Fréttablaðið - 22.04.2010, Síða 45
FIMMTUDAGUR 22. apríl 2010 7
Fafu er nýtt íslenskt fyrir-
tæki sem hannar og fram-
leiðir skapandi leikföng
fyrir börn.
Hugmyndin vaknaði
með Huldu Hreiðars-
dóttur fyrir nokkrum
árum. „Ég hafði þá haft
áhuga á umhverfisvæn-
um vörum og á sjálf
þrjú börn,“ segir Hulda
sem haustið 2008 sótti
Viðskiptasmiðju hjá
Klaki sem er verklegt
nám til að framkvæma
hugmyndir. Upp úr
því stofnaði hún ásamt
Þórunni Jónsdóttur Fafu
í júní 2009 en að starfi og
hugmyndavinnu koma fleiri
einstaklingar.
Sanngjarnir viðskiptahættir,
eða „Fair trade“, eru hugmynda-
smiðum fyrirtækisins Fafu mik-
ilvægir auk þess sem umhverfis-
sjónarmið eru höfð að leiðarljósi
við hönnun og framleiðslu varanna.
Þá er öll hugmyndafræðin að baki
leikfanganna sérstök. „Við reyn-
um að fá krakkana út úr boxinu
og örva þau og krefja um mót-
framlag í leik,“ útskýrir Hulda. Hún segir
allt of algengt að börnin horfi á dótið leika
sér án þess að þau þurfi að taka þátt. Með
leikföngum frá Fafu sé hins vegar gerð krafa
um að þau búi eitthvað til sjálf, hugsi og læri.
„Við vinnum mikið með liti, form og áferð.
Leikföngin hafa ekki augljósa virkni heldur
verða börnin að velta fyrir sér hvað eigi að
nota þau í.“
Fyrsta lína Fafu, búningalínan Fikra, var
tilbúin í desember. Er þar um að ræða skikkj-
ur og hatta sem hægt er að nota á ýmsa vegu.
Enn er það eina lína Fafu en þær stöllur vinna
nú að vöruþróun á fleiri vörum þar sem unnið
er með tré, gúmmí og fleiri hráefni.
Hulda segir fjármögnun hafa gengið ágæt-
lega. Þær fengu í fyrra frumherjastyrk frá
Tækniþróunarsjóði sem gerði þeim kleift að
einbeita sér alfarið að verkefninu.
En hvar má fá vörur Fafu? Við erum með
þær í einni búð í Norræna húsinu og verð-
um líklega í nokkrum túristabúðum í sumar.
Hins vegar stefnum við aðallega á útflutning
og eru Skandinavía og Þýskaland okkar aðal-
markaðir,“ segir Hulda. Vörurnar eru þegar
til sölu í einni búð í Stokkhólmi en líkur eru á
að þær verði til sölu í fjölmörgum verslunum
í Svíþjóð sem sérhæfa sig í umhverfisvænum
vörum. Áhugasamir geta kynnt sér vörurnar
og hugmyndirnar á www.fafutoys.com
solveig@frettabladid.is
Vinna með opinn
leik, liti og áferð
Hulda Hreiðarsdóttir og Þórunn Jónsdóttir standa að fyrirtækinu Fafu.
Þar er áhersla lögð á leikföng sem örva börn til sjálfstæðrar hugsun-
ar. Fafu hlaut nýlega sérstök útflutningsverðlaun Útflutningsráðs.
Skikkjur, hatt-
ar og slæður
öðlast nýtt
líf í höndum
barnanna.
Hulda Hreiðarsdóttir og Þórunn Jónsdóttir standa saman að leikfangafyrirtækinu Fafu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
1. MAÍ breytist útivistartími barna. Þá mega börn 12
ára og yngri ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22,
nema í fylgd með fullorðnum. Börn á aldrinum 13 til
16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir miðnætti.
Krakkar geta
brugðið sér í ýmis
hlutverk í litríkum
búningum.
• LÍTILL OG ÞÆGILEGUR
• HÆGT AÐ NOTA Á ALLAN LÍKAMANN
• LOSAR UM VÖÐVABÓLGU OG HARÐSPERRUR
• ENDURNÆRIR HÁLS, AXLIR, BAK OG FÆTUR
• STERKUR OG ENDINGARGÓÐUR
• TVEGGJA ÁRA VERKSMIÐJUÁBYRGÐ
LOGY EHF - B E R J A R I M I 6 - 112 R E Y K J AV Í K - S Í M I 6 61-2 5 8 0 O G 5 8 8 -2 5 8 0
SENDUM Í PÓSTKRÖFU EÐA KEYRUM HEIM Á REYKJAVÍKURSVÆÐI
WWW.LOGY.IS
Fjölskyldu sumargjöfi n
Útsölustaðir:
Apótekið, Árbæjarapótek, Lyfjaval, Lyfjaver,
Rima Apótek, Reykjavíkur ap., Fjarðakaup, HNLFÍ,
30% afsláttur
af sóttum pizzum
Tilboðið gildir frá 19–25. apríl
„Bjóðum einnig upp á speltpizzur“
Sími: 577-3333
Dalvegur 2, 201 Kóp.
Opið alla daga frá kl. 11–1
Dalshrauni 13, Hafnarfjörður
Opið sun – fim frá kl. 11–23,
fös og lau frá 11–23:30
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is
sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is
sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is
sími 512 5447
Þriðjudaga