinn.is Lífsskólinn ehf. Aromatherapyskóli Íslands SAHAJA YOGA Í hverjum manni leynist hárfín orka sem liggur í dvala í spjaldbeininu. Orka þessi skerpir athygli þína, eykur starfsgetu og lífsþrótt og fyrirbyggir sjúkdóma. Kynningarnámskeið haldin 1. og 3. hvern mánudag í hverjum mánuði að Dalbraut 27, 105 Reykjavík. Öll námskeiðin eru ókeypis. Upplýsingar í síma 846 9570 eða 897 7434 www.sahajayoga.is „Þú færð ekki skilið tilgang þinn í lífinu fyrr en þú hefur tengst orkunni sem skapaði þig“ Shri Mataji Nirmala Devi, Stofnandi Sahaja Yoga Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is - sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is - sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is - sími 512 5447 LAURA ASHLEY Faxafeni 14 │108 Reykjavík │sími 551-6646 Opið virka daga 10-18 │ laugardaga 10-14 Útsalan er hafin Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.