Fréttablaðið - 16.01.2010, Síða 86
54 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Íslenska handboltalandsliðið leggur um helgina lokahönd á
undirbúning sinn fyrir Evrópumeistaramótið í handbolta sem
hefst í Austurríki á þriðjudaginn. Liðið fór til Parísar í gær þar
sem liðið tekur þátt í æfingamóti. Í dag leikur Ísland við Spán
og á morgun við annaðhvort Frakkland eða Brasilíu.
Guðmundur hefur ekki áhyggjur af því að spila tvo æfinga-
leiki í röð svo skömmu fyrir alvöruna í Austurríki.
„Nei, alls ekki. Þetta fylgir bara. Af hverju ættu
til dæmis hinar þjóðirnar að spila um helgina?
Ég hef engar áhyggjur af þessum leikjum,“ segir
Guðmundur.
Hann segir að leikmenn munu leggja allt í
leikinn í dag. „Við munum spila til sigurs. Þetta er
sterkt lið sem við mætum – bronsverðlaunahafarnir
frá Ólympíuleikunum – og við þurfum því að nýta
leikinn vel.“
Sigurvegarinn í leik Íslands og Spánar mætir
sigurvegaranum úr leik Frakklands og Brasilíu á
morgun annars vegar og tapliðin hins vegar. En sama
hver andstæðingurinn verður segir Guðmundur að hann muni
dreifa álaginu á milli leikmanna í leiknum á morgun.
Hann segir einnig andlegt ástand leikmanna gott og að
mikil tilhlökkun ríki í herbúðum liðsins fyrir mótið í Austurríki.
„Við erum hægt og sígandi að komast í lokagírinn. Við
ætlum að nota tímann fram að móti vel, bæði með því að
yfirfara okkar leik sem og andstæðinganna. Hluti af því er að
nýta þessa æfingaleiki um helgina á sem bestan máta.“
Guðmundur segist engar áhyggjur af því hafa þó
svo að væntingar fyrir mótið kunni að vera miklar hjá
íslensku þjóðinni. „Það er mikilvægt að halda ein-
beitingunni góðri og hugsa um það sem mestu máli
skiptir – hvað við gerum inni á sjálfum vellinum.
Þetta eru allt reynslumiklir leikmenn í liðinu og
hafa til að mynda gengið í gegnum Ólympíuleika.
Þeir vita nákvæmlega hvað þarf til að ná árangri. Ég
er sáttur við hvernig undirbúningurinn hefur gengið,
bæði í leikjum og á æfingum. Ég hef ekki yfir neinu
að kvarta. Við erum bara tilbúnir.“
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON: VIÐ ERUM TILBÚNIR FYRIR EM Í AUSTURRÍKI
Strákarnir vita hvað þarf til að ná árangri
> Sverrir mögulega með FH í sumar
Góðar líkur eru á að Sverrir Garðarsson muni spila með
FH-ingum í sumar en félagið á nú í viðræðum
við sænska B-deildarliðið GIF Sundsvall þar sem
Sverrir er samningsbundinn í eitt ár til viðbótar.
Pétur Stephensen, framkvæmdastjóri FH, stað-
festi þetta í samtali við Fréttablaðið í gær.
Sjálfur er Sverrir staddur hér á landi og er að
æfa með FH þessa dagana. „Það kæmi mér
ekki á óvart að þessi mál myndu leysast á
næstu dögum. Ef ekki þá fer ég bara aftur
til Svíþjóðar,“ sagði Sverrir. Þess má geta að
hann var í láni hjá FH í sumar og lék alls átta
leiki í Pepsi-deildinni.
HANDBOLTI Það tók íslenska hand-
boltalandsliðið sex löng ár að
tryggja sér sæti á fyrsta Evrópu-
mótinu og tókst það ekki fyrr en
í fjórðu tilraun. Ísland var ekki
með á fyrstu þremur Evrópu-
mótunum sem fóru fram í Portú-
gal 1994, á Spáni 1996 og á Ítalíu
1998 því liðið sat í öll skiptin eftir í
undankeppninni.
