Fréttablaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 69
FIMMTUDAGUR 22. apríl 2010 49
Fína og fræga fólkið úti í heimi
varð margt að sætta sig við fram-
lengda dvöl á sumarfrísstaðnum
sínum. Það hefur þó
væntanlega ekki lent
í vandræðum með
krítarkortaheimildina
en í þeim hópi voru
skötuhjúin Sienna
Miller og Jude Law.
Þau voru föst í
ástarhreiðri sínu
í Los Angeles en
flugu heim til
London í gær.
Kiefer Suther-
land var hins vegar hinum megin
við Atlantshafið, fastur í London
sem hann hefur málað rauða
með reglulegri setu á
skemmtistöðum höf-
uðborgarinnar. Hann
sást hins vegar dóla
sér í rólegheitunum
um markverðustu staði
Lundúna í gær enda var
þá tiltölulega stutt
síðan honum
var hent út af
nektarbúllu.
Doug Pitt var nýlega heiðraður fyrir
mannúðarstarf sitt í Tansaníu og
var útnefndur góðgerðasendiherra
landsins. Og af hverju ratar Doug
Pitt í þessa slöngu? Jú,
hann er nefnilega
stóri bróðir banda-
rísku stórstjörnunnar
Brad Pitt sem komst
ekki til að vera við-
staddur athöfnina
vegna
eldgossins
í Eyjafjalla-
jökli.
Sir David Attenborough, sem
hefur fært heimsbyggðinni magn-
aða þætti um lífríki jarðar, varð að
fresta tökum á nýrri þáttaröð sem
heitir Frozen Planet.
Honum var flogið á
hótel í Noregi í stað
þess að taka upp á
heimskautasvæðinu
og neyddist til að
dúsa þar í
kringum
eldhressa
Norsara.
Sænskri rokkhátíð var slegið á frest
vegna eldgossins í Eyjafjallajökli þar
sem engir tónlistarmenn komust
í tæka tíð fyrir tónleikahaldið og
aðstandendur Tribeca-kvikmynda-
hátíðarinnar sem hófst í gær voru
logandi hræddir um að
leikstjórar sæju sér
ekki fært um að koma
enda getur Eyjafjalla-
jökull tekið upp á
hverju sem er, líka
að dreifa ösku
á ný.
ELDGOSIÐ
Það er orðið ansi langt síðan Francis Ford Coppola
keypti kvikmyndaréttinn að einni frægustu skáld-
sögu seinni ára, Á vegum úti eftir Jack Kerouac,
sem Ólafur Gunnarsson þýddi af mikilli snilld.
Bókin fjallar um hin svokölluðu bít-skáld og er
uppfull af djassi, drykkju og skrautlegum persón-
um.
Coppola hefur nánast reynt allt og enn þann dag
í dag er Walter Salles, sá sem færði okkur Mótor-
hjóladagbækurnar, orðaður við leikstjórastólinn og
Jose Rivera hefur setið sveittur við að skrifa hand-
rit. En þetta var árið 2005 og fátt nýtt hefur gerst.
En í vikunni virtist hins vegar vera að rofa til því
Garret Hedlund var allt í einu orðaður við hlutverk
Dean Moriarty sem Kerouac byggði á á bít-hetj-
unni Neal Cassady. Sam Reilly hefur verið orðað-
ur við hlutverk Sals Paradise en Kerouac byggði þá
persónu á sjálfum sér. Þetta yrði
án nokkurs vafa ein af athyglisverðari kvikmynd-
unum frá Hollywood í langan tíma en kvikmynda-
spekúlantar eru ekkert sérstaklega bjartsýnir á að
hún sé væntanleg í bráð.
Á vegum úti að verða til
Á RÉTTINN Francis Ford Coppola á réttinn að bókinni Á vegum
úti eftir Kerouac sem Ólafur Gunnarsson þýddi.
Ronnie Wood, gítarleikari Roll-
ing Stones, segist hafa kennt
Slash að spila á gítar. „Ég man
eftir Slash þegar hann var lítill
strákur. Þá njósnaði hann um mig
þegar ég var að spila á gítar og
ég kenndi honum lítil gítarstef,“
sagði Wood.
Slash bjó á Englandi, heima-
landi Woods, þar til hann var
ellefu ára og fluttist hann þá til
Bandaríkjanna. Wood er hrifinn
af gítarleik Slashs, sem sló í gegn
í Guns N´Roses. „Slash er mjög
hæfileikaríkur. Það er frábært að spila með honum og hann er góður
spunagítarleikari,“ sagði hann.
Kenndi Slash á gítar
RONNIE WOOD Gítarleikari Rolling
Stones segist hafa kennt Slash að spila
á gítar.
16. APRÍL - 6. MAÍ Í REGNBOGANUM
NÁNAR Á WWW.GRAENALJOSID.IS
HVAÐA MYND
ÆTLAR ÞÚ AÐ
SJÁ Í DAG?