Fréttablaðið - 16.01.2010, Page 94

Fréttablaðið - 16.01.2010, Page 94
62 16. janúar 2010 LAUGARDAGUR Verslunin 12 tónar er óvænt orðin fræg á heldur sérstökum stað, nánar tiltekið í Japan. Safn- plata verslunarinnar er í 14. sæti á popplista I-tunes, innan um alþjóðlegar stórstjörnur. Ekki fór mikið fyrir plötuút- gáfunni 12 tónum á síðasta ári – miðað við fyrri ár að minnsta kosti – en menn sátu þó ekki með hendur í skauti. Verslunin er vinsæl hjá túristum og Lárus Jóhannesson, annar eigendanna, segir að 12 tónar líti í auknum mæli til Japans. „Fyrir mörgum árum tók ég eftir því að Japanar voru að láta taka myndir af sér fyrir utan búðina,“ segir hann. „Staðreyndin er sú að búðin er orðin býsna fræg í Japan. Milli jóla og nýárs kom til dæmis Jap- ani í pílagrímsferð til Íslands, og meðal annars í 12 tóna. Hann var skjálfandi á beinunum og þegar ég sagði honum að ég væri annar eigandinn varð hann alveg berg- numinn og lét taka mynd af sér með mér inni í búðinni. You make me so happy, sagði hann svo og titraði allur og skalf.“ Áhugi Japana hefur skilað sér inn á japanska I-tunes-vin- sældalistann eins og áður segir þar sem safnplatan Aurora er í 14. sæti á popplistanum – innan um Rihönnu, Susan Boyle og Lady Gaga. Japanska útgáfan Rambling Records gefur plötuna út og lögin eru af útgáfuskrá 12 tóna, meðal annars með Ragn- heiði Gröndal, Jóhanni Jóhanns- syni og Ingibjörgu Þorbergs. „Þetta fyrirtæki fer óhefð- bundnar leiðir og þeir selja það sem þeir gefa út mikið í tískubúð- um og kaffihúsum. Þeir fengu að hanna umslagið sjálfir og skelltu norðurljósum og hreindýri fram- an á. Ég veit nú ekki hvað þetta hefur selst í mörgum eintökum og líklega fer þetta nú ekki langt upp í Icesave-skuldirnar. Og þó, þetta er náttúrlega 120 milljóna þjóð.“ 12 tónar gefur út nokkrar plötur á næstunni, meðal annars plötur með Skúla Sverrissyni og hljóm- sveitinni Hudson Wayne. Og svo á að halda japönsku útrásinni sprelllifandi. „Við ætlum að opna sérstaka heimasíðu fyrir Japans- markað á þessu ári. Það verð- ur einhver skrítinn japanskur vinkill á því. Örugglega slatti af norðurljósum.“ drgunni@frettabladid.is 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. bátur, 6. skammstöfun, 8. líða vel, 9. ílát, 11. númer, 12. helgitákn, 14. hopp, 16. í röð, 17. eldsneyti, 18. illæri, 20. á fæti, 21. slabb. LÓÐRÉTT 1. þilfar, 3. mun, 4. íauki, 5. sam- stæða, 7. árásargjarn, 10. meðvitund- arleysi, 13. ákæra, 15. gróft orð, 16. stækkaði, 19. guð. LAUSN LÁRÉTT: 2. skip, 6. eh, 8. una, 9. ker, 11. nr, 12. kross, 14. stökk, 16. jk, 17. kol, 18. óár, 20. tá, 21. krap. LÓÐRÉTT: 1. dekk, 3. ku, 4. innskot, 5. par, 7. herskár, 10. rot, 13. sök, 15. klám, 16. jók, 19. ra. VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 10 1 Þriðjungurinn. 2 Dimmalætting. 3 Þrjú tonn af vatni. Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, þreytti frumraun sína sem pistla- höfundur í morgunútvarpi Rásar 2. Ólafur sveik hvorki aðdáendur sína né unnendur heimspekilegra vangaveltna þótt eflaust hafi margir verið skildir eftir í tómarúmi eftir að hafa hlýtt á lokaorð heimspekingsins því þau samanstóðu af veiðistöng, jójói, Esjunni, tekatli, Esjunni og William Blake. Það er gósentíð hjá sjónvarpsáhorf- endum um þessar mundir. Söngva- keppni Sjónvarpsins, þar sem hinar óléttu Ragnhildur Steinunn og Eva María halda um stjórnar- taumana, er augljóslega ekki búin að missa neitt af sjarma sínum og þjóðin virðist hafa enda- lausan áhuga á misgóðum lögum. Samkvæmt áhorfsmælingu Capacent Gallup horfði rúmlega helmingur þjóðarinnar á aldrinum 12-80 ára á keppnina sem verða að teljast hreint út sagt ótrúlegar tölur. Spaugstofan nýtur greinilega góðs af nærveru Söngvakeppninnar því nán- ast jafnmargir horfðu á fjórmenning- ana fara á kostum í síðasta þætti. Sigurganga Wipeout með Friðriku Hjördísi í aðalhlutverki heldur áfram þótt það sé áþreifanlegur munur á áhorfinu milli aldurshópa. Eldra liðið á heimilinu virðist kjósa frekar að horfa á Útsvar, spurn- ingaþátt sveitar- félaganna á RÚV, en yngri kynslóðin nýtur þess að horfa á íslenska kepp- endur hrasa um hverja þrautina af fætur annarri í Argentínu. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Adam Barr, virtur handritshöfundur í Hollywood, hefur skrifað handrit að prufu- þætti, svokallaðan „pilot“, fyrir banda- rísku útgáfuna að Næturvaktinni. Barr þykir feikilega öflugur í sjónvarpsgeira Bandaríkjanna. Hann var hluti af hand- ritshöfundateymi Desperate Housewives- þáttanna og skrifaði handritið að átján þáttum fyrir hina margverðlaunuðu gamanþætti Will & Grace sem sýndir voru við miklar vinsældir á Skjá einum fyrir nokkrum árum. Samkvæmt tilkynningu frá Saga Film hefur sjónvarpsveldið Fox tryggt sér sýn- ingarréttinn á þáttunum en það er fram- leiðslufyrirtækið Reveille sem á end- urgerðarréttinn næstu fimm árin. Það hefur framleitt þáttaraðir á borð við The Office og Ugly Betty. Að sögn Hannesar Pálssonar hjá Saga Film er málið ekki lengra á veg komið en í handritsfarveginn og því á enn eftir að ákveða hvenær verði ráðist í sjálfan prufuþáttinn. Hann er þó bjartsýnn á að í ljósi þess hversu hratt málið hefur gengið fyrir sig að það verði von bráðar. Í bandarískum sjónvarpsiðnaði er nú að renna upp svokallað „pilot-season“ en þá prufukeyra bandarísku sjónvarpsstöðvarn- ar nýjar hugmyndir frá handritshöfundum sínum og hugmyndasmiðum. Næturvaktin er því að reyna við nálaraugað. Yfir fimm- tíu handrit berast stóru sjónvarpsstöðv- unum á þessu tímabili en milli sex og tíu þeirra fá styrk til að gera svokallaðan pilot-þátt. Hátt í 150 þættir eru síðan prufukeyrðir á þessu tímabili en sjónvarps- stöðvarnar mæla áhorfið á sérstökum sjónvarpsrásum og í framhaldinu er tekin ákvörðun um hverjir fá að lifa áfram. - fgg Næturvaktin reynir við nálaraugað STYTTIST Í ANNAN ENDANN Ljóst er að drengirnir í Nætur- vaktinni eru farnir að banka ansi fast á dyrnar í Hollywood. Þungavigtarmaður í sjónvarpsgeiranum þar vestra skrifar handritið að ensku útgáfunni. Hildur Sverrisdóttir Aldur: Ég er 31 árs en verð 32 ára á árinu. Starf: Ég er lögfræðingur. Fjölskylda: Ég á sambýl- ismann sem heitir Teitur Björn Einars- son og er forsvarsmað- ur Eyrarodda hf. á Flateyri. Búseta: Bý á Ásvallagötunni. Stjörnumerki: Vog. En í einhverj- um fræðum mundi ég flokkast sem sporðdreki því ég fæddist tíu mínútum áður en það merki tók við. En meirihlutinn vill flokka mig sem vog. LÁRUS JÓHANNESSON: SAFNPLATA 12 TÓNA VINSÆL Í JAPAN Lárus í 12 tónum fékk Japana til að titra og skjálfa „Ég hugsa að ég hefði ekki tekið þetta að mér fyrir nokkurn annan starfsmann Birtíngs,“ segir lögmað- urinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson. Vilhjálmur hefur tekið að sér að verja bróður sinn, Inga Frey Vilhjálmsson, blaðamann á DV, í máli fót- boltakappans Eiðs Smára Guðjohnsen gegn honum og ritstjórum blaðsins. Vilhjálmur hefur höfðað þónokkur mál gegn Birtíngi, sem gefur meðal annars út DV, fyrir hönd skjólstæðinga sína. Þá ritaði hann fræga grein í Fréttablaðið í fyrra þar sem hann sagði að starfsmenn útgáfunnar væru síbrotamenn á sviði ærumeiðinga og ann- arra brota á lögum um prentrétt. „Ég tók þar sér- staklega fram að þetta ætti ekki við um alla starfsmenn Birtíngs. Þar starfar mikið af góðum og öflugum blaðamönnum sem vanda sín störf í hvívetna,“ segir Vilhjálmur, spurður um málið. „Ég er ekki að vinna fyrir Birtíng og mun ekki senda fyrirtækinu reikning fyrir mína vinnu. Ég geri þetta pro bono fyrir litla bróður minn.“ Vilhjálmur hefur hrellt marga blaða- menn í réttarsalnum, en hann er fyrr- verandi knattpsyrnumaður með Þrótti. Það þykir því afar sérstakt að hann sé að verja blaðamann í máli gegn fótbolta- manni. Er tilfinningin skrítin? „Ef Eiður hefði einhvern tíma spilað með Þrótti, þá hefði ég ekki treyst mér til að taka til varna í málinu.“ - afb Vilhjálmur ver blaðamann GÆTIR BRÓÐUR SÍNS Vilhjálmur hefur hrellt blaðamenn í gegnum tíðina, en hyggst nú verja bróður sinn, blaðamanninn, nú þegar Eiður Smári hefur kært hann. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI STÓRIR Í JAPAN Lárus Jóhannesson, annar eigandi 12 tóna, segir búðina býsna fræga í Japan. Umslagið fyrir safndiskinn skartar hrein- dýri og norðurljósum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.