Fréttablaðið - 16.01.2010, Page 66
34 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR
K
ynslóð íslenskra myndlistarmanna á það
sammerkt að alast upp við sjónmenn-
ingu sem mótuð er af myndasögum,
tölvugrafík og götulist, og verk hennar-
einkennast af mikilli litagleði og sjálf-
sprottnum formum. Listamennirnir á
sýningunni Ljóslitlifun eru þau Davíð Örn Halldórs-
son, Gabríela Friðriksdóttir, Guðmundur Thoroddsen,
Heimir Björgúlfsson, Helgi Þórsson, Jón Henrysson,
Ragnar Jónasson, Sara Riel, Sigga Björg Sigurðardótt-
ir, Sigtryggur Berg Sigmarsson og Þórdís Aðalsteins-
dóttir og sýningarstjóri er Hafþór Yngvason. Vegleg
bók hefur verið gefin út í tengslum við sýninguna og
tilvitnanir úr henni birtast hér með myndunum. Þess
má geta að á morgun verður listamannaspjall í tengsl-
um við sýninguna í Hafnarhúsinu klukkan 15.
Litagleði hinna
ungu málara
Sýningin Ljóslitlífun opnaði í gærkvöldi í Listasafni Reykjavíkur með
verkum íslenskra málara. Fréttablaðið birtir hér sýnishorn af þeim litríku
straumum sem er að finna í íslenskri myndlist í dag.
„LITIRNIR ERU ANDRÚMSLOFTIÐ.“ Sara Riel, Án titils, 2008 Akrýl á striga 150 x 140 cm
„LITURINN ER
ÞAÐ BRÝNASTA.
ÉG LEGG Á MIG
SJÁLFSKIPAÐA LITA-
ÞERAPÍU Í ÖLLUM
VERKUM.“ Davíð
Örn Halldórsson,
Hjartavernd, 2009.
„HANN NOTAR ÞRÓTTMIKLA LITI IÐANDI AF LÍFI.“ Jón Henrysson, Lukkuriddarar
1/10.
„ÞÓRDÍS AÐAL-
STEINSDÓTTIR
FÆST LÍKA VIÐ HIÐ
LÍTILMÓTLEGA OG
NOTFÆRIR SÉR
BANNHELGAR
OG ÓVIÐUNANDI
HEGÐUN, GEFUR
INNRI DJÖFLUM
OG VIÐBJÓÐI
LAUSAN TAUMINN
EN MEÐ EINKAR
YFIRVEGUÐUM,
HLUTLAUSUM OG
NOSTURSÖMUM
MÁLUNARSTÍL.“
Reykjandi maður.
Akrýl á striga 91x91
cm Með leyfi frá
STUX Gallery, New
York.
„FLÆÐI HUGMYNDI OG SKÖPUNAR EYKST VIÐ ÞAÐ AÐ MÁLA.“ Helgi Þórsson, Án
titils, 2009.