Fréttablaðið - 22.04.2010, Qupperneq 31
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
BROWNS-TÍSKUVÖRUVERSLUNIN í London verður fjörutíu
ára á árinu. Af því tilefni hafa yfir þrjátíu heimsfrægir tískuhönnuð-
ir endurhannað flíkur sem munu verða hluti af „Future collecta-
bles” línunnar. Þetta eru hönnuðir á borð við Burberry, Christian
Louboutin, Erdem, Missoni, Sonia Rykiel og Stella McCartney.
„Ég aðhyllist afar kvenlega tísku
og er mikil kjólastelpa, en hef lent
í því upp á síðkastið að fara út ber-
leggjuð í opnum skóm að morgni en
uppskorið hlátur viðstaddra þegar
vorhret mætir mér upp úr hádegi.
Því hef ég hallað mér að þessari
rauðu peysu frá Volcano Design,
því í henni er smá kjólafílingur en
ekki þannig að gert sé grín að mér
um leið,“ segir Þorbjörg Marinós-
dóttir, blaðamaður og sjónvarps-
kona á Skjá einum, sem fer sínar
eigin leiðir í klæðaburði.
„Ég er ákaflega hrifin af rauðu
en einnig bleiku þótt ég hafi lítið
klæðst bleiku fyrr en nú. Ég held
að bleikt sé málið í sumar og
tónar vel við pastelliti í snyrtivör-
um. Þannig á ég nú bleikan Mac-
varalit sem heitir Chatter Box og
á mjög vel við mig, og fer ekki út
nema nakin án hans,“ segir Tobba
og skellir upp úr.
„Að mínu áliti ætti að banna
íslenskum konum að kaupa svart
yfir sumartímann. Þess í stað
eiga þær að njóta kvenleikans og
allt í lagi að sýna frænkurnar smá
og leggja rúllukragabolnum. Við
erum svona í laginu af tvennum
ástæðum, til að gefa smábörnum
að borða og laða að okkur karl-
menn, og því tilgangslaust að vera
alltaf í svörtum kufli,“ segir Tobba
sem er óhrædd við að sýna vöxt
sinn með kvenlegum sniðum.
„Ég er veik fyrir einkaritara-
pilsum og öllu sem er innsniðið í
mittið því ég er þeirrar skoðunar
að konur eigi að undirstrika vöxt
sinn. Ég er sannarlega með rass og
brjóst, en mjúkar línur eru kven-
legar og fagrar enda vill enginn
karl horrenglu með strákavöxt.
Konur eiga því miður til að detta í
hólkvíðar flíkur til að fela felling-
ar en staðreyndin er sú að þannig
fatnaður fitar meira en aðsnið-
in föt,“ segir Tobba sem hefur
ástundað ræktina grimmt að und-
anförnu.
„Það vill auðvitað enginn vera
feiti krakkinn í sjónvarpinu en
með þessum æfingum hef ég náð
að grafa upp ágætis mitti á ný. Því
nýt ég þess enn betur að klæða mig
kvenlega, finn að það smitar út frá
sér og lífgar upp á andrúmsloftið
í kringum mig,“ segir Tobba sem
sést í síðasta sinn í Djúpu lauginni
annað kvöld.
„Þar hef ég reynt að stíga út
fyrir normið með aðeins of rauð-
um varalitum. Þetta hefur verið
æðisleg vinna enda ég afskiptasöm
við að koma fólki saman. Hið end-
anlega takmark okkar allra er að
finna lífsförunaut og um það snýst
líf okkar að miklu leyti þótt við
gefum því verðuga verkefni oftast
of lítinn gaum.“ thordis@frettabladid.is
Út að viðra frænkurnar
Kvenleiki er aðalsmerki fjölmiðlaskvísunnar Þorbjargar Marinósdóttur, enda óhrædd við að klæðast
sterkum, djörfum litum í aðskornum og flegnum fötum sem leyfa kvenlegri fegurð að njóta sín til fulls.
Tobba hefur undanfarið tekið forskot á
sumarið með skvísulegum drögtum og
opnum skóm, en þurft að fara í uppá-
haldspeysuna þegar vetur konungur
hefur neitað að víkja fyrir sólskinsskapi
hennar í fatavali.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
Skór & töskur í miklu úrvali
www.gabor.is
Sérverslun með
Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu
Takmarkað magn af IQ-Care heilsudýnum
og Proflex stillanlegum rúmum
á sértilboði frá framleiðanda
Proflex 2x80x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
kr. 339.900 - verð áður kr. 429.000
Proflex 2x90x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
kr. 349.900 - verð áður 459.000
Listh
Fermingartilboð
sjá
www.svefn.is
Skeifunni 11 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 • Fax: 517-6465
www.belladonna.is