Fréttablaðið - 16.01.2010, Page 83

Fréttablaðið - 16.01.2010, Page 83
LAUGARDAGUR 16. janúar 2010 Sjónvarpsstjarnan Heidi Montag, sem gerði garðinn frægan í þátt- unum The Hills, sem sýndir voru á MTV, hefur ekki sést opinber- lega undanfarnar níu vikur. Ástæðan er sú að hún gekkst undir tíu lýtaaðgerðir á einum degi. „Undanfarin þrjú ár hef ég velt þessu vandlega fyrir mér. Það mætti segja að ég sé heltekin af lýtaaðgerðum og mig langar að láta lagfæra meira,“ sagði hin 23 ára gamla Montag í viðtali við People. Stúlkan lét meðal annars stækka á sér brjóst og varir, minnkaði hökuna, lét fjarlægja hrukkur og skerpa kinnbeinin. Tíu aðgerðir á einum degi HELTEKIN Heidi Montag gekkst undir tíu lýtaaðgerðir á einum degi. Michael C. Hall, sem fer með hlutverk morðingjans Dexters í samnefndum sjónvarpsþáttum, hefur greinst með eitilfrumu- krabbamein af gerðinni Hodg- kins. Hinn 38 ára gamli leikari sagði að æxlið hafi greinst snemma og því væru góðar líkur á fullum bata. „Meinið greindist snemma og með strangri með- ferð ætti fullur bati að nást,“ sagði leikarinn sem þegar hefur hafið lyfjameðferð. Miklar fram- farir hafa orðið í meðferð á krabbameini síðustu ár og hefur árangurinn orðið einna mestur hjá sjúklingum með Hodgkins- sjúkdóminn. Greindist með krabba MEÐ KRABBAMEIN Leikarinn Michael C. Hall, sem fer með hlutverk í sjónvarps- þáttunum Dexter hefur greinst með krabbamein. Rokksveitin Kings of Leon hefur sagt skilið við rokklífernið og leggur nú stund á golf. „Nathan er frábær kylfingur en Caleb nálgast hann óðfluga. Útgefandi þeirra vonast til að þeir muni gefa út aðra plötu nú í ár en þeir fara sér hægt í þeim efnum. Þeim ligg- ur ekkert á. Nú ætla þeir að njóta lífsins fjarri upptökuverinu,“ var haft eftir heimildarmanni sem sagði jafnframt að mikil sam- keppni ríkti meðal hljómsveitar- meðlima. Auk þess að leika golf hefur trymbillinn Nathan einnig hafið innflutning á gæðavíni frá Frakk- landi og má því með sanni segja að þeir ætli sér að njóta lífsins til hins ýtrasta. Golf í stað rokksins LEIKA GOLF Hljómsveitarrmeðlimir Kings of Leon hafa tekið sér frí frá tónlistinni og spila golf. Landvarðanámskeið Umsóknum skal skilað fyrir 5. febrúar 2010 til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24 eða í tölvupósti á umhverfisstofnun@ust.is Í umsókn þarf að koma fram nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Skilyrði er að umsækjendur séu fæddir 1990 eða fyrr. Skemmtileg störf í náttúru Íslands 18. febrúar til 21. mars Kennt er um helgar og á kvöldin á virkum dögum, sjá dagskrá á umhverfisstofnun.is Námskeiðið er 110 tímar og gjald kr. 120.000

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.