Fréttablaðið - 16.01.2010, Qupperneq 82
50 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR
Leikkonan Jessica Alba sagði í nýlegu
viðtali að það að eyða tíma með dóttur
sinni hjálpi henni að slaka á eftir erf-
iðan dag. Hún sagðist jafnframt ekki
vera jafn dómhörð á sjálfa sig eftir
að hún varð móðir. „Honor er besta
ráðið gegn stressi. Þegar ég eyði tíma
með henni fæ ég betri yfirsýn á það
sem skiptir máli. Ég get verið mjög
gagnrýnin á sjálfa mig en eftir að ég
eignaðist Honor þá gefst ekki tími í
það. Mig langar líka að kenna henni
að maður lærir af mistökum sínum og
að lífið heldur áfram.“
Aðspurð sagðist leikkonan sátt við
líkama sinn eftir barnsburðinn og seg-
ist hafa lært að meta sig eins og hún
er. „Jafnvel þó margir mundu telja
slitfarið á maganum vera lýti þá er ég
sátt við það. Meðgangan var ótrúleg
upplifun og þess vegna tek ég slitinu
og signu brjóstunum fagnandi.“
Ánægð með lífið
ÁNÆGÐ MÓÐIR Jessica Alba segir dóttur sína
vera besta ráðið gegn stressi.
In Touch greindi frá því
í vikunni að söngkonan
LeAnn Rimes óttist að
kærasti hennar, leikar-
inn Eddie Cibrian, verði
henni ótrúr. Þau kynnt-
ust í fyrra þegar þau
léku saman í sjónvarps-
mynd, en þau voru bæði
gift þegar samband
þeirra hófst.
Samkvæmt
heimildar-
mönnum er
Rimes svo
áhyggju-
full að hún
þorir ekki
að skilja Cibrian einan eftir
og eyðir nú miklum tíma á
tökustað sjónvarpsþátt-
anna CSI: Miami. „Eddie
hefur alltaf verið daðr-
ari, en þegar LeAnn
er viðstödd þorir hann
ekki að horfa á eða tala
við aðrar konur. Eddie
er farið að þykja stöðug
nærvera hennar óþægi-
leg og biður hana um
að bíða eftir sér í
búningsherberg-
inu.“
LeeAnn óttaslegin
ÓÖRUGG LeAnn
Rimes eltir kærasta
sinn í vinnuna.
Natalie Portman ætlar aldrei aftur
að koma nakin fram á hvíta tjaldinu.
Hún lék í nektaratriði í myndinni
Hotel Chevalier sem kom út 2007
og í framhaldinu birtust myndir af
henni á klámsíðum á Netinu, henni
til mikillar óánægju.
„Það er leiðinlegt að vita til þess
að helmingurinn af dómunum um
myndina snerist um nektina. Þá
fór ég að sjá eftir því að hafa gert
þetta,“ sagði Portman. „Ég er ekki
viðkvæm gagnvart nekt. Mér finnst
fallegt að hafa hana í kvikmyndum
og kynlíf er svo stór hluti af líf-
inu. Mér finnst nektin samt dreifa
athyglinni frá því sem skiptir aðal-
máli. Myndin af mér endaði á klám-
síðum og það fékk mig til að velta
þessum hlutum fyrir mér.“
Ekki aftur nakin
NATALIE PORTMAN Ísraelska leikkonan
ætlar aldrei aftur að koma nakin fram á
hvíta tjaldinu.
Coco Sumner, hin nítján ára dóttir
tónlistarmannsins Sting og eigin-
konu hans Trudie Styler fetar nú í
fótspor pabba síns og hefur gefið
út fyrsta lagið sitt. Hún notar lista-
mannsnafnið I Blame Coco og í
laginu, „Caesar“, syngur hún með
sænsku söngkonunni Robyn.
Búast má við stórri plötu í fram-
tíðinni en Coco er á samningi við
Island-útgáfuna. Sting á sex börn
sem flest fást við listir. Elsti sonur
hans Joseph Sumner er í hljóm-
sveitinni Fiction Plane og dætur
hans Kate og Bridget eru leikkonur.
Dóttir Stings gefur út
COCO SUMNER Dóttir Sting er að gefa
út sitt fyrsta lag.
Hljómsveitin The Killers frá Las Vegas
ætlar að taka sér langþráð frí eftir að tón-
leikaferð hennar um Ástralíu lýkur í næsta
mánuði. Rokkararnir eru úrvinda eftir að
hafa gefið út þrjár plötur frá árinu 2004
og farið í tónleikaferðir um heiminn til að
fylgja þeim eftir. „Ég veit ekki hvort fólk
gerir sér grein fyrir því en þetta verða lík-
lega síðustu tónleikarnir okkar í dálítinn
tíma, nema eitthvað óvænt komi upp á,“
sagði gítarleikarinn Dave Keuning. „Við
höfum ekki fengið frí í langan tíma. Við
höfum farið í tónleikaferðir og búið til
plötur stanslaust síðustu sex ár. Það hefur
ekki verið mikill frítími þess á milli. Það
er eins og fólk haldi að við getum gert
þetta endalaust án þess að hvíla okkur.
Núna viljum við bara slappa af og gera
eitthvað meira fyrir sjálfa okkur,“ sagði
hann.
Killers í frí
THE KILLERS Rokkararnir í The Killers fara í langþráð frí í næsta mánuði eftir
mikið álag undanfarin ár.
Joe Goddard í hljómsveitinni
Hot Chip segir að frammistaða
Susan Boyle í sjónvarpsþættinum
Britain´s Got Talent hafi veitt
sér innblástur að laginu Keep
Quiet. Goddard samdi lagið strax
eftir að hafa séð Boyle syngja I
Dreamed a Dream í þættinum.
„Ég hafði aldrei horft áður á
þáttinn og mér fannst hann
alveg magnaður,“ sagði Godd-
ard. „Bara að hlusta á þetta lag
fékk mig til að semja nýtt lag.
Ég sendi það til Alexis [Taylor]
og hann var ekki lengi að semja
textann og senda hann til mín.“
Næsta plata Hot Chip, One Life
Stand, er væntanleg 8. febrúar.
Susan Boyle
hafði áhrif
HOT CHIP Söngkonan Susan Boyle veitti
Hot Chip innblástur í laginu Keep Quiet.
Aflýsa þurfti tónleikum
söngkonunnar Lady Gaga
á fimmtudagskvöld vegna
veikinda tónlistarkonunn-
ar aðeins klukkustund
áður en þeir áttu að
hefjast.
Læknar Lady Gaga bönn-
uðu henni að fara á svið
eftir að hún hné niður í
búningsherbergi sínu
skömmu fyrir tón-
leikana. Hún átti
í erfiðleikum með
andardrátt og
var með óreglu-
legan hjartslátt
sem l æk n a r
töldu afleiðing-
ar ofþreytu. Lady
Gaga bað aðdáend-
ur sína afsökunar
á Twitter-síðu sinni
seinna um kvöldið.
„Ég hef grátið stans-
laust síðustu tvo tím-
ana, mér finnst sem ég hafi
brugðist aðdáendum mínum í
kvöld. Klukkutíma fyrir tón-
leikana fékk ég aðsvif og átti
erfitt með andardrátt. Sjúkra-
liðar komu til að sinna mér og
sögðu mér að hjartsláttur minn
væri óreglulegur. Ég heyrði tón-
leikagestina fagna þaðan sem ég
sat í búningsherberginu mínu,“
skrifaði söngkonan sem hefur
verið á ferð og flugi mestan
hluta ársins 2009 við tónleika-
hald.
Söngkonan, sem er 23 ára gömul,
sló í gegn árið 2008 með laginu
Just Dance og hefur síðan
þá gefið út tvær hljóm-
plötur sem selst hafa í
um átta milljónum ein-
taka. Hún var tilnefnd
til sex Grammy verð-
launa fyrir
fyrstu
hljómplötu
sína, The Fame,
og var meðal
annars tilnefnd í
flokknum um hljóm-
plötu ársins.
Lady
Gaga mun
næst koma
opinber-
lega fram á
Grammy-verð-
launaafhending-
unni sem fram fer
þann 31. janúar næst-
komandi, en söngkon-
an hefur verið tilnefnd til
fimm verðlauna.
Lady Gaga hné niður
FÉKK AÐSVIF Söngkonan Lady
Gaga þurfti að aflýsa tónleikum
vegna veikinda. Hún bað aðdá-
endur sína afsökunar á Twitter-síðu
sinni. Söngkonan hefur verið þekkt
fyrir að ótroðnar slóðir í fatavali en
hún er ein skærasta stjarna popp-
heimsins um þessar mundir.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Viltu hætta að reykja?
Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur um árabil haldið námskeið fyrir
einstaklinga eða hópa sem vilja hætta að reykja.
Næsta námskeið hefst mánudaginn 18. janúar 2010.
Hægt er að skrá sig í síma 540 1900 eða á netfangið reykleysi@krabb.is
Nánari upplýsingar á www.krabb.is/reykleysi
Starfsmöguleikar:
Innkaupastjóri
Útlitsráðgjafi
Stílisti
Verslunarstjóri
1. Önn 2. Önn
Fatastíll
Fatasamsetning
Textill
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533-5101
Erna, stílisti
Ég hef unnið við förðun á
Stöð 2 í 6 ár, þar á meðal
við förðun keppenda í Idol
og annarra sjónvarpsþátta
hjá 365. Einnig vinn ég við
auglýsingar, mynbönd og myndatökur. Það er
óhætt að segja að námið hefur hjálpað mér
mikið í starfi mínu í förðun og stíliseringu.
Skjöldur Mio,
tískuráðgjafi
Ég taldi mig vita flest
allt um tísku og útlit
áður en ég fór í skólann.
En annað kom á daginn.
Ég hef lært heilmikið um fatasamsetningu,
textil, litafræði, líkamsbyggingu og flest allt um
útlit. Námið nýtist mér frábærlega í því sem ég
er að gera.
Ú T L I S T - O G F Ö R Ð U N A R S K Ó L I
w w w . u t l i t . i s
VILTU VERÐA STÍLISTI?
The Academy of Colour and Style er skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á
helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal annars tekið fyrir litgreining, fatastíll og
textill. Eftir nám fá nemendur diplóma í útlitsráðgjöf (fashion consultant).
Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og spennandi og geta nýst á ýmsum sviðum og
atvinnugreinum.
Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn með náminu.
Kennsla fer fram í Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22.
Litgreining
Förðun út frá litgreiningu
Litasamsetning