Fréttablaðið - 22.04.2010, Page 73
FIMMTUDAGUR 22. apríl 2010
Kvikmyndir ★★★
The Messenger
Leikstjóri: Oren Moverman
Aðalhlutverk: Ben Foster, Woody
Harrelson, Samantha Morton.
Sýnd á Bíódögum Græna ljóssins.
Maður hefur einhvern veginn
aldrei pælt í því en hermennska
gengur víst út á fleira en að drepa
og deyja. Þannig þurfa til dæmis
einhverjir óheppnir hermenn að
sinna því niðurdrepandi hlutverki
að fara uppádressaðir heim til nán-
ustu aðstandenda þeirra sem far-
ast við skyldustörf og tilkynna
andlátið.
The Messenger segir frá tveim-
ur slíkum hermönnum. Sá frábæri
leikari Woody Harrelson leikur
annan þeirra. Hann er búinn að
vera fastur í þessu starfi boðbera
válegra tíðinda býsna lengi og
tekur að sér að þjálfa upp nýliða
sem Ben Foster leikur.
Woody er eldri en ekki jafn
stríðsreyndur. Hann var því miður
upp á sitt besta þegar Bandaríkja-
menn fóru í auðvelda stríðsleið-
angra til Granada. Hann hefur því
ekki kynnst lífsháska stríðs svo
heitið geti. Hinn er ungur og ákaf-
ur, hetja úr geðbiluninni í Írak sem
finnst þetta verkefni vera langt
fyrir neðan sína virðingu.
Þessir ólíku menn bindast þó
óhjákvæmilega vinaböndum í
ömurlegum leiðöngrum sínum
og það er eitthvað pínu sjúkt en
sætt við samband þeirra í þessari
mannlegu og drungalegu mynd
þar sem þó leynist alltaf eitthvert
ljós í myrkrinu.
Woody er kaldur og tilfinninga-
krepptur óvirkur alki sem hefur
brynjað sig fyrir sorg viðskipta-
vina sinna og fer tilfinningalaust
með möntruna um að Sámi frænda
þyki leitt að einhver hafi dáið frá
föður, móður, konu eða barni í til-
gangslausu stríðinu í Írak.
Tilfinningalíf unga mannsins er
í öllu meira uppnámi og hann getur
ekki sætt sig við aðferðir leiðbein-
andans og gengur meira að segja
svo langt að vingast við ekkju her-
manns. Þetta setur hann vitaskuld
í smá siðferðiskreppu en auðvitað
gengur honum gott eitt til.
The Messenger er ekkert sér-
staklega amerísk mynd og því ekki
að undra að hún rati í bíó fyrir til-
stilli hins góða græna ljóss. Það er
fengur að þessari mynd og í henni
leynist von og smá „feelgood“ þótt
nístandi sársauki syrgjenda nísti
í hjartað í átakanlegum og alveg
hreint mögnuðum atriðum.
Harrelson er auðvitað mik-
ill meistari, jafn vígur á grín og
alvöru, og sýnir hér hvað í honum
býr á síðarnefnda sviðinu. Fost-
er skilar sínu einnig með sóma og
hinn undursamlegi leikari Steve
Buscemi lyftir svo tveimur atrið-
um upp í hæstu hæðir í litlu auka-
hlutverki.
Þórarinn Þórarinsson
Niðurstaða: Falleg, átakanleg og
ósköp mannleg mynd um tvær tættar
sálir í bandaríska hernum sem mæta
í einkennisbúningum heim til fólks
sem misst hefur ástvini í stríði.
Boðberar dauðans
MAGNAÐUR KAPPI Woody Harrelson er traustur í hlutverki sínu sem kaldur og
tilfinningakrepptur óvirkur alki í The Messenger sem sýnd er á Bíódögum Græna
ljóssins.
VILTU
VINNA
EINTAK?
10. HVERVINNUR!
FULLT AF AUKAVINNINGUM
TÖLVULEIKIR • DVD MYNDIR • GOS
OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS SKEYTIÐ
EST AVA Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ EINTAK!
FRÁ JAMES CAMERON
KEMUR STÆRSTA MYND ALLRA TÍMA
LENDIR Í ELKO Á DVD OG BLU-RAY HD 21. APRÍL
Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 199 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.