Síðan Ísland tryggði sig inn á EM
í Krótatíu árið 2000 þá hafa Strák-
arnir okkar ekki misst úr EM.
Besta árangrinum náði íslenska
liðið árið 2002 þegar það komst
alla leið í undanúrslitin en sá á eftir
verðlaunum eftir 11 marka tap fyrir
Svíum í undanúrslitaleiknum og 7
marka tap fyrir Dönum í leiknum
um 3. sætið.
Tveir leikmenn íslenska lands-
liðsins sem er á leiðinni á Evrópu-
mótið í Austurríki eru nú á leiðinni
á sjötta Evrópumótið í röð. Þeir
Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur
Sigurðsson voru báðir með íslenska
liðinu þegar það steig sín fyrstu
spor á EM fyrir áratug.
Guðjón Valur var þarna á sínu
fyrsta stórmóti og var ekki í hópi
í fyrstu tveimur leikjunum. Hann
kom síðan inn í hópinn í þriðja
leikinn sem var á móti Rússum.
Frá þeim tíma hefur Guðjón Valur
ekki misst úr leik á stórmóti og þar
með leikið síðustu 27 leiki íslenska
liðsins á Evrópumóti.
Guðjón Valur hefur aðeins hvílt
í 17 mínútur og 36 sekúndur af
síðustu fimmtán klukkutímum
íslenska landsliðsins á Evrópumót-
inu. Guðjón Valur er leikjahæstur
Íslendinga á EM með 27 leiki eða
tveimur leikjum meira en Ólafur
Stefánsson. Sigfús Sigurðsson er í
3. sæti með 22 leiki en hann er ekki
með íslenska liðinu í Austurríki.
Ólafur Stefánsson lék fyrstu 18
leiki Íslands á EM en hefur misst
úr fjóra af síðustu níu leikjum liðs-
ins vegna meiðsla. Ólafur er sá leik-
maður sem hefur skorað langflest
mörk og gefið flestar stoðsendingar
hjá íslenska liðinu á EM.
Ólafur hefur 37 marka og 113
stoðsendinga forskot á Guðjón Val
Sigurðsson í báðum þessum töl-
fræðiþáttum. Hér fyrir neðan má
sjá toppleiki Íslands í sögu EM
ooj@frettabladid.is
Ólafur og Guðjón með í öll skiptin
Íslenska karlalandsliðið er á leiðinni á sitt sjötta Evrópumót í röð. Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur
Sigurðsson eru áberandi á topplistum íslenska liðsins í sögu EM enda hafa þeir alltaf verið með.
Flest Evrópumót:
Guðjón Valur Sigurðsson 5
Ólafur Stefánsson 5
Sigfús Sigurðsson 4
Róbert Gunnarsson 3
Guðmundur Hrafnkelsson 3
Patrekur Jóhannesson 3
Dagur Sigurðsson 3
Róbert Sighvatsson 3
Rúnar Sigtryggsson 3
Snorri Steinn Guðjónsson 3
Ásgeir Örn Hallgrímsson 3
Flestir leikir á EM:
Guðjón Valur Sigurðsson 27
Ólafur Stefánsson 25
Sigfús Sigurðsson 22
Guðmundur Hrafnkelsson 17
Patrekur Jóhannesson 16
Dagur Sigurðsson 16
Róbert Sighvatsson 16
Snorri Steinn Guðjónsson 15
Flest mörk á EM:
Ólafur Stefánsson 152
Guðjón Valur Sigurðsson 115
Snorri Steinn Guðjónsson 82
Patrekur Jóhannesson 58
Sigfús Sigurðsson 45
Valdimar Grímsson 41
Róbert Gunnarsson 36
Flestar stoðsendingar á EM:
Ólafur Stefánsson 162
Guðjón Valur Sigurðsson 49
Patrekur Jóhannesson 47
Snorri Steinn Guðjónsson 47
Dagur Sigurðsson 44
Arnór Atlason 38
Flest mörk og stoðsendingar á EM:
Ólafur Stefánsson 314
152 mörk + 162 stoðsendingar
Guðjón Valur Sigurðsson 164
115 mörk + 49 stoðsendingar
Snorri Steinn Guðjónsson 129
82 mörk + 47 stoðsendingar
Patrekur Jóhannesson 105
58 mörk + 47 stoðsendingar
Flest hraðaupphlaupsmörk á EM:
Guðjón Valur Sigurðsson 44
Ólafur Stefánsson 20
Flest mörk með langskotum á EM:
Ólafur Stefánsson 71
Snorri Steinn Guðjónsson 23
Patrekur Jóhannesson 22
Dagur Sigurðsson 21
Flest fiskuð víti á EM:
Róbert Gunnarsson 21
Sigfús Sigurðsson 19
Guðjón Valur Sigurðsson 15
Róbert Sighvatsson 14
SNORRI STEINN GUÐJÓNSSON
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
RÓBERT GUNNARSSON
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TOPPLISTAR ÍSLANDS Á EM Í HANDBOLTA 2000 TIL 2008
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
● Tækniþróunarsjóður er sjóður sem heyrir undir iðnaðarráðherra og starfar
samkvæmt lögum nr. 75/2007 um opinberan stuðning við tæknirannsóknir,
nýsköpun og atvinnuþróun.
● Tækniþróunarsjóður fjármagnar nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu
Vísinda- og tækniráðs.
● Umsækjendur geta verið fyrirtæki, einstaklingar, rannsóknastofnanir og háskólar.
● Sjóðurinn veitir framlög til nýsköpunarverkefna sem eru til þess fallin að auka
samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
● Forsenda fyrir aðkomu sjóðsins er að fyrir liggi vel mótuð hugmynd um hagnýtt
gildi og líklegan ávinning sem þróun viðkomandi verkefnis getur leitt til.
● Tækniþróunarsjóður hefur skilgreint þrjá verkefnisflokka og er umsækjendum
bent á að kynna sér þá, ásamt reglum um viðurkenndan kostnað, á vefsíðu sjóðsins.
● Umsóknarfrestur er til kl. 17:00 þann 15. febrúar næstkomandi.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um Tækniþróunarsjóð
eru á www.rannis.is
Tækniþróunarsjóður
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd
vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis
vísinda- og tæknisamfélagsins. Í vörslu Rannís eru opinberir samkeppnissjóðir s.s.
Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og
nýsköpun á Íslandi og gerir áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag og hagvöxt
sýnilegan. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og
tæknisamfélagsins.
Styrkir til nýsköpunar
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2010
REYNSLUMIKLIR Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson verða í algjöru lykil-
hlutverki í Austurríki eins og venjulega hjá íslenska landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HANDBOLTI Þorbjörn Jensson,
fyrrum landsliðsþjálfari, var
gestur Morgunútvarps Rásar 2 í
morgun og tjáði sig um íslenska
handboltalandsliðið. Þorbjörn
sagðist hafa vera mjög ánægður
með að sjá FH-inginn Ólaf Guð-
mundsson í hópnum.
„Ég held að Gummi hafi gert
hárrétt með því að taka Ólaf með.
Mér finnst persónulega hann
vera betri en bæði Logi og Aron.
Ég hefði tekið hann umfram þá
báða,“ sagði Þorbjörn sem þjálf-
aði landsliðið frá 1995-2001.
„Mér hefur alltaf fundist Ólaf-
ur mjög efnilegur og það sem
hann hefur umfram hina tvo er
að hann getur spilað vörn. Hinir
tveir geta ekki spilað vörn,“
rökstuddi Þorbjörn. - óój
Þorbjörn um Ólaf:
Betri en Logi
og Aron
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON Ein efnilegasta
skytta landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI