Fréttablaðið - 16.01.2010, Síða 78

Fréttablaðið - 16.01.2010, Síða 78
46 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR OKKUR LANGAR Í … utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson Sýn margra hönnuða fyrir næsta vor og sumar er sérlega létt og kvenleg og virðist jafnvel innblásin af fornum gyðjum. Kjólar og buxnasamfestingar voru rykktir og með fellingum og einnig var mikið um slík pils og blússur. Þessa tískubylgju mátti sjá aðallega hjá Lanvin, Stellu McCartney og Isabel Marant og litir voru allt frá ferskjubleikum yfir í grátt og kóngablátt. - amb FELLINGAR OG RYKKINGAR NÆSTA VOR: KVENLEG MÝKTAPPELSÍNU-GULT Falleg siffonblússa við ljósbleikt pils frá Lanvin. KÓNGABLÁTT Fallegur stutt- ur sumarkjóll frá Lanvin. NÚTÍMALEGT Grátt dress úr prjónaefni frá Haider Acker- man. TÖFF Flott samsetning af buxum, skyrtu og jakka hjá Isabel Marant. SAMFESTINGUR Grár buxnasam- festingur frá Isabel Marant. KAMPA- VÍNSLITAÐ Dásam- legur sam- festingur tekinn saman í mittið frá Lanvin. > SARAH JESSICA VINNUR FYRIR HALSTON Bandaríska tískuhúsið Halston sem hefur verið í uppbyggingu á ný eftir að hafa verið eitt vinsælasta merki áttunda áratugarins, hefur tilkynnt að leikkonan Sarah Jessica Parker muni fá háttskipað starf hjá þeim. Er talið að hún muni vinna með hönnunar- teyminu. Nýja og endurbætta Double Wear- augnblýantinn frá Estée Lauder. Helst á augunum – lengi! Flottan hnýttan klút frá hönnuðinum Philippe Clause. Dásamlega nýja ilm- vatnslínu frá Make Up Store en þar eru á ferð nútímalegar og girnilegar ilm- tegundir fyrir allar gerðir kvenna. Einhvern tímann í haust rambaði ég á japanska vefsíðu um fyrirbærið „Ganguro girls“. Eins og flestir vita búa Japanir að stórfenglegri götu- tísku sem skiptist í alls konar hópa og þessi „Ganguro“-stíll er einn af þeim. Það sem vakti furðu mína og kátínu þegar ég horfði á kennslu- myndband um „Ganguro“-málningu var að japanskar stelpur byggja lúkkið á hinni vestrænu skinku. Förðunin er eftirfarandi: sérlega dökkbrúnu meiki er makað á andlitið. Hvítum augnskugga er makað yfir augnlokin og undir augun, og svo svörtum blýanti meðfram aug- unum. Þetta er kórónað með miklum varablýant, bleikum varalit og svörtum strikum á augabrúnirnar. Það sem er skemmtilegast við þessa Tókíó-tísku er að einhvern veg- inn taka þær skinkuna skrefinu lengra. Þannig fer skinkulúkkið allan hringinn og hættir að verða hallærislegt og verður í staðinn næstum því töff, svona á skrýtinn hátt. Svo kóróna þær þetta með gersamlega yfirgengilegum skinkudressum, stuttum þröngum bleikum pilsum, hvítum bolum þar sem sést í brjóstaskoruna og strípulitað ljóst hár með Paris Hilton-legum tíkarspenum. Ganguro þýðir „svart andlit“ hjá Japönum og þetta útlit þykir fremur exótískt fyrir þjóð sem einkennist af fölum húðar lit og hrafn- tinnusvörtu hári. Reyndar var stíllinn líka innblásinn af japanskri klámmyndastjörnu, Ai Iijima, sem var voðalega fræg á tíunda áratugnum og gekk í litríkum og kynþokka- fullum fatnaði. En svona þegar maður spáir í það þá er „skinku“-útlitið sem nú er orðið fast í sessi örugglega líka innblásið af klámmyndastjörnum okkar vestræna heims. Eru ekki klámmyndastjörnur ein- mitt málaðar, greiddar og klæddar í þessum anda? Með dökkappelsínugul andlit, teiknaðar augabrúnir og varaút- línur? Hver veit, en skemmtileg pæling engu síður. Japanar taka skinkuna skrefinu lengra
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.