Fréttablaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 31
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 BROWNS-TÍSKUVÖRUVERSLUNIN í London verður fjörutíu ára á árinu. Af því tilefni hafa yfir þrjátíu heimsfrægir tískuhönnuð- ir endurhannað flíkur sem munu verða hluti af „Future collecta- bles” línunnar. Þetta eru hönnuðir á borð við Burberry, Christian Louboutin, Erdem, Missoni, Sonia Rykiel og Stella McCartney. „Ég aðhyllist afar kvenlega tísku og er mikil kjólastelpa, en hef lent í því upp á síðkastið að fara út ber- leggjuð í opnum skóm að morgni en uppskorið hlátur viðstaddra þegar vorhret mætir mér upp úr hádegi. Því hef ég hallað mér að þessari rauðu peysu frá Volcano Design, því í henni er smá kjólafílingur en ekki þannig að gert sé grín að mér um leið,“ segir Þorbjörg Marinós- dóttir, blaðamaður og sjónvarps- kona á Skjá einum, sem fer sínar eigin leiðir í klæðaburði. „Ég er ákaflega hrifin af rauðu en einnig bleiku þótt ég hafi lítið klæðst bleiku fyrr en nú. Ég held að bleikt sé málið í sumar og tónar vel við pastelliti í snyrtivör- um. Þannig á ég nú bleikan Mac- varalit sem heitir Chatter Box og á mjög vel við mig, og fer ekki út nema nakin án hans,“ segir Tobba og skellir upp úr. „Að mínu áliti ætti að banna íslenskum konum að kaupa svart yfir sumartímann. Þess í stað eiga þær að njóta kvenleikans og allt í lagi að sýna frænkurnar smá og leggja rúllukragabolnum. Við erum svona í laginu af tvennum ástæðum, til að gefa smábörnum að borða og laða að okkur karl- menn, og því tilgangslaust að vera alltaf í svörtum kufli,“ segir Tobba sem er óhrædd við að sýna vöxt sinn með kvenlegum sniðum. „Ég er veik fyrir einkaritara- pilsum og öllu sem er innsniðið í mittið því ég er þeirrar skoðunar að konur eigi að undirstrika vöxt sinn. Ég er sannarlega með rass og brjóst, en mjúkar línur eru kven- legar og fagrar enda vill enginn karl horrenglu með strákavöxt. Konur eiga því miður til að detta í hólkvíðar flíkur til að fela felling- ar en staðreyndin er sú að þannig fatnaður fitar meira en aðsnið- in föt,“ segir Tobba sem hefur ástundað ræktina grimmt að und- anförnu. „Það vill auðvitað enginn vera feiti krakkinn í sjónvarpinu en með þessum æfingum hef ég náð að grafa upp ágætis mitti á ný. Því nýt ég þess enn betur að klæða mig kvenlega, finn að það smitar út frá sér og lífgar upp á andrúmsloftið í kringum mig,“ segir Tobba sem sést í síðasta sinn í Djúpu lauginni annað kvöld. „Þar hef ég reynt að stíga út fyrir normið með aðeins of rauð- um varalitum. Þetta hefur verið æðisleg vinna enda ég afskiptasöm við að koma fólki saman. Hið end- anlega takmark okkar allra er að finna lífsförunaut og um það snýst líf okkar að miklu leyti þótt við gefum því verðuga verkefni oftast of lítinn gaum.“ thordis@frettabladid.is Út að viðra frænkurnar Kvenleiki er aðalsmerki fjölmiðlaskvísunnar Þorbjargar Marinósdóttur, enda óhrædd við að klæðast sterkum, djörfum litum í aðskornum og flegnum fötum sem leyfa kvenlegri fegurð að njóta sín til fulls. Tobba hefur undanfarið tekið forskot á sumarið með skvísulegum drögtum og opnum skóm, en þurft að fara í uppá- haldspeysuna þegar vetur konungur hefur neitað að víkja fyrir sólskinsskapi hennar í fatavali. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0 O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6 Skór & töskur í miklu úrvali www.gabor.is Sérverslun með Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Takmarkað magn af IQ-Care heilsudýnum og Proflex stillanlegum rúmum á sértilboði frá framleiðanda Proflex 2x80x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu kr. 339.900 - verð áður kr. 429.000 Proflex 2x90x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu kr. 349.900 - verð áður 459.000 Listh Fermingartilboð sjá www.svefn.is Skeifunni 11 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 • Fax: 517-6465 www.belladonna.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.