Fréttablaðið - 16.01.2010, Side 70
38 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 512 5000.
ÁRNI BJÖRNSSON ÞJÓÐHÁTTAFRÆÐ-
INGUR ER FÆDDUR ÞENNAN DAG
ÁRIÐ 1932.
„Þjóðsagan getur vissu-
lega verið vitrari en
sagnfræðingarnir.
Árni var forstöðumaður þjóð-
háttadeildar Þjóðminjasafns Ís-
lands frá 1969 til 2002. Hann er
líka rithöfundur. Ein merkasta bók
hans er Saga daganna sem fjallar
um merkisdaga á Íslandi. Hún er
jafnframt doktorsritgerð hans sem
hann varði 1993.
MERKISATBURÐIR
1605 Fyrsta útgáfa Don Kíkóta
eftir Miguel de Cervantes
kemur út í Madríd.
1945 Adolf Hitler fer í byrgi sitt.
1947 Talsímasamband milli Ís-
lands og Bandaríkjanna er
opnað.
1960 Selma Jónsdóttir listfræð-
ingur ver doktorsritgerð
við Háskóla Íslands fyrst
kvenna.
1966 Metropolitan-óperan er
opnuð í New York.
1995 Snjóflóð fellur í Súðavík
með þeim afleiðingum að
fjórtán manns farast.
2005 Adriana Iliescu fæðir barn
66 ára gömul og er elsta
nýbakaða móðirin í heim-
inum.
Búnaðarbanki Íslands var seldur þennan
dag árið 2003, síðastur íslensku bankanna
þriggja. Þar með var beinni þátttöku ríkisins
í íslensku bankakerfi lokið – að sinni. Kaup-
verðið var tæpir tólf milljarðar. Svokallaður
S-hópur, með Ólaf Ólafsson, forstjóra Sam-
skipa, í broddi fylkingar keypti 45,8 prósent
hlut í bankanum en afgangurinn seldist í al-
mennu útboði á genginu 4,81.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og
Geir H. Haarde fjármálaráðherra skrifuðu undir
samningana fyrir hönd ríkisins en S-hópur-
inn samanstóð af fólki í fyrirtækjunum Keri,
VÍS, Samvinnulífeyrissjóðnum og Eignarhaldsfé-
laginu Samvinnutryggingum. Þýski einkabank-
inn Hauck Aufhäuser var tilgreindur sem einn af
kaupendum með S-hópnum og hann lagði fram
rúma fjóra milljarða króna. Samningar gengu út
á að kaupverðið yrði greitt í dollurum að tveim-
ur þriðju hlutum.
ÞETTA GERÐIST: 16. JANÚAR 2003
Búnaðarbankinn var seldur
GENGIÐ FRÁ MÁLINU. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mánudaginn 18. janúar eru 80 ár síðan
Hótel Borg tók fyrst til starfa en það
var glímukappinn Jóhannes Jósefs-
son, eða Jóhannes á Borg, sem ásamt
konu sinni, Karólínu Guðlaugsdóttur,
lagði allt sitt fé í að reisa hótelið. Í dag
reka KEA-hótel Hótel Borg og hafa
gert í fimm ár en Ólafur Þorgeirsson
er hótelstjóri.
„Á þeim fimm árum sem við erum
búin að reka hótelið hafa fjögur ár
farið í að endurbyggja það,“ segir
Ólafur en innviði hótelsins voru komin
á tíma þannig að í dag er allt nýtt innan
hótelsins nema steypan sjálf.
„Endurbæturnar eru allar í art deco-
stíl, sem Guðjón Samúelsson, arkitekt
og húsameistari ríkisins, hafði til við-
miðunar þegar hann teiknaði húsið.
Þannig voru ný húsgögn til að mynda
flutt inn frá þýsku art deco-fyrirtæki
sem sérhæfir sig í smíði húsgagna sem
samsvara húsgögnum frá 1930 í útliti
og gerð. Þannig að þrátt fyrir að allt
sé nýtt, þá er gamla stílnum haldið og
sál hússins og ég held að Jóhannes yrði
stoltur ef hann sæi hótelið í dag.“
Að sögn Ólafs vilja gestir hótelsins
gjarnan fá að skoða það í bak og fyrir
og ræða sögu þess. Í dag eru gestir
hótelsins flestir erlendir en þó á hót-
elið mikið af fastagestum, Íslending-
um búsettum erlendis sem og útlend-
ingum, sem koma reglulega og sækja
hótelið heim. „Gestir hótelsins eru allt
frá ferðamönnum og upp í þekkta leik-
ara og höfðingja og svo allt þar á milli.
Margir hafa taugar til hótelsins enda
þekkir maður það sjálfur, sem borinn
og barnfæddur Reykvíkingur, hvað hót-
elið er mikið stolt borgarinnar. Það er
því búið að vera mjög gaman að vera
með í þessum breytingum því þetta er
mikil og falleg bygging. Páll Hjaltason,
arkitektinn sem kom að þessu, sagði
að það sem hann hefði viljað gera árið
1992, þegar byrjað var á endurbótum
af fyrri eiganda, hafi verið klárað núna
alla leið þannig að við erum mjög stolt
yfir afrakstrinum.“
Nú á sunnudag verður Hótel Borg
með opið hús fyrir gesti og gangandi
sem vilja skoða breytingarnar en hótelið
mun bjóða upp á rjómapönnukökur og
kaffi í tilefni þess og afmælisins.
En á svo gömlu hóteli, eru þá engir
gamlir „andar“ sem svífa yfir vötn-
um? „Þegar Jóhannes og Karólína
ráku hótelið bjuggu þau einnig sjálf á
hótelinu, í turnsvítunni, sem er afar
glæsileg, en þau skildu síðar og þá bjó
Karólína ein í turninum. Sumir segjast
finna fyrir sál hennar en við verðum í
það minnsta ekki vör við annað en það
sé þá afar góð sál í húsinu.“
juliam@frettabladid.is
HÓTEL BORG: MEÐ OPIÐ HÚS Í TILEFNI 80 ÁRA AFMÆLIS
VISS UM AÐ JÓHANNES YRÐI
STOLTUR AF HÓTELINU Í DAG
GAMLA STÍLNUM HALDIÐ Í BREYTINGUM Ólafur Þorgeirsson, hótelstjóri Hótel Borgar, mun
ásamt starfsfólki hótelsins taka á móti gestum og gangandi á sunnudag og kynna breytingar
hússins. Hér er Ólafur til hægri ásamt yfirkokki Hótel Borgar, Hafþóri Sveinssyni. MYND/GVA
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Hörður Þórðarson
Hábergi 24,
lést á Landspítalanum Fossvogi, föstudaginn 15. janúar.
Sigríður Sóley Magnúsdóttir
Margrét Harðardóttir Svavar Magnússon
Helga Magnea Harðardóttir Hafliði Jóhann Hafliðason
Inga Mjöll Harðardóttir Guðlaugur Þór Ásgeirsson
Guðný Harðardóttir Valur Emilsson
Hrönn Harðardóttir Júlíus Hjörleifsson
Hörður Harðarson Margrét Dóra Árnadóttir
Svanhildur Ólöf Harðardóttir Þorfinnur Hjaltason
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar
Hrafns Sæmundssonar.
Stuðningur ykkar er mikils virði.
Ester Hulda Tyrfingsdóttir
Agnes Huld Hrafnsdóttir Páll Breiðfjörð Pálsson
Hulda María Hrafnsdóttir Björn Hersteinn
Herbertsson
Berglind Hrönn Hrafnsdóttir Ólafur Vignir Björnsson
Eva María, Viktor Hrafn, Páll Elvar, Sindri Freyr,
Hrafnhildur, Zophanías, Ester Hulda, Fjölnir Þór
og Alma Júlía.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Guðbjarni Jóhannsson
húsasmíðameistari
Vesturgötu 98, Akranesi,
lést á Landspítalanum mánudaginn 11. janúar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
19. janúar kl. 14.00.
Bára Guðjónsdóttir
Jóhann Rúnar Guðbjarnason Margrét Björg Marteinsdóttir
Guðrún Guðbjarnadóttir
og barnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, bróðir og afi,
Bjarni G. Bachmann
fv. kennari og safnvörður,
Helgugötu 10, Borgarnesi,
lést á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, miðvikudag-
inn 13. janúar 2010.
Anna Þ. Bachmann
Þórður Bachmann Björg H. Kristófersdóttir
Guðrún K. Bachmann Pétur Guðmundsson
Guðjón Bachmann Kristín Anna Stefánsdóttir
Atli Bachmann
Þórhildur Kristín Bachmann
og barnabörn.