Fréttablaðið - 22.04.2010, Side 24

Fréttablaðið - 22.04.2010, Side 24
24 22. apríl 2010 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 D raumur sem kviknaði í bréfum og samtölum manna um miðja nítjándu öld að Íslendingar gætu í fyll- ingu tímans reist sér hús sambærileg safnahúsum, menntaskemmum og leikhúsum meginlandsins, stappaði í þann tíma nærri brjálsemi og firru. Draum- urinn sýndi samt metnað, sigurvissu um stað okkar í menningu heimsins. Tómas Sæmundsson sem vakti fyrstur máls á þessum draumi, Sigurður Guðmundsson sem tók að tala fyrir stofnun Þjóðleikhúss, Indriði Einarsson sem hélt draumnum vakandi og loks þeir Jakob Möller og Jónas Jónsson sem gerðu hugsjónina um Þjóðleikhúsið að verklegum pólitískum veruleika; allt þetta lið leit svo hátt sem augað eygði og sá himnana opna. Hugsjónir þeirra gera okkur veikum og vondaufum skömm til. Og svo sterk var vissan um óorðna hluti að hundrað árum eftir að örla tók á hugmyndinni stóð húsið uppsteypt og var vígt sumar- daginn fyrsta 1950. Það var dagur vona og eftirvæntingar. Húsið kallaði saman unga og eldri starfskrafta, fært fólk hert í áhugamennsku og hlutastarfi og ungmenni sem höfðu í eymd stríðslokaáranna sótt sér menntun á erlend tungumál: Herskyld- an í Bretlandi varð til þess að stór hópur íslenskra leikara komst að og menntaðist í klassískum skólum enska leikhússamfélags- ins. Og á næstu áratugum eignaðist þjóðin Þjóðleikhús í beinum skilningi: tuttugu manna leikflokkur Þjóðleikhússins reyndist aflgjafi áhugamönnum, Leikfélagi Reykjavíkur og öðrum sjálf- stæðum leikflokkarekstri sem allt til loka sjöunda áratugsins fór árvisst um dreifðar byggðir landsins meðan hinn hefðbundni rekstur Þjóðleikhússins milli vertíðarloka og sláturtíðar kallaði á gesti í tugum þúsunda. Leikhús þjóðarinnar varð til, stutt afl- miklu starfi Ríkisútvarps. Þjóðleikhúsið gat af sér óperuflokka, dansflokka, leiknar kvikmyndir, leikið efni í sjónvarpi – allt þetta átti upptök sín þar. Vonir forgöngumannanna rættust til fulls á örskömmum tíma. Okkur sem ólumst upp í ljóma Þjóðleikhússins kann að þykja húsið nú geta illa svarað kalli tímans. Áhugaleysi stjórnvalda og skammsýni hafa látið það drabbast niður, það er dýrt í rekstri sökum innréttinga og þarfnast brýnna endurbóta. Þá er ósvarað þeirri spurningu hvernig Þjóðleikhús á að standa undir nafni í samfélagi sem ætlar að byggja menningarhús í stærri byggða- kjörnum. Stjórnvöld og stjórnmálaflokkar hafa enga stefnu sem lítur langt í skipan þessa geira menningar okkar. Og gjafir til Þjóðleikhússins á sextugsafmælinu verða nú fáar, gestirnir í afmælinu eyddu um efni fram og eru blankir. En stofn eins og Þjóðleikhús og flokkur honum tengdur eru ekki sjálfsagður munaður, hann er stofn sem verður að sinna og gæta að. Lifandi virkjun krafta og áhuga, innilegs erindis, stefnuskrá í sífelldri endurnýjun og spurn um hvað við erum og hvert við höldum, þó hann sé okkur ekki síst skemmtun langa vetur. Og við hann skal lögð rækt, því um leið ræktum og rækjum við okkur sjálf. Því er sú ósk efst við háan himin að Þjóðleikhúsið dafni og lifi og sinni okkur áfram af sínum óslitna krafti. HALLDÓR SKOÐUN Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettabladid.is Hæstvirtur menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir og fjármálaráð- herra Steingrímur J. Sigfússon. Nú stendur yfir endurskoðun á úthlut- unarreglum Lánasjóðs íslenskra náms- manna. Ljóst er að LÍN hefur úr litlu að moða til að bæta kjör námsmanna. Þess er þó mikil þörf ef ríkisstjórnin vill sýna í verki að leggja eigi áherslu á háskólanám í því árferði sem nú er. Sem dæmi má nefna að atvinnulaus einstaklingur sem ætlar í nám fær verri kjör hjá LÍN en ef hann færi á atvinnuleysisbætur. Þetta eru ekki þau skilaboð sem stjórnvöld eiga að senda út í þjóðfélagið. Brýnt er að hækka grunnframfærslu námslána í takt við verðbólgu svo raun- gildi framfærslunnar rýrni ekki milli ára. Þá er einnig mikilvægt að að hækka tekju- skerðingu lánanna úr 750 þúsund í milljón en slík breyting myndi ekki kosta meira en að stækka einn golfvöll. Námsmanna- hreyfingarnar telja ekki til of mikils mælst að hækka framfærslu þeirra allra tekjulægstu þegar aðrir hátekjuhópar geta farið í verkfall og knúið fram hærri laun. Grunnframfærsla einstaklings í dag er 120 þúsund krónur og Lánasjóðurinn við- urkennir að framfærslugrunnur hans er löngu úreltur, þ.e. þetta dugar ekki til þess að lifa. Einnig er ljóst að verði grunnfram- færslan ekki hækkuð þarf að taka miklu stærra stökk þegar loks á að hækka fram- færsluna aftur. Það er einlæg ósk allra námsmanna- hreyfinganna sem sæti eiga í stjórn LÍN að framlag til sjóðsins verði aukið til að mæta þeim lágmarksframfærslukröfum sem stúdentar gera. Það er ekki í takt við stefnu ríkisstjórnar jafnréttis og velferð- ar að búa svo illa í hag fyrir námsmenn að þeir flýi land og komi jafnvel aldrei aftur til þess að borga þær skuldir sem á herðar okkar hafa verið lagðar. Opið bréf til ráðherra Rakel Lind Hauksdóttir fulltrúi Bandalags íslenskra námsmanna í stjórn LÍN. Sigurður Kári Árnason fulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands í stjórn LÍN. Sindri Snær Einarsson fulltrúi Sambands íslenskra framhalds- skólanema í stjórn LÍN. Valur Þráinsson fulltrúi Sambands íslenskra námsmanna erlendis í stjórn LÍN. Námslán Einnig er ljóst að verði grunn- framfærslan ekki hækkuð þarf að taka miklu stærra stökk þegar loks á að hækka fram- færsluna aftur. Þjóðleikhúsið sextugt: Sumargjöf Gömlum gildum hent Borgar Þór Einarsson benti á það í gær að nokkuð merk tímamót hefðu orðið í sögu Sjálfstæðisflokksins um síðustu helgi. Þar var samþykkt ný stefnuskrá og grunnstefi flokksins frá stofnun, 1929, breytt. Flokkurinn hefur í rúm 90 ár unnið að málum „á grundvelli einstaklings- frelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum“. Um síðustu helgi hætti hann því hins vegar og vinnur nú að málum „á grundvelli jafn- réttis og atvinnufrelsis með hags- muni allra stétta að leiðarljósi“. Gegn einstaklingsfrelsi? Þetta er athyglisvert, svo ekki sé meira sagt, og hefði í raun verðskuld- að mun meiri umfjöllun en hver situr í embætti varaformanns eða hættir í því. Þarna var grunngildum flokksins breytt, án mikillar umræðu virð- ist vera, í einu vetfangi. Ekkert einstaklings- frelsi, bara jafnrétti. Ætli þetta sé til marks um að flokkurinn sé nú á móti ein- staklingsfrelsi? Engin tvímæli lengur Össur Skarphéðinsson lá undir nokkru ámæli þegar hann skipaði Ólöfu Ýri Atladóttur ferðamálastjóra. Þá var Össur iðnaðarráðherra og ráðningunni var mótmælt, meðal annars af Félagi háskólamenntaðra ferðamálafræðinga. Aðrir drógu fram pólitísk tengsl Ólafar og þurftu að seilast ansi langt, alla leið aftur í háskólapólitíkina. Nú hefur Ólöf Ýrr tekið af öll tvímæli um hvar hún á heima í pólitík, en hún skipar nú 10. sæti Samfylkingarinnar í Garðabæ til sveitarstjórnarkosninga. kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